Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Blaðsíða 19
Húsnæðisskýrslur 1950
17
bergi, en á hverja leiguíbúð 3,85 herbergi. Algengasta herbergjatala í eigu-
íbúðum var 4 herbergi (um y3 íbúða), en í leiguíbúðum 3 herbergi (rúml.
y3 íbúða). í 2 eða 3 herbergjum bjó nál. helmingur íbúa leiguíbúða, en aðeins
tæpl. fimmtungur íbúa eiguíbúða. í töflu IV eru upplýsingar um herbergja-
fjölda íbúðanna í hverjum kaupstað og hverju kauptúni og í hverri sýslu
utan þeirra.
í töflu V eru tilsvarandi upplýsingar um herbergjaf jölda í kjallaraíbúðum,
risíbúðum, braggaíbúðum og öðru bráðabirgðahúsnæði, bæði á landinu í heild
og sérstaklega í Reykjavík, kaupstöðum, kauptúnum og sveitum. En þessar
íbúðir eru einnig innifaldar í íbúðatölunni í töflu IV. Þessar íbúðir eru yfir-
leitt töluvert minni en íbúðir almennt. 1950 var meðalstærð risíbúðanna á
öllu landinu 3,75 herbergi, kjallaraíbúða 3,21 herbergi og braggaíbúðanna
einnig 3,21 herbergi.
6. íbúatala íbúða og þéttseta þeirra.
Number of occupants and density of habitation.
Mannfjöldinn, sem skýrslur þessar ná til, var alls sem hér segir:
Heykjavik .......
Kaupstaðir .......... 31026
Kauptún ........... 15 824
Sveitir ........... 37161
í íbúðum in dwelling units
með eldhúsi án eldhúss Samtals
wíth kitchen without kitchen total
53 672 1147 54 819
315 31341
79 15 903
577 37 738
Menn á Ibúð persons per. dwell'.ng unlt
í íbÚðum Qotntalo
með eldhúsl án eldhúss
4,36 2,30 4,27
4,42 1,84 4,36
4,44 1,80 4,41
5,13 2,84 5,07
Allt landið 1950 ... 137 683
—1940 ............ 118396
2118
644
139 801
119 040
4,57
5,18
2,31
2,93
4,50
5,16
Mannfjöldi sá, sem hér er talinn 1950, er rúml. 97% af öllum mannfjöld-
anum við manntalið þá. Þeir, sem hér koma ekki fram, hafa ekki búið í
venjulegum íbúðum, heldur í ýmiss konar stofnunum (elliheimilum, sjúkra-
húsum, skólum o. fl.) eða jafnvel verið fjarverandi erlendis.
Þess má geta, að heimilisfólk er talið á annan hátt í húsnæðisskýrslunum,
þar sem miðað er við íbúðirnar, heldur en í heimilisskýrslum manntalsins,
þar sem aðallega er miðað við fjölskylduböndin. í manntalsskýrslunum eru
menn taldir þar sem þeir eiga heimili, enda þótt þeir séu fjarverandi frá því,
þegar manntalið fer fram, en í húsnæðisskýrslunum eru menn taldir í þeirri
íbúð, þar sem þeir dvelja að staðaldri um manntalsleytið, t. d. við nám
eða atvinnu, enda þótt þeir eigi heima annars staðar. Hins vegar eru menn
ekki taldir í þeirri íbúð, þar sem þeir kunna að vera staddir á manntalsdag-
inn, ef dvölin þar er aðeins í snöggu bili, svo sem á ferðalagi. Það er því
viðbúið, að íbúatala íbúðanna komi ekki heim við tölu heimilisfólks samkvæmt
manntalsskýrslunum, enda eru þessar tvennar tölur teknar upp óháðar hvor
annarri.
Árið 1940 var meðalmannfjöldi á íbúð töluvert hærri heldur en 1950 (5,16
á móti 4,50). Þar sem meðalstærð íbúða hefur samkvæmt því, sem áður segir,
aukizt á þessu tímabili, þá sýnir þetta hvort tveggja, að rýmra hefur orðið
um fólkið í íbúðunum. Þetta mætti orða þannig, að íbúðirnar væru ekki eins
þéttsetnar af fólki og áður eða að þéttseta þeirra hefði minnkað. Annars er
3