Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 58
58 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Sum Evrópuríki beita nú örvænting-
arfullum aðferðum við að reyna að
stöðva hratt vaxandi straum farand-
fólks frá Miðausturlöndum og Afr-
íku til álfunnar. Í Þýskalandi, þar
sem búist er við 800 þúsund manns á
þessu ári, bauluðu um 200 æstir and-
stæðingar innflytjenda á Angelu
Merkel kanslara þegar hún heim-
sótti í gær búðir fyrir flóttafólk í
borginni Heidenau.
Þjóðverjar eru klofnir í málinu og
innviðirnir að bresta. Borgarstjór-
inn í Erfurt, Andreas Bausewein, vill
að börn foreldra sem ekki hafa feng-
ið landvist og ekki koma frá stríðs-
löndum eins og Sýrlandi fái ekki
skólavist í Þýskalandi. Einkum er þá
að um ræða foreldra frá Balkan-
ríkjum eins og Albaníu. „Tala barna
á skólaskyldualdri án landvistar-
leyfis er mjög há,“ sagði Bausewein.
„Skólarnir ráða ekki lengur við
vandann.“ Ummæli hans voru víða
fordæmd harkalega, liðsmenn
Græna flokksins minntu á að öll
börn ættu rétt á skólavist.
Margir álitsgjafar segja nú að
stefna ESB og stefnan varðandi far-
andfólk (e. migrants), sem margt
flýr stríð eða vill bara tryggja sér
betri kjör í Evrópu, sé að hrynja.
„Ófyrirleitin manndráp“
Einn af þeim er breski prófess-
orinn Paul Collier sem lengi hefur
ritað um innflytjendamál. Hann fer
hörðum orðum um stefnu ESB. „Ör-
lög bátafólksins eru afleiðing smán-
arlegrar stefnu þar sem rofin hafa
verið öll tengsl milli þess að bjarga
og jafn mikilvægrar siðferðisreglu:
þú skalt ekki freista. Sem stendur
býður ESB Sýrlendingum mögu-
leika á Paradís (að búa í Þýskalandi)
ef þeir bara borga fyrst glæponi
peninga og hætta lífinu. Aðeins 2%
þeirra falla fyrir freistingunni en
óhjákvæmilega drukkna mörg þús-
und þeirra. Þessi stefna er svo
ábyrgðarlaus að hún er siðferðislega
skyldari ófyrirleitnu manndrápi en
göfugri björgun lífs.“
Collier vill að reynt sé að aðstoða
milljónir Sýrlendinga á flótta með
því að útvega þeim vinnu. Hann
nefnir sem dæmi að í Jórdaníu séu
fjölmennar flóttamannabúðir, Za’at-
ari. Hjálparstofnanir annist fólkið
oft ótrúlega vel en það megi ekki
vinna, aðeins þiggja. Þetta dragi
kjark úr öllum, heimilisfaðirinn glati
myndugleika. Jórdanir vilji ekki
leyfa neina samkeppni við innlenda
en Collier segir að ESB gæti boðið
Jórdaníu fjárhagsaðstoð í staðinn
fyrir atvinnuleyfi handa flóttafólk-
inu. Skammt frá Za’atari sé geysi-
stórt en nær mannlaust iðnaðar-
svæði, allir innviðir fyrir hendi. Þar
gætu flóttamennirnir komið upp eig-
in fyrirtækjum og undirbúið nýja
framtíð þegar stríðinu ljúki.
AFP
Örvænting Farandfólk reynir að komast fram hjá lögreglumönnum við borgina Gevgelija á landamærum
Grikklands og Makedóníu á leið sinni til Þýskalands eða annarra auðugra ríkja Evrópusambandsins í gær.
Fái að vinna í Jórdaníu
Sérfræðingur í innflytjendamálum segir „smánarlegt“ að freista nauðstaddra
Sýrlendinga með Paradísarvist í Evrópu ef þeir bara hætti lífi og limum
Ragnarök?
» Yfirmaður flóttamanna-
hjálparinnar dönsku, Andreas
Kamm, spáir ragnarökum.
Lausnin sé ekki að flytja alla
nauðstadda til Evrópu.
» „Það getur ekki verið að
okkur beri skylda til að sundra
eigin samfélagi,“ segir hann.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið,
Pentagon, rannsakar nú hvort æðstu
yfirmenn í hernum hafi „endurbætt“
skýrslur leyniþjónustumanna um ár-
angurinn af hernaðinum gegn Ríki
íslams, IS, í Írak og Sýrlandi, að sögn
New York Times. Ónafngreindir
heimildarmenn sögðu blaðinu frá
rannsókninni.
Rannsóknin hófst þegar borg-
aralegur greinandi sagðist hafa sann-
anir fyrir því að herforingjar breyttu
niðurstöðunum áður en Barack
Obama forseti og aðrir ráðamenn
sæju þær. Samkvæmt reglum um
starfsemi allra 17 leyniþjónustustofn-
ana landsins má ekki brengla með
neinum hætti niðurstöðurnar með til-
liti til viðhorfa þeirra sem nota þær til
að móta stefnu.
Bandaríkjamenn hófu að varpa
sprengjum á stöðvar IS í Írak fyrir
ári en leyniþjónustumenn segja að
hryðjuverkasamtökin hafi ekki orðið
fyrir umtalsverðu tjóni. kjon@mbl.is
Falsar
herinn
skýrslur?
Árangur af
stríði gegn IS
sagður ofmetinn
Stríð Bandarískar þotur yfir Írak.
Embættismenn í Taílandi létu í gær
eyða um tveim tonnum af fílabeini
sem gert hafði verið upptækt. And-
virði varningsins er sagt vera um
þrjár milljónir dollara, eða nær 390
milljónir króna. Veiðiþjófar sem
stunda iðju sína í Afríku nota Taí-
land mikið sem millilið, en varan,
tennur og þá einkum skögultennur
fílsins, er eftirsótt í Kína, Víetnam
og fleiri Austur-Asíulöndum.
„Aðgerðin í dag sýnir að taílenska
stjórnin tekur af meiri alvöru en
áður á ólöglegum villidýradrápum,
sem er afar mikilvægt vegna þess að
Taíland hefur verið ein helsta mið-
stöð hnattrænna viðskipta með
afurðirnar,“ sagði Steven Galster,
framkvæmdastjóri samtakanna
Freeland, sem berjast gegn slíkum
viðskiptum.
Mikil fækkun í Afríku
Talið er að um 20.000 afrískir fílar
hafi verið drepnir árið 2013 til að
komast yfir fílabein en eftir séu í álf-
unni um 50.000 dýr. Þau voru um 1,3
milljónir um 1980. Fílabeinið er eink-
um notað til að smíða listaverk og
skrautgripi af ýmsu tagi, einnig í
handföng á hnífa. Áður var það mikið
notað í píanónótur og billjarðkúlur.
Indverski fíllinn var veiddur svo
mikið að hann er nú í útrýmingar-
hættu og öll viðskipti með tennur
hans eru bönnuð. En leyfð eru tak-
mörkuð viðskipti með tennur úr afr-
ískum fílum. Bent hefur verið á í
Economist og víðar að væru leyfðar
umfangsmeiri, stýrðar veiðar á þeim
mætti nota hagnaðinn til að berjast
gegn veiðiþjófnaði. kjon@mbl.is
Létu eyða ólöglegu fílabeini
AFP
Smygl Taílendingar með fílabein
sem þeir ætla að mala og brenna.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mikil óvissa ríkti á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum í gær og lækkuðu
verðbréf í Kína um tæp 1,3% sem er
þó mun minni lækkun en fyrr í vik-
unni. Vaxtahækkun seðlabankans í
Peking á þriðjudag og aukning pen-
ingamagns virðist því ekki hafa nægt
til að efla aftur trú á hagkerfinu, sem
hefur vaxið hægar síðustu mánuði en
reglan hefur verið síðustu árin.
Veruleg lækkun varð í Bandaríkj-
unum undir lok þriðjudags en mark-
aðir þar réttu síðan verulega úr
kútnum síðdegis í gær. Um sama
leyti fóru markaðir í Evrópu, sem
lækkuðu framan af gærdeginum,
einnig að jafna
sig.
Fréttaskýrandi
BBC, Robert
Peston, segir
ískyggilegt að
vaxtalækkunin á
þriðjudag skyldi
ekki duga til að
róa kínverska
markaði. Æðstu
menn kommúnistaflokksins í Kína
reyna nú ákaft að sjá til þess að efna-
hagsvandinn grafi ekki undan tiltrú
almennings á stjórnvisku Xi Jinpings
forseta og annarra ráðamanna. Fjöl-
miðlum er skipað að fjalla sem
minnst um verðbréfahrunið og nota
alls ekki orð eins og „kreppa“ og
„skellur“. Sumir gera það samt eins
og í framhjáhlaupi þegar þeir segja
frá sveiflum á alþjóðlegum mörkuð-
um. En nokkrir þeirra hafa hins veg-
ar hundsað vilja ráðamanna og jafn-
vel gagnrýnt aðgerðir þeirra
harkalega.
Financial Times segir að orðrómur
sé á kreiki í Kína um að Li Keqiang
forsætisráðherra sé valtur í sessi og
jafnvel sé búið að setja hann af vegna
verðfallsins. Li mælti eindregið með
því að fólk gæti fengið lán til að
kaupa hlutabréf, en sú stefna á veru-
legan þátt í bólumynduninni í kín-
verska hagkerfinu. Honum verður ef
til vill fórnað til að friða þá sem
kenna mistökum ráðamanna um tap-
ið sem margir horfast nú í augu við.
Sveiflur á mörkuðunum
Aftur nokkur verðlækkun í Kína þrátt fyrir vaxtalækkun seðlabankans
Orðrómur um að Li Keqiang forsætisráðherra sé orðinn valtur í sessi
Vextir og skuldabyrði
» Vaxtalækkunin í Kína var sú
fimmta síðan í nóvember. Hún
gerir auðveldara fyrir bankana
að fá lán hjá seðlabankanum
og um leið fyrir fólk að taka
bankalán.
» Ljóst er þó að um leið lækk-
ar gengi gjaldmiðilsins RMB,
sem gerir lánabyrðina erfiðari,
afborganir hækka.
» Skuldabyrði almennings í
Kína hefur aukist geysilega
síðustu árin.
Li Keqiang
Færeysk stjórn-
völd hafa fleygt
liðsmönnum hval-
friðunarsamtak-
anna Sea Shep-
herd burt úr lög-
sögu landsins. Því
er borið við, með
vísan til útlend-
ingalaga, að sam-
tökin hafi truflað
frið og ró í land-
inu. Skip Sea Shepherd, Bob Bark-
er, sigldi á þriðjudag á brott, að sögn
Jyllandsposten.
Sea Shepherd hefur mótmælt
hefðbundnum grindhvalaveiðum
Færeyinga og reynt að trufla veið-
arnar en með litlum árangri. Sam-
tökin hafa áfrýjað brottvísuninni.
Reiði Sea Shepherd beinist ekki
síst gegn dönskum stjórnvöldum
sem hafa sent sérþjálfaða lög-
reglumenn til að aðstoða færeysku
lögregluna við að verja fólk fyrir
æstum hvalfriðunarsinnum.
Talsmenn ferðaþjónustuaðila í
Færeyjum segja að áróður og mynd-
ir Sea Shepherd af blóðugum fjörum
með dauðum og deyjandi hvölum
geti haft slæm áhrif. En veiðin sé
hluti af menningararfi landsmanna.
Hins vegar verði að sjá til þess að
hún sé sjálfbær og fylgt sé reglum
um meðferð dýranna. kjon@mbl.is
Ráku Sea
Shepherd
úr landi
Veiði Grindadráp
í Færeyjum.
Samtökin trufluðu
grindhvalaveiði