Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 83

Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 83
MINNINGAR 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 ✝ Vigfús Árna-son fæddist í Reykjavík 4. febr- úar 1949. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. ágúst. Foreldrar hans eru Árni Frið- jónsson gjaldkeri frá Langhúsum úr Fljótum, f. 1927, og Helga Ágústa Hjálmarsdóttir, aðalgjaldkeri Ríkisspítala, frá Vest- mannaeyjum, f. 1927, d. 2004. Bróðir Vigfúsar er Hjálmar Árnason, f. 1953, kona hans Berglind Einarsdóttir, f. 17. maí 1958. Vigfús kvæntist Ólöfu G. Björnsdóttur, hjúkrunarfræð- ingi og ljósmóður, árið 1970. Þau skildu 2004. Foreldrar Ólaf- ar eru Björn Sveinbjörnsson, f. verkfræðingur, f. 18. apríl 1984, gift Andra Gunnarssyni við- skiptafræðingi. Börn þeirra eru: a) Sóley, f. 2009, b) Katla, f. 2012. Vigfús ólst upp á Siglufirði og starfaði ungur á síldarplani föð- ur síns og frænda. Hann flutti á unglingsárum til Reykjavíkur. Eftir nám í Hlíðadalsskóla og Austurbæjarskóla hóf hann störf hjá Gunnari R. Magnússyni endurskoðanda. Stuttu síðar stofnaði hann eigin bókhalds- skrifstofu, Gátun hf., og rak til 2013. Vigfús rak og stofnaði fleiri fyrirtæki, m.a. Griffil rit- og leikfangaverslun, Silfurborg og Vefarann. Ólöf og Vigfús bjuggu lengst af í Heiðargerði í Reykjavík en síðustu ár hefur Vigfús búið í Seljalandi í Foss- vogi. Vigfús átti sumarhúsið Jaðar í Hrísey hvar hann undi sér m.a. á kajak og að dorga. Útför Vigfúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 27. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 11. 30. desember 1925, d. 23. júlí 1985, verkfræðingur og eigandi Ofnasmiðj- unnar, og Jakobína Finnbogadóttir, f. 6. desember 1928, skrifstofumaður. Börn þeirra eru 1) Þorbjörg Helga, námssálfræðingur, f. 5. september 1972, gift Hallbirni Karlssyni verkfræðingi. Börn þeirra eru: a) Karl Ólafur, f. 1995, b) Atli Freyr, f. 2000 c) Ólöf Stefanía, f. 2009, d) Embla Margrét, f. 2012. 2) Árni Björn, tölvunarfræðingur, f. 14. febr- úar 1978, kvæntur Jóhönnu Kristrúnu Birgisdóttur lög- manni. Börn þeirra eru: a) Benedikt Orri, f. 2008, b) Arn- aldur Darri, f. 2010. 3) Heiðbjört Elsku pabbi, það er svo ótrúlega vont að kveðja. Ég á eftir að sakna þín, hreinskilni þinnar, áhugans á krökkunum og bröltinu mínu í vinnu. Um leið og ég kveð erfið- leikana hjá þér og veikindin kveð ég svo margt gott, frum- kvöðulinn, púkann í þér og barn- gæskuna. Takk fyrir allt, kæri pabbi. Frá vitund minni til vara þinna er veglaust haf. En draumur minn glóði í dulkvikri báru, meðan djúpið svaf. Og falin sorg mín nær fundi þínum eins og firðblátt haf. (Steinn Steinarr) Þín, Þorbjörg Helga. Elsku afi minn, takk fyrir allar stundirnar okkar. Þú varst svo góður vinur minn, alltaf svo góð- ur við mig og áhugasamur um hvað ég var að gera. Alltaf til í að fara á bíó, og sérstaklega hélstu upp á Hobbit og ævintýri Tolki- ens. Það var erfitt fyrir okkur að sjá þig lasinn því við vissum að þú værir innst inni mikill gaur. Við eigum öll eftir að sakna þín. Þinn, Atli Freyr. Ég kynntist Fúsa árið 1993 þegar við elsta dóttir hans, Þor- björg Helga, byrjuðum saman. Frá fyrsta degi tóku hann og Ólöf mér opnum örmum. Glæsilega einbýlishúsið þeirra í Heiðar- gerðinu varð mitt annað heimili og þar gat maður gist þegar mað- ur vildi og borðað á sig gat oft í viku. Ég grínaðist með það þá að ég hefði byrjað með Þorbjörgu þar sem pabbi hennar væri verk- smiðjueigandi, en Fúsi, sem dag frá degi fékkst við bókhald og endurskoðun, var alltaf með putt- ana í einhverju fleiru en bókhaldi. Eitt af þessum hliðarverkefnum var einmitt fyrirtæki úti á Granda sem hét Silfurborg og reykti sil- ung og lax. Þetta var myndar- legur rekstur í húsnæði sem var líkari verksmiðju en hefðbundn- um skrifstofum. Ég man vel þeg- ar ég kom þarna inn fyrst og skildi ekki alveg tengslin á milli endurskoðunar og fiskvinnslu- tækjanna þarna inni. Aðrir hlutir sem Fúsi snerti í gegnum árin voru stofnun dótabúðar, innflutn- ingur ýmiss konar og rekstur og kaup á fasteignum svo fátt eitt sé nefnt. Fæst af þessu lýsir áhættufælnum endurskoðanda þótt endurskoðun og bókhald hafi eflaust hjálpað Fúsa í þessu bralli öllu saman. Umfram allt var Fúsi alltaf hjartagóður og yndislegur við okkur. Maður gat leitað til hans með hvaðeina, hvenær sem er. Fúsi varð afi Fúsi árið 1995 þegar elsti sonur okkar Þorbjargar, Karl Ólafur, fæddist en barna- börnin eru núna orðin átta tals- ins. Það var mjög mikið samneyti milli okkar og Ólafar og Fúsa, bæði um jól og aðrar stórhátíðir, en líka nánast hvenær sem er við ekki nein sérstök tilefni. Við átt- um saman frábær jól, m.a. á Flór- ída, og Fúsi heimsótti okkur til Bandaríkjanna þegar við vorum þar á ferðalagi. Við gátum alltaf gist í litla húsinu hans í Hrísey þar sem við áttum margar góðar stundir fjölskyldan, bæði með Fúsa afa og án. Fúsi lét nánast aldrei sjá sig í jakkafötum en var hrifnari af köflóttum skyrtum, slaufum og axlaböndum við öll til- efni. Við eigum þannig margar góðar minningar um Fúsa sem við getum huggað okkur við. Það er ótrúleg synd að Fúsi skuli nú vera fallinn frá, einungis 66 ára gamall, og mann svíður að hafa ekki getað gert meira til að rétta honum hjálparhönd í erfið- leikum hans. Hann hafði verið veikur síðustu árin en einhvern veginn alltaf náð að koma sér í gang aftur á ótrúlegan hátt. Hans verður sárt saknað af litlu fjöl- skyldunni í Bjarmalandinu. Hallbjörn. Tengdapabba kynntist ég fljót- lega eftir að ég og Heiðbjört, heimasætan í Heiðargerðinu, fór- um að vera saman fyrir hartnær 13 árum. Hann kom mér mjög sterkt fyrir sjónir. Alvörugefinn og dökkur yfirlitum, sagði ekki margt en lét ekkert framhjá sér fara í umræðum annarra í kring- um sig. Ég sá strax að hann var mjög hjartahlýr og var ekki sama um sitt fólk. Alltaf var hægt að vita hvar maður hafði Fúsa því hann lá ekki á skoðunum sínum. Það er ótrúlega góður eiginleiki og hef ég reynt að temja mér það í mínu fari. Hann var ávallt of- arlega í huga okkar hjóna og hefðum við kosið að samveru- stundirnar hefðu orðið fleiri. En ekki verður við allt ráðið en ég er þess fullviss að Fúsi vissi að allir í hans nærumhverfi elskuðu hann og vildu honum allt hið besta. Elsku tengdafaðir, nú skiljast leiðir að í bili og munum við minn- ast þín af mikilli ást og hlýju. Hvíl í friði, Andri tengdasonur. Vigfúsi Árnasyni, Fúsa, kynntist ég þegar ég og Árni Björn sonur hans urðum kær- ustupar í menntaskóla. Allt frá fyrstu tíð kom Fúsi mér fyrir sjónir sem maður sem fylgdi eig- in stefnu í lífinu og kom til dyr- anna eins og hann var klæddur. Í því samhengi langar mig, áður en lengra er haldið, að ræða að- eins um klæðaburð Fúsa. Ég hef ekki kynnst neinum sem hafði jafnmikla aðdáun á axlaböndum og hann Fúsi hafði. Axlabönd voru nokkurs konar staðal- búnaður, jafnvel tískustefna, sem skartað var við flest tæki- færi og svei mér þá, stundum með belti. En það voru ekki ein- ungis axlaböndin sem voru Fúsa hugleikin. Þegar ég hugsa betur um það voru sum áhugamála hans þess eðlis að þau báru ekki vott um að þar færi maður með persónueinkenni þess sem geng- ur bæði með belti og axlabönd heldur fremur að þar færi maður sem væri bæði áræðinn og æv- intýragjarn. Sem dæmi er til- tölulega stutt síðan Fúsi fór á svifflugnámskeið, sem hann hafði lengi langað til að gera. Eins stundaði hann róður á kaj- ak um árabil og löngu áður en slíkt tíðkaðist eins og nú er. Sem betur fer held ég að róðurinn hafi almennt gengið stórslysalaust fyrir sig. Í eitt sinn man ég þó eftir að hafa heyrt af því sögu að komið hafi babb í bátinn og Fúsa hafi rekið út á sjó við Hrísey, þangað sem hann var svo sóttur. Við það tækifæri spurði ég Fúsa hvað hann hefði gert þegar hann áttaði sig á erfiðleikum sínum við að snúa til baka að landi, og fékk efnislega svar á þá leið að hann hefði bara beðið eftir því að ein- hver kæmi. Nokkuð æðrulaus af- staða verð ég að segja. Það er sárt að kveðja ástvini sína. Heimspekingurinn Sókrat- es komst svo að orði rétt fyrir dauða sinn: „…nú er mál komið, að vér göngum héðan, ég til þess að deyja, en þér til þess að lifa. Hvorir okkar fari betri för, er öll- um hulið nema guðinum einum.“ Hver veit nema þeir látnu dvelji eftir allt saman á betri stað. Elsku Árni minn, Heiðbjört og Þorbjörg. Eitt risastórt faðm- lag til ykkar. Allt það góða sem pabbi ykkar stóð fyrir lifir áfram í ykkur. Ástarkveðja, Jóhanna Kristrún. Vigfús Árnason ✝ Jón Guð-mundur Mar- teinsson fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9. nóv- ember 1981. Hann lést á heimili sínu 26. júlí 2015. Foreldrar hans voru Marteinn Ólafsson, f. 4. jan- úar 1959 og Sig- ríður Ágústa Jóns- dóttir, f. 23. ágúst 1961, d. 10. október 2012. Systkini Jóns eru Þórdís Marteins- dóttir, f. 16. október 1980. Hafsteinn Al- exander Marteins- son, f. 3. nóvember 1986 og Valgeir Elís Marteinsson, f. 22. ágúst 1988. Útför Jóns hefur farið fram í kyrrþey. Nafni minn, nú þegar þú hefur yfirgefið þessa jarðvist koma liðnar minningar upp. Þú varst mjög oft hjá okkur ömmu í sum- arbústaðnum okkar ásamt systk- inum þínum og við amma eigum margar kvikmyndir af ykkur þar, á löngum tíma, myndir sem ég tók. Alltaf varst þú boðinn og búinn að hjálpa okkur þegar við vorum orðin gömul, og ekki vantaði þig kraftana. Þú varst líka mjög lag- tækur smiður og starfaðir meðal annars við það. Einnig varst þú við vopnaleit á Keflavíkur-flug- velli, og nú síðast varst þú starfs- maður í sundlaug Sandgerðis. Þú áttir öll árin heima í Sandgerði og fæddist á Sjúkrahúsi Suðurnesja, á fæðingardeildinni þar. Þú áttir dreng, Emil Andra, f. 6.1 2013, með Berglindi Ír Krist- jánsdóttur og dóttur, Helenu Ósk, f. 13.8 2013, með Berglindi Markúsardóttur og ég hef ekki séð betri og nánari föður en þú varst, Nonni minn, og er ég nú orðinn ansi gamall maður.Nú hafa litlu börnin þín misst mikið. Megir þú nú vera á Guðs vegum, þess óska afi þinn og amma. Jón Guðmundur Bergsson og Guðrún B. Björnsdóttir. Jón Guðmundur Marteinsson Elsku mamma, tengdamamma og amma, það er sárt að vita að þú sért farin og við sjáumst ekki framar. En við munum ætíð hafa þig í minningunni um þann tíma sem við áttum saman. Elsku mamma, megi Guðs englar vaka yfir þér og breiða Sigurborg Einarsdóttir ✝ Sigurborg Ein-arsdóttir fædd- ist 4. janúar 1930 í Reykjavík. Hún lést 13. ágúst 2015 á Landspítalanum. Útför Sigurborgar fór fram frá Hjalla- kirkju í Kópavogi þann 25. ágúst 2015. vængi sína yfir þig. Okkur langar að kveðja þig með þessu fallega versi. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn sonur, Theodór Helgi, Jenný, Theodór Páll og Benedikt. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, PÁLL ÞORSTEINSSON, hjúkrunarheimilinu Eiri, lést 19. ágúst á Landspítalanum. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. ágúst kl. 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóði barna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Vigdís Pálsdóttir, Áslaug K. Pálsdóttir, Þorsteinn Pálsson, Kristín Árnadóttir, Páll Á. Pálsson, Sigríður H. Þorsteinsdóttir, Gylfi Þór Pálsson, Grisell Cabero Pálsson, Þuríður Vilhjálmsdóttir, Vigfús Ásgeirsson. Okkar ástkæri JÓNATAN EINARSSON, fv. framkvæmdastjóri frá Bolungarvík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 17. ágúst. Minningarathöfn verður haldin í Háteigskirkju fimmtudaginn 27. ágúst kl. 15. Jarðsett verður frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 29. ágúst kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Orgelsjóð Hólskirkju í Bolungarvík, rnr. 1176-18-911908, kt. 630169-5269. . Sigrún Óskarsdóttir, Einar Jónatansson, Guðrún B. Magnúsdóttir, Ester Jónatansdóttir, Guðmundur Ólafsson, Kristján Jónatansson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Elías Jónatansson, Kristín G. Gunnarsdóttir, Heimir Salvar Jónatansson, Karl Garðarsson, Óskar Örn Garðarsson, Harpa Norðdahl, Sigríður Anna Garðarsdóttir, Þórarinn Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur móðurbróðir og afi, JÓN PÁLL BJARNASON gítarleikari, lést 16. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 28. ágúst kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Ása St. Atladóttir, Sveinn Guðmundsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, RANNVEIGAR ÓLAFSDÓTTUR, Lækjasmára 8. Sérstakar þakkir til starfsfólks Karitas og líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir frábæra umönnun. . Guðjón Örn Kristjánsson, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Stefán Þórisson, Ólafur Jón Guðjónsson, Eyrún Ásta Bergsdóttir, Katrín Guðjónsdóttir, Erla Björk Guðjónsdóttir, Gunnar Ólafsson, Örn Már Guðjónsson, Sigrún Svava Gísladóttir og fjölskyldur þeirra. Það er nú ekki langt síðan ég og þú áttum góðar stundir á þessu ári. Ég náði að plata þig til að kaupa þér nýja tölvu og sagðist ætla að hjálpa þér með það. Var ekki lengi að átta mig á því í hvað ég var bú- inn að koma mér því hann afi Ásgeir Már Valdimarsson ✝ Ásgeir MárValdimarsson fæddist 30. október 1942. Hann lést 15. ágúst 2015. Útför Ásgeirs Más var gerð frá Neskirkju 21. ágúst 2015. minn er eins og hann er og þeir sem þekkja hann best vita um hvað ég er að tala. Áður en ég vissi af var ég nánast fluttur til þín og átti æð- islegan tíma með þér. Núna sit ég og skrifa þessa minn- ingargrein um þig og vildi að ég gæti átt eina góða stund með þér eins og við áttum áður. Ég á aldrei eftir að gleyma þér. Þinn afastrákur, Kristján Þór.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.