Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Blaðsíða 21
Húsnæðisskýrslur 1950
19
sýslu utan þeirra um tölu íbúða í hverjum stærðarflokki og mannfjölda í
þeim, svo að reikna má út fyrir alla þessa staði, hve margir menn koma á
herbergi í hverjum stærðarflokki og öllum íbúðum samanlagt.
7. Húsaleiga.
Rent.
Við manntalið 1950 var ekki talið gerlegt að safna nothæfum upplýsingum
um húsaleigu, vegna þess hve mikið væri um „svartan" húsaleigumarkað (fyr-
irframgreiðslur og önnur baktjaldaákvæði um húsaleiguna), og var því þess
vegna algerlega sleppt. En við manntalið 1940 var safnað upplýsingum um
húsaleigu fyrir útleigðar íbúðir í kaupstöðum og kauptúnum með yfir 300
íbúa, en ekki í sveitum. Nothæfar upplýsingar fengust um 87% af leigu-
íbúðum á þeim stöðum, þar sem skýrslum var safnað um þetta. Þó að skýrsl-
ur þessar séu nú orðnar algerlega úreltar, þykir samt rétt að birta þær. í
töflu X er tilgreind meðalmánaðarleiga fyrir algengustu íbúðarstærðimar,
2—5 herbergi (eða 1—4 herbergi auk eldhúss). Fyrir utan þessar íbúðar-
stærðir féllu aðeins 7% þeirra íbúða, sem húsaleiguupplýsingar fengust um,
og er þeim alveg sleppt. Meðalleigan fyrir þær íbúðir, sem teknar eru með
(2—5 herbergi), er fyrst sýnd sem meðalleiga fyrir allar íbúðirnar á hverjum
stað, en síðan, til þess að auðvelda samanburð, sem meðalleiga, þegar reiknað
er með sömu skiptingu íbúðanna á hverjum stað sem í Reykjavík, og loks
er leigan borin saman með vísitölum, þar sem leigan í Reykjavík er látin
jafngilda 100.
D. Heimili.
Households.
1. Tala heimila.
Number of households.
Venjulega býr aðeins ein fjölskylda í hverri íbúð, en stundum kemur þó
fyrir, að í sömu íbúð búi tvær eða jafnvel fleiri fjölskyldur, og nota þær þá
eldhús íbúðarinnar í sameiningu. Auk þess leigja fjölskyldurnar oft einhleyp-
um mönnum utan fjölskyldunnar einstök herbergi úr íbúðinni, og ef þeir
hafa ekki jafnframt fæði hjá fjölskyldunni, heldur hafa það annars staðar
eða hafa mat hjá sjálfum sér, eru þeir taldir sérstakt heimili, hver einstakur
leigjandi sér, eða fleiri, ef þeir búa saman.
Á 8. yfirliti má sjá, að af þeim 30141 íbúðum, sem taldar hafa verið með
eldhúsi, voru 28249 eða 94% með eldhúsafnotum fyrir einungis eitt heimili
(fjölskyldu- eða einstaklingsheimili). Þær 1892 íbúðir, sem eftir voru, hafa
hins vegar verið með sameiginlegum eldhúsafnotum fyrir tvö og einstaka
jafnvel fyrir fleiri heimili. En þrátt fyrir það hafa fjölskylduheimilin verið
heldur færri en öll íbúðatalan. Stafar það bæði af því, að af 917 íbúðum án
eldhúss voru aðeins 269 eða 27% notaðar af fjölskylduheimilum, en afgangur-
inn, 648 íbúðir, hefur verið notaður af einstaklingum, og svo af því, að í all-
mörgum íbúðum með eldhúsi hafa verið einstaklingsheimili. Vera má, að sum