Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Blaðsíða 9

Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Blaðsíða 9
Yfirlit. Summary. A. Inngangsorð. Introductory remarks. Við allsherjarmanntalið 1. desember 1950 var, auk upplýsinga um fólkið sjálft, einnig leitað nokkurra upplýsinga um húsnæði þess. Var sérstakt eyðu- blað fyrir hvert hús, þar sem tilgreina skyldi alla íbúa þess, ásamt þeim upp- lýsingum, sem um þá var krafizt, en á bakhlið eyðublaðsins átti að setja upp- lýsingar um húsið sjálft og íbúðirnar í því, og voru þar leiðbeiningar um, hvernig það skyldi gert. Efni þess hluta manntalsskýrslueyðublaðsins er tekið upp sem viðauki aftan við töfludeild þessa heftis. Má þar sjá, bæði hvað um hefur verið spurt og hvemig það hefur verið skýrgreint. Þessar húsnæðisupplýsingar voru færðar á sérstök vélspjöld og úr þeim unnið með skýrsluvélum. En vegna þess hve önnur stærri verkefni hafa hlaðizt á vélarnar, og þá einkum stofnsetning Þjóðskrárinnar, hafa þessar skýrslur orðið að bíða úrvinnslu alllengi. Við úrvinnsluna hefur verið leitazt við að veita ýtarlegar upplýsingar um húsnæði í einstökum kaupstöðum og kaup- túnum, svo og sýslum utan þeirra. Kauptún með yfir 300 íbúa hafa verið tekin sérstaklega, en minni kauptún og þorp hafa verið tekin með sveitum. Um sumt hafa þó verið látnar nægja upplýsingar fyrir hverja þessara heilda: Reykjavík, aðra kaupstaði, (sem til hægðarauka eru kallaðir kaupstaðir, án takmörkunar), kauptún (með yfir 300 íbúa) og sveitir. Þessar heildir má telja mismunandi stig þéttbýlis hér á landi, og þetta yfirlit hefur að mestu verið miðað við þá skiptingu. I töflu X er útdráttur úr húsnæðisskýrslum 1940, sem safnað var með manntalinu það ár og ekki hafa verið áður birtar. Má að sumu leyti nota þær til samanburðar við húsnæðisskýrslurnar 1950. Húsnæðisskýrslum hafði einnig áður verið safnað um leið og manntal var tekið hér á landi. Var það gert í fyrsta sinn 1910, en þá aðeins spurt um byggingarefni og að nokkru leyti um byggingarlag íbúðarhúsanna, en 1920 og 1930 var einnig spurt um íbúðimar í húsunum, þó aðeins í kaupstöðum og kauptúnum, en ekki í sveitum. Auk þess var gerð sérstök húsnæðisrannsókn í Reykjavík 1928 að tilhlutan bæjar- stjórnarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hagskýrslur um húsnæðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um húsnæðismál
https://timarit.is/publication/1176

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.