Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 30
VIÐTAL Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Það eru forréttindi að fá að vinna í torfbæ. Eftir því sem maður er hérna lengur þykir manni vænna um bæinn og söguna. Þetta er fyrsta sumarið mitt á Grenjaðarstað og mér finnst skemmtilegt að sjá upplifun ferða- mannanna sem hingað koma,“ segir Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur frá Haga í Aðaldal, en hún hefur unn- ið ásamt fleirum við leiðsögn í byggðasafninu á Grenjaðarstað í sumar og tekið á móti mörgum gest- um. Aðsókn hefur heldur aukist, sér- staklega eru það útlendingarnir sem eru fleiri þetta árið. Sigurlaug vann auk þessa að for- vörsluverkefni á staðnum í júní og júlí. Henni til aðstoðar var grísk stúlka sem er listfræðinemi, en um mikið verk var að ræða. Það snerist um að hreinsa alla sýn- ingargripi í gamla bænum og öll sýn- ingarrými og nú er mjög gott ástand á munum safnsins og raunar sjálfum bænum þar sem hann hefur að mörgu leyti fengið gott viðhald. Mikill bær og margir munir Torfbær þessi þótti á sínum tíma mestur og reisulegastur allra bæja í Þingeyjarsýslum, en elsti hluti hans er reistur árið 1865. Sr. Benedikt Kristjánsson sem var prestur á staðnum 1877-1907 lét endurnýja bæ- inn að öllu leyti nema austurdyr og norðurstofu. Á hans dögum var margt í heimili og oft nærri 30 manns. Seinna og með breyttum búskaparháttum fækkaði fólki nokkuð og í manntali 1915 eru heimilismenn 15 á Grenjaðarstað. Síðasti presturinn sem bjó í bænum ásamt sínu fólki var sr. Þorgímur Sig- urðsson og árið 1949 lauk þar búsetu. Sumarið 1955, fyrir forgöngu Kristjáns Eldjárns þjóðminjavarðar, hófst gagnger viðgerð á bænum, þar sem reynt var að færa hann í upp- runalegt horf. Viðgerð tók sinn tíma en 9. júlí 1958 var bærinn formlega opnaður sem byggðasafn. Hafði þá verið komið fyrir nokkuð á annað þúsund munum í flestum húsum bæj- arins sem fólkið í héraðinu hafði gefið til safnsins. Útveggir Grenjaðarstaðarbæj- arins hafa allir verið endurhlaðnir. Þeir eru að mestu tvíhlaðnir úr hraungrýti án torfs á milli steinanna. Innan við þá er hraunmulningur, en veggir að öðru leyti fylltir með mold. Safnakvöld í Þingeyjarsýslum Fyrir nokkrum árum var hlöðu- bygging skammt norðan við gamla bæinn innréttuð sem þjónustuhús og er þar ákjósanleg aðstaða fyrir gesti og starfsmenn. Margir vilja lífga upp á söfnin í héraðinu og stóð Menningarmiðstöð Þingeyinga fyrir kvöldopnun frá kl. 19-21 um síðastliðna helgi í fjórum söfnum, þ.e. Byggðasafninu á Grenj- aðarstað, Safnahúsinu á Húsavík, í Sauðaneshúsinu og á Snartarstöðum við Kópasker. Á Grenjaðarstað var eldsmiður að störfum. Þá var kvöldvaka í baðstof- unni þar sem hrosshár var spunnið á vinglu og Pétur Ingólfsson var með þjóðlega gítartóna. Þá sýndi og seldi Hlöðuhópurinn handverk, en í sumar var hópur handverksfólks með fjöl- breytt úrval muna til sölu í þjónustu- húsinu. Að sögn Sigurlaugar var þetta mjög skemmtilegt kvöld en í framtíðinni er ætlunin að lífga meira upp á safnalífið. Hún segir það hafa verið mjög ánægjulegt að hafa handverksfólkið á staðnum í sumar og gengið hafi vel að selja. Þá fannst gestum mjög gott að vera boðið í kaffi að lokinni sýning- arferð um torfbæinn. Björt framtíð byggðasafnsins Svo virðist sem áhugi á sögunni sé vaxandi og Sigurlaug segir framtíð Byggðasafnsins á Grenjaðarstað vera afar bjarta. „Ég hef trú á því að hérna verði alltaf nóg að gera því ferðamenn hafa mikinn áhuga á íslenskri menningu,“ segir hún. Sigurlaug er nú í mastersnámi í safnafræði og þjóðfræði og segir að safnafræðin gefi mikla faglega reynslu. Hún segir að vissulega hafi tíðarfarið í Þingeyjarsýslum haft áhrif um tíma í sumar því færri Ís- lendingar sóttu safnið heim þegar mest rigndi. Hins vegar segir hún að aðsókn erlendra ferðamanna í rútu- ferðum hafi vaxið og það sé ánægju- legt, enda sé aðsóknin í heild mjög góð. Hún segir þetta heillandi starf og hlær um leið og hún segist vera að fara að slá grasið á þekjunni. Í stórum torfbæ er alltaf hægt að finna einhver verkefni, enda er hann um 775 fermetrar að stærð. Byggðasafnið býr við góða aðsókn  Fjöldi erlendra ferðamanna kemur við á Grenjaðarstað  Byggðasafn frá 1958  Gott ástand á munum safnsins og innviðum eftir markvisst forvörslustarf í sumar  Elsti hluti torfbæjarins frá 1865 Morgunblaðið/Atli Vigfússon Byggðasafn Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur við gamla torfbæinn á Grenjaðarstað í S-Þingeyjarsýslu. Mikil aðsókn hefur verið að byggðasafninu. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 Þegar þú teflir í klukkutíma notarðu jafn mikla orku og skákklukka þarf til að ganga í næstum 100 ár Opið 10-17 alla daga. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir Það er kraftur í þér. Gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar við Ljósafoss varpar ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Ljósafossstöð er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Verið velkomin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.