Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þróunarfélagið Landstólpar telur að
bætur hljóti að koma á móti þeim
kostnaði sem hlotist hefur af skyndi-
friðun Minjastofnunar á hafnargarði
við Austurbakka í Reykjavík. Reisa
á fjölda íbúða og verslunarhúsnæði á
þessum eftirsótta reit í borginni.
Gísli Steinar Gíslason, stjórnar-
formaður Landstólpa þróunarfélags,
segir uppbyggingu á reitnum hafa
tafist um að lágmarki þrjá mánuði.
Fulltrúar Landstólpa hafa verið í
viðræðum við Minjastofnun eftir að
hafnargarðarnir fundust við jarð-
vegsvinnu á reitnum í júní.
„Við hófum strax viðræður við
Minjastofnun en síðan urðu sumarfrí
hjá stofnuninni til tafar. Starfsmenn
Minjastofnunar héldu því fram að
veggirnir væru báðir yfir 100 ára
gamlir. Svo kom í ljós að annar vegg-
urinn var mun yngri og þá var beitt
skyndifriðun. Þetta hefur valdið töf-
um og þar af leiðandi tjóni.“
Getur sett verkið í uppnám
Yngri veggurinn er nær Geirsgötu
en sá eldri. Gísli Steinar segir mun
auðveldara að rúma eldri vegginn
innan fyrirhugaðs verkefnis en þann
yngri. Sá eldri sé mun minni og geti
fallið betur inn í bílakjallara. Yngri
veggurinn sé hins vegar það stór að
hann rúmist ekki með góðu móti inn-
an bílakjallarans, sama í hvaða formi
hann verði varðveittur. Verði sá
yngri friðaður setji það byggingu
kjallarans í uppnám. Þar sé gert ráð
fyrir 119 bílastæðum fyrir íbúðir og
verslanir. Slíkri ákvörðun fylgi því
mikið óhagræði.
„Við ætluðum að vera byrjaðir að
byggja um þetta leyti. Heildarverð-
mæti verkefnisins er um tíu millj-
arðar króna. Þetta er alvarlegt mál.
Það hefur þegar orðið töluvert
tjón og einhver hlýtur að þurfa að
bera skaðann af því tjóni,“ segir Gísli
Steinar og svarar því til að of
snemmt sé að fara að ræða um
skaðabætur í þessu efni.
Minjastofnun krafðist skyndifrið-
unar á yngri hafnargarðinum hinn
11. september sl. og hefur sex vikur
til að skila forsætisráðherra áliti um
hvort friðlýsa eigi garðinn.
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, bendir á
að það vanti talsvert upp á að yngri
hafnargarðurinn sé 100 ára. „Hann
er í raun byggður til bráðabirgða því
það er síðan mokað yfir hann 15 ár-
um síðar,“ segir Hjálmar.
Munu krefjast bóta vegna tafa
Landstólpar telja að bætur hljóti að koma til vegna tafa á uppbyggingu félagsins í hjarta Reykjavíkur
Framkvæmdir við Austurhöfn hafa tafist um minnst þrjá mánuði 10 milljarða króna verkefni á ís
Morgunblaðið/Golli
Steinhlaðinn Yngri hafnargarðurinn er nær á myndinni en sá eldri. Eins og
myndin sýnir myndi sá yngri ganga þvert yfir fyrirhugaðan bílakjallara.
Fulltrúi frá Ægi sjávarfangi ehf. kynnir þorsk-
lifur fyrir stúlkum sem virðist skemmt. Var
kynningin hluti af Degi þorsksins sem haldinn
var í Sjávarklasanum í gær. Á honum kynnti
fjöldi íslenskra fyrirtækja afurðir sem fram-
leiddar eru úr þorski hér á landi og þá tækni sem
þróuð hefur verið til að hámarka nýtingu og
gæði. Gestir smökkuðu m.a. á ýmsum matvælum
og kynntust frumkvöðlum í ólíkum geirum.
Frumkvöðlar kynntu afurðir unnar úr þorski í Sjávarklasanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stúlkum skemmt á Degi þorsksins
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Tunglsteini sem síðustu misserin hef-
ur verið til sýnis í Könnunarsafninu á
Húsavík var skilað í gær. Stein þenn-
an fluttu tunglfarar Apollo 17 til jarð-
ar í desember árið 1972 og voru slíkir
steinar gefnir til ýmissa þjóða, svo
sem hinnar íslensku. Steinninn var á
sínum tíma falinn Náttúrugripasafni
Íslands til varðveislu, þar sem hann
hefur verið síðan og lengst af í
geymslu. Í fyrra fékkst hann svo lán-
aður til Könnunarsafnsins á Húsavík,
en þar eru geim-
ferðum og ýmsum
landafundum
gerð skil.
Starfsmenn
Náttúrufræði-
stofnunar Íslands
komu í gær til
Húsavíkur með
beinagrind steypi-
reyðar sem rak á
land á Skaga
2010. Hjá Náttúruminjasafni Íslands
var einnig áhugi fyrir því að fá hval-
beinin, en það var ákvörðun mennta-
málaráðuneytis að þau skyldu fara
norður og vera varðveitt í Hvalasafn-
inu á Húsavík.
Samningur ekki framlengdur
Ákvörðun um að beinin af hvalnum
á Skaga skyldu í Hvalasafnið á Húsa-
vík var kynnt 26. ágúst sl. og skv.
heimildum Morgunblaðsins barst Ör-
lygi Hnefli Örlygssyni hjá Könnunar-
safninu tilkynning strax næsta dag
um að samningur um lán á tungl-
steininum yrði ekki framlengdur. Ör-
yggismálum mun þar hafa verið borið
við. Og eftir að hafa skilað hvalbein-
unum á sinn stað í gær komu sendi-
menn Náttúrufræðistofnunar Íslands
svo við í Könnunarsafninu, tóku
steininn og höfðu með sér suður.
Komu með bein og fóru með stein
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Flutningar Hvalbeinunum var komið fyrir á sínum stað á Húsavík í gær.
Örlygur Hnefill
Örlygsson
Tunglsteinninn á Húsavík sóttur og
fluttur aftur suður til Reykjavíkur
Indefence-hópurinn hefur sent Má
Guðmundssyni seðlabankastjóra
bréf þar sem kallað er eftir upplýs-
ingum um þau
stöðugleikaskil-
yrði sem tilkynnt
var um samhliða
kynningu stjórn-
valda á stöðug-
leikaskattinum í
júní. Er bent á
það að ferlið hafi
átt að vera opið
og gagnsætt en
þremur mán-
uðum síðar hafi ekki komið fram
hvað felist í skilyrðunum.
Óska bréfritarar eftir að birt
verði tilboð slitabúa föllnu bank-
anna um stöðugleikaframlög og
hvernig þau uppfylli stöðugleika-
skilyrðin, áhrif stöðugleikaframlag-
anna á greiðslujöfnuð þjóðarinnar
og endurmat á stöðugleikaskilyrð-
unum með tilliti til þeirrar áhættu
sem Ísland búi við.
Davíð Blöndal, einn bréfritara,
segir ljóst að Seðlabankinn verði á
næstu dögum eða vikum að taka
afstöðu til tillagna slitabúanna um
stöðugleikaframlag og að stutt sé í
að teknar verði ákvarðanir sem
munu móta lífskjör hérlendis til
langrar framtíðar og það án þess
að almenningur eða greiningarað-
ilar fái tækifæri til þess að koma
með athugasemdir.
Stöðugleika-
skilyrði
verði birt
Davíð Blöndal