Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Blaðsíða 14
12
Húsnæðisskýrslur 1950
C. íbúðir.
Dwelling units.
1. Tala íbúða.
Number of dwelling units.
Við manntalið 1950 töldust íbúðir alls svo sem hér segir. Til samanburðar
eru settar heildartölurnar frá 1940.
Ibúðir Ibúöir Samtals Samtals
með eldhúsi án eldhúss 1950 1940
with kitchen wilthout kitchen
Reykjavík 12 324 499 12 823 7 723
Kaupstaðir . . .. 7 014 171 7185 4192
Kauptún 3 562 44 3 606 3 331
Bæir alls urbcin . . . . 22 900 714 23 614 15 246
Sveitir alls rurál . . . . 7 241 203 7 444 7 811
Allt landið Iceland .... . . .. 30 141 917 31 058 23 057
Frá 1940 til 1950 hefur íbúðunum á öllu landinu fjölgað um 35%, þar sem
tala íveruhúsa hefur á sama tíma ekki hækkað nema um 29%. Sýnir það, að
húsin hafa stækkað, einbýlishúsum ekki fjölgað eins mikið og stærri húsum
með fleiri íbúðum. Það gerir erfiðan samanburð á fjölgun íbúða frá 1940 til
1950 í kaupstöðum og kauptúnum, að þessar heildir ná ekki að öllu leyti til
sömu staða bæði árin. Sum kauptún hafa á áratugnum klofnað út úr sveit-
unum, en önnur horfið úr tölu kauptúna yfir í tölu kaupstaðanna.
Þegar talað er um íbúðir í húsum, er ævinlega átt við eitt eða fleiri íbúðar-
herbergi að viðbættu eldhúsi. Við manntalið 1950 komu þó líka fram nokkrar
íbúðir án eldhúss. í slíkum íbúðum getur verið komið fyrir einhverjum suðu-
tækjum í stað eldhúss, svo að matbúa megi þar fyrir íbúana, en hitt mun þó
algengara, að svo sé ekki, heldur sé hér um óeiginlegar íbúðir að ræða, sem
mynduðust við úrvinnslu manntalsins út úr vandræðum. Útleigð herbergi til
einhleypinga voru yfirleitt talin til þeirra íbúða, sem þau voru leigð frá, en
einstök herbergi, sem ekki voru leigð út frá eða heyrðu til neinni sérstakri
íbúð í húsinu — oft í kjallara eða risi — voru talin sem sérstök íbúð, nema
fleiri slík væru í sama húsi, þá var þeim öllum slegið saman í eina íbúð.
Hátt upp í helming þessara íbúða hefur aðeins verið 1 herbergi. Slíkar íbúðir
voru alls um 3% af íbúðatölunni á landinu. Eru þær auðvitað ekki sambæri-
legar við venjulegar íbúðir í húsum. Mest var um þær í Reykjavík (3,9% af
íbúðatölunni), enda langmest þar um útleigt einstaklingshúsnæði.
2. Þægindi íbúða.
Facilities of dwellings.
3. yfirlit sýnir, hve ýmiss konar þægindi voru almenn í íbúðum í bæjum
og sveitum samkvæmt manntalsskýrslunum 1950.
Það er sameiginlegt um öll þessi þægindi, að þau fara vaxandi með þétt-
býlinu, eru fátíðust í sveitunum, nokkru algengari í kauptúnunum, enn al-
gengari í kaupstöðunum og algengust í höfuðstaðnum.