Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 104
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Rykkonan“ látin úr maga…
2. Of feit en samt undir kjörþynd
3. Sigríður I. Ingadóttir selur íbúðina
4. Auglýsing Icelandair hækkaði …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndatónskáldið Jóhann Jó-
hannsson vinnur nú að gerð hljóm-
sveitarsvíta með tónlistinni sem
hann samdi fyrir kvikmyndirnar The
Theory of Everything og Prisoners.
Þær verða frumfluttar af Sinfóníu-
hljómsveitinni í mars.
AFP
Jóhann semur svítur
úr kvikmyndatónlist
Stefán Ragnar
Höskuldsson, sem
undanfarin ár hef-
ur verið leiðandi
flautuleikari
hljómsveitar
Metropolitan-
óperunnar í New
York en hefur nú
verið ráðinn til
Chicago-sinfóníunnar, hefur sent frá
sér nýjan geisladisk. Nefnist hann
Solitude og leikur Stefán verk eftir
Schubert, Liebermann, Prokofiev og
Magnús Blöndal Jóhannsson.
Nýr geisladiskur
Stefáns Ragnars
Sjólag er heiti sýningar mynd- og
hljóðlistarmannsins Finnboga
Péturssonar sem verður opnuð í Gall-
erí Gróttu á Seltjarnarnesi í dag
klukkan 17. Þar sýnir hann eins konar
stillimyndir af sjávar-
landslagi. Annað verk
Finnboga, áhrifamikil inn-
setning vatns, hljóðs og
ljóss, er á sýningunni
Listeríu í ókláraða
safnhúsinu við Nes-
stofu.
Sjólag og innsetning
Finnboga á Nesinu
Á föstudag Norðan 10-18 m/s um landið norðan- og norðvestan-
vert og talsverð rigning. Mun hægari á Suður- og Austurlandi og
dálitlar skúrir. Hiti 4 til 12 stig, kaldast á Norðvesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustlæg átt, hvasst um landið norð-
vestanvert en mun hægari vindur á Suður- og Austurlandi. Víða
rigning en úrkomulítið á Suðvesturlandi. Hiti 10 til 20 stig.
VEÐUR
„Ég var aðeins stressuð fyr-
ir tímamismuninum en það
gekk vonum framar að venj-
ast honum og ég hafði engu
að tapa,“ segir Aníta Hin-
riksdóttir meðal annars í
Morgunblaðinu í dag, en
hún keppti í fyrsta sinn á
HM fullorðinna í Peking í
fyrrinótt og náði þar besta
tíma sínum á árinu. Þjálf-
ari hennar segir Anítu hafa
sannað sig í hópi þeirra
bestu. »1
„Spennandi hvort
ég kæmist áfram“
Julius Yego frá Kenía sigraði í spjót-
kasti karla á heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum í Peking í gær.
Yego náði þriðja lengsta kasti sög-
unnar og því lengsta í fjórtán ár og er
hann fyrsti frjálsíþróttamaðurinn frá
Kenía til að vinna gull á HM utan
hlaupabrautarinnar. »4
Yego vann á 3. lengsta
kasti frá upphafi
„Ég er ekki búinn að skora nógu mik-
ið í sumar svo það var fínt að bæta
við tveimur þarna,“ segir Skaga-
maðurinn Jón Vilhelm Ákason meðal
annars í Morgunblaðinu í dag. Hann
er leikmaður sautjándu umferðar
Pepsi-deildar karla að mati blaðsins,
sem birtir einnig lið umferðarinnar
og stöðuna í M-gjöfinni nú þegar far-
ið er að síga á seinni hlutann. »2-3
Skemmtilegur leikur
fyrir áhorfendur
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Brian Borgford starfaði sem kennari
í Kína, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum og Katar í 12 ár áður en
hann flutti til Calgary í Kanada í
fyrra og fór á eftirlaun. Hann er nú á
Íslandi að safna upplýsingum í bók
um afa sinn, Þorstein Borgford, sem
flutti 12 ára með foreldrum sínum,
Sæmundi Jónssyni og Helgu Gísla-
dóttur frá Árdal, skammt frá Hvann-
eyri í Borgarfirði, til Gimli í Manitoba
í Kanada 1886.
„Ég hef orðið margs vísari,“ segir
Brian, sem hefur unnið í rúmt ár við
gagnasöfnun víðs vegar í Kanada.
„Ég geri mér vonir um að fylla í síð-
ustu götin hér á Íslandi,“ heldur hann
áfram og bætir við að þau hjónin hafi
meðal annars farið í dagsferð með
skyldfólki á slóðir forfeðranna í
Borgarfirði og hann hafi eytt drjúg-
um tíma á Þjóðminjasafninu til þess
að kynna sér söguna og setja sig inn í
anda Borgarfjarðar á 19. öld.
Víða minnismerki
Þorsteinn bjó aldrei með foreldr-
unum og systkinum í Kanada heldur
fór strax í burtu til að vinna og sendi
peninga heim. Hann skrifaði ævi-
sögu, sem hefur þó ekki komið fyrir
almenningssjónir, og þegar Brian sá
hana fyrir um tveimur árum kveikti
hún áhuga á að kafa dýpra undir yfir-
borðið. „Það er miklu meiri saga
ósögð,“ segir hann og vísar til þess að
afi sinn hafi komið víða við. Hann hafi
verið stórt nafn í byggingarfram-
kvæmdum í Kanada, verið varafor-
maður öflugs byggingarfyrirtækis og
meðal annars unnið sem múrari og
verkstjóri við byggingu þinghússins í
Winnipeg og margar byggingar
kanadísku járnbrautanna víða um
land. „Þetta er áhugaverð saga en því
miður frétti ég seint af henni.“
Fyrir um tveimur árum kom út
bókin Gil eftir Brian. Hún fjallar um
Gísla, föður hans, sem giftist seint
konu með sex börn. „Ég fæddist þeg-
ar hann var um fertugt og hann talaði
aldrei um íslensku fjölskylduna. Ég
hitti systkini hans en kynntist ekki
börnum þeirra.“ Brian segist í raun
ekki hafa tengst íslenska hlutanum í
sér fyrr en hann hafi séð minningar
afa síns og ekki verið hluti af íslenska
samfélaginu vestra. Frænka hans
hafi tekið þátt í Snorraverkefninu á
Íslandi fyrir nokkrum árum, komið á
fjölskyldumóti í Kanada í fyrra og
mælt með verkefninu. „Við höfðum
aldrei hist fyrr, en þá ákvað ég að
skrifa ævisögu afa og síðan skáldsögu
byggða á lífi hans. Þátttakan í
Snorraverkefninu nú er liður í því.“
Hann bætir við að stefnt sé að því að
ævisagan komi út eftir um ár og
skáldsagan í kjölfarið.
Kanadamaður í efnisleit
Safnar upplýs-
ingum um afa sinn
sem flutti vestur
Ánægð Hjónin Brian Borgford og Rochelle Bos kvöddu Reykjavík með bros á vör og eru nú á Akureyri.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Snorri plús 2015 Hópurinn tekur þátt í verkefninu til mánaðamóta.
Ljósmynd/Ásta Sól Kristjánsdóttir