Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 18

Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16 Við leitum að listaverkum síðustu forvöð að koma með listaverk á fyrsta uppboð vetrarins er 30. ágúst Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 vefuppboð á myndlist stendur yfir NÝ SENDING FRÁ LENNE DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | www.dimmalimmreykjavik.is Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–17 Sendum frítt um land allt Iana Reykjavík Útigallar Verð frá kr.16.795 Húfur • Vettlingar • Lúffur • Sokkaskór • Stakar kuldabuxur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við erum klárir í allt. Þetta er stundum eins og slysavarðstofan. Við þurfum að gera við allt sem bilar hjá fyrirtækjunum. Ég veit aldrei hvað ég er að fara að gera að morgni næsta dags,“ segir Barði Sæmunds- son, framkvæmdastjóri og verkstjóri Vélsmiðjunnar Loga ehf. á Patreks- firði. Sextíu ár eru liðin frá því að fyrirtækið var stofnað og er það elsta atvinnufyrirtækið á staðnum. „Það er góðum starfsmönnum og viðskiptavinum að þakka,“ segir Barði þegar hann er spurður hvaða skýringar séu á því að fyrirtæki hans hafi lifað af stóráföll í atvinnulífi staðarins. Hann nefnir að fyrirtæk- inu haldist vel á starfsfólki og hafi margir starfað þar lengi. Vélsmiðjan Logi hefur gengið í gegnum erfiðleikatíma með öðrum fyrirtækjum á staðnum. Það varð til dæmis fyrir miklu áfalli þegar helstu fyrirtækin á staðnum, kaupfélagið og hraðfrystihúsið, urðu gjaldþrota á sínum tíma. Það komst út úr því, eins og öðru. Útgerðin er máttarstólpinn Helstu verkefnin eru hjá útgerð- inni. Hún hefur verið máttarstólpinn í gegnum árin. Seinni árin hafa verið mikil verkefni hjá fiskeldinu. Annars er þjónustan fjölbreytt. Auk sjávar- útvegsins þjónar Vélsmiðjan Logi vinnuvélum og annast almenna málmsmíði. Þá rekur fyrirtækið verslun með vörur til málmsmíða og fleira. „Þetta hefur verið blönduð þjónusta og við borið gæfu til að að- lagast tímunum eins og þeir eru,“ segir Barði. Eftir stofnun félagsins var byggt yfir starfsemina að Aðalstræti 112. Þar er fyrirtækið enn til húsa. Byggt var við á níunda áratugnum. Þá hef- ur verið fjárfest í búnaði og tækjum eftir þörfum og getu. Barði segir að fyrirtækið sé vel tækjum búið til að þjóna viðskiptavinum á sunnan- verðum Vestfjörðum. Ekki tekið út úr rekstrinum Vélsmiðjan Logi var stofnuð af einstaklingum og fyrirtækjum í lok ágúst 1955. Sæmundur Kristjánsson vélsmiður, faðir Barða, var aðal- hvatamaður að stofnun þess en hlut- hafar voru auk hans Friðgeir Guð- mundsson, Snorri Gunnlaugsson, Hlynur Ingimarsson, Þórður Helga- son og Bogi Þórðarson kaupfélags- stjóri fyrir hönd Kaupfélags Pat- reksfjarðar. Kaupfélagið var stærsti hluthafinn fyrstu áratugina. Frið- geir var verkstjóri fyrstu árin en þá tók Sæmundur við og stjórnaði fyrir- tækinu í áratugi. Barði lærði vél- smíði hjá föður sínum og vann með honum frá 1975. Tók hann við fyrir- tækinu að föður sínum látnum, árið 1991, og er nú aðaleigandi. Rekstur vélsmiðju er frekar þung- ur, að hans sögn, og þarf að halda vel á spöðunum til að hann gangi. Barði notar sömu aðferðir og faðir hans. Hann nefnir sem dæmi að engir pen- ingar séu teknir út úr rekstrinum. „Það sem fyrirtækið aflar, það er fyrirtækisins,“ segir hann. Ljósmynd/Páll Janus Traustason Á sama stað Vélsmiðjan Logi hefur alla tíð verið í sama húsnæði. Henni hefur einnig haldist vel á starfsfólki. Vélsmiðjan stundum eins og slysavarðstofa  Vélsmiðjan Logi er elsta atvinnufyrirtækið á Patreksfirði Verkstjórinn Barði Sæmundsson gengur sjálfur í verkin með starfsmönnum sínum, hvort sem það er á verkstæði eða um borð í báti. Björn Björnsson bgbb@simnet.is Sauðárkróki | Framkvæmdir við gömlu Gönguskarðsárvirkjunina norðan Sauðárkróks eru nú komnar í fullan gang og er þessa dagana unnið jöfnum höndum við lagfær- ingar á gömlu stíflunni ofarlega í gilinu og greftri fyrir nýju stöðvar- húsi sunnan árinnar, um 300 metr- um vestan Steinullarverksmiðju. Þá er einnig verið að lagfæra þá leið þar sem aðfallsrör að stöðvarhúsi mun liggja. 30 menn þegar mest lætur Fyrirtækið Hnikar stendur að framkvæmdunum. Að sögn Auðuns Guðmundssonar, annars af eigend- um fyrirtækisins ásamt Pétri Bjarnasyni, eru allar framkvæmdir á áætlun. Nú eru um 20 starfsmenn við framkvæmdirnar en gert er ráð fyrir að þeir verði um 30 þegar mest verður. Gamla stíflan verður notuð óbreytt og ekki hækkuð, en nú er verið að vinna við lagfæringu henn- ar, meðal annars með því að koma fyrir nýjum sjálfhreinsandi ristum til þess að auka rekstrar- og fram- leiðsluöryggi. Auðunn, sem er framkvæmda- stjóri á virkjunarstað, sagði að gert væri ráð fyrir allmikilli framleiðslu- aukningu frá því sem áður var, eða um 1.750 kw í stað 1.200 kw. Stefnt er að því að rafalar frá Glo- bal Hydro í Austurríki komi til landsins í mars nk. og verður stöðv- arhúsið þá að vera tilbúið. Síðan er stefnt að því að framleiðslan geti hafist í júlí á næsta ári. Auðunn bendir á að í gömlum bæklingi um fyrri Gönguskarðs- árvirkjun, sem gefinn var út þegar sú virkjun var tekin í notkun, hafi verið rætt um að gera mætti ráð fyr- ir mikilli fjölgun rafmagnseldavéla í kaupstaðnum, en vart þurfi að búast við slíku nú. Hins vegar mun þessi endurbætta virkjun auka orkuöryggi bæjarbúa verulega, þar sem eina tenging bæjarins við byggðalínuna er um tengivirki í Varmahlíð. Hafa margir borið nokkurn kvíðboga fyrir því hvort hún mundi standa af sér veru- leg vetrarveður, enda komin nokkuð til ára sinna. Framkvæmdir í fullum gangi  Gönguskarðsárvirkjun endurbyggð  Nýtt stöðvarhús og stíflan lagfærð Morgunblaðið/Björn Björnsson Gönguskarðsá Verið er að grafa fyrir nýjum aðfallsrörum. Morgunblaðið/Björn Björnsson Stíflan Lagfæra þarf gömlu stífluna áður en virkjunin fer í gang að nýju. Hún var fyrst gangsett árið 1949 en RARIK lagði hana niður árið 2007.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.