Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég átti fund með þjóðminjaverði
fyrir um þremur árum og kom þess-
ari hugmynd á framfæri. Síðan hef
ég engin viðbrögð fengið,“ segir Val-
geir Sigurðsson á Siglufirði, sem vill
setja upp vaxmyndasafn Óskars
Halldórssonar útgerðarmanns í
gömlu frystihúsi Óskars á Siglufirði.
Safnið hefur verið í geymslu Þjóð-
minjasafns Íslands mörg undanfarin
ár og ekki verið varanlega til sýnis
frá árinu 1969. Var safnið síðast sett
upp tímabundið í Þjóðminjasafninu
árið 2007.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður segir ákveðnar reglur
gilda um varðveislu þjóðminja og
þeirra gripa sem Þjóðminjasafnið
varðveitir.
„Við lánum gjarnan viðurkenndum
söfnum gripi þar sem aðstæður eru
fyrir hendi til að sýna. Þegar lánaðir
eru gripir gilda um það ákveðnar
reglur. Við berum lögbundna ábyrgð
á að enginn skaði verði á munum í
okkar vörslu,“ segir Margrét en
bendir á að vaxmyndir úr safni Ósk-
ars hafi verið lánaðar, t.d. til Byggða-
safns Hafnfirðinga árið 2003, og árið
2007 efndi Þjóðminjasafnið til sýn-
inga á vaxmyndunum. Ein mynd-
anna, af Óskari Theódór, er nú til
sýnis í Þjóðminjasafninu, eins og
fram kom í Morgunblaðinu í síðustu
viku.
Töluverðra breytinga er þörf
Valgeir segist hafa keypt gamla
frystihúsið til að bjarga því frá nið-
urrifi. Hefur haldið húsinu eitthvað
við og lagt þar inn hitaveitu. En til að
geta opnað þarna safn er þörf á enn
frekari endurbótum.
„Ég hef ekki fengið neitt afskrifað,
eins og sumir, en finnst vert að halda
á lofti minningu þessa merka manns.
Ég vil hafa safnið opið fyrir almenn-
ing en geri mér grein fyrir að gera
þarf töluvert fyrir húsnæðið. Á því
eru engir gluggar og það kemur sér
vel. Vaxmyndasafn má ekki standa í
sólinni. Þetta er alltaf spurning hvað
maður vill gera mikið, hvort valinn
verður einhver grófur stíll í hönnun-
inni eða reist kristalshöll,“ segir Val-
geir.
Hann segist áður hafa boðið Síld-
arminjasafninu á Siglufirði gamla
frystihúsið sem geymsluhúsnæði en
þar hafi ekki verið áhugi. Um sé að
ræða eitt elsta uppistandandi frysti-
hús landsins og merkilegt fyrir
margra hluta sakir í atvinnusögu
landsins.
„Þarna frysti Óskar beitusíld á
síldarárunum. Í mótorhúsinu var
fyrsta frystivélin sem kom til lands-
ins. Hún kom upphaflega á vegum
Ottós Wathne til Seyðisfjarðar en
Óskar keypti hana þaðan og setti upp
á Siglufirði,“ segir Valgeir, sem varð-
veitir enn frystivélina gömlu og telur
hann ekki mikið mál að koma henni
aftur í gang sem sýningargrip. Hægt
sé að rífa niður vegg á milli frysti-
hússins og mótorhússins og hafa vél-
arnar gangfærar til hliðar við vax-
myndasafn í gamla frystihúsinu.
„Það væri gaman ef þetta gæti
orðið að veruleika,“ segir Valgeir.
Fari í gegnum viðurkennt safn
Þjóðminjavörður segir að ef sýna
eigi vaxmyndirnar varanlega á sér-
stöku safni eða í sýningarsal þá þurfi
að kosta til töluverðrar forvörslu og
að aðstæður verði að vera tryggar.
„Vaxmyndir eru viðkvæmar minj-
ar og þurfa að vera við ákveðin varð-
veisluskilyrði. Þær eru úr þannig
efnivið. Ef við ætluðum að lána ein-
hverja gripi yrði það að vera í gegn-
um viðurkennt safn,“ segir Margrét
og tekur Síldarminjasafnið á Siglu-
firði sem dæmi.
„Vaxmyndirnir eru í tryggum að-
stæðum hér í Þjóðminjasafninu. Þær
eru í ágætu ástandi og geymdar við
bestu mögulegu skilyrði. Við fáum
reglulega fyrirspurnir um hvenær
við ætlum að sýna gripina, sérstak-
lega frá þeim sem muna vel eftir
safninu þegar það var uppi. Við höf-
um sýnt það reglulega en það er auð-
vitað barn síns tíma. Munirnir eru
áhugaverðir en eiga ekki endilega
stöðugt að standa uppi til sýnis. Ef
ætti að setja það upp aftur þá þyrfti
að hugsa það upp á nýtt í samræmi
við áherslur nútímans. Þetta eru
merkar minjar í okkar vörslu og við
gerum okkar besta til að tryggja
varðveislu þeirra til framtíðar,“ segir
Margrét að endingu.
Vaxmyndasafnið verði á Siglufirði
Vill fá upp vaxmyndasafn Óskars Halldórssonar Íslandsbersa í gamla frystihúsi hans Þjóðminja-
vörður segir gripina aðeins fara til viðurkenndra safna Voru í varanlegri sýningu frá 1951 til 1969
Vaxmyndasafnið er upphaflega
frá árinu 1951 en Óskar Hall-
dórsson stofnaði það til minn-
ingar um son sinn, Óskar Theó-
dór, sem fórst í sjóslysi 23 ára
að aldri. Safnið innheldur vax-
myndir af 33 einstaklingum, þar
af 18 Íslendingum.
Meðal myndanna eru afsteyp-
ur af Óskari og syni hans, en
uppistaðan eru þekktir ein-
staklingar sem uppi voru á 20.
öld og enn lengra aftur, m.a.
Napóleon Bonaparte, William
Shakespeare, HC Andersen,
Ólafur Thors, Halldór Laxness
og Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður.
Vaxmyndirnar voru gerðar af
Englendingnum Richard Lee.
Napóleon
og Laxness
VAXMYNDASAFNIÐ
Ljósmynd/Þjóðminjasafnið
Vaxmyndasafn Samankomnir í vaxi þeir HC Andersen, Ólafur Thors,
Roald Amundsen og leikritaskáldið William Shakespeare.
Ljósmynd/Þjóðminjasafnið
Sýning Þjóðminjasafnið sýndi vaxmyndirnar síðast 2007. Hér eru f.v. Napóeleon, HC Andersen, Óskar Theódór og
faðir hans, Óskar Halldórsson, Amundsen landkönnuður, Baden Powell, Thomas A. Edison og Marteinn Lúther.
Ljósmynd/Valgeir Sigurðsson
Siglufjörður Gamla frystihús Óskars Halldórssonar.
Síld Síldarsöltunarstöð Óskars á síldarárunum á Siglufirði.
Margrét
Hallgrímsdóttir
Valgeir
Sigurðsson
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Hurðir og gluggar
í miklu úrvali