Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 32
32 ALDARMINNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Eleseus Marís Sölvason var fædd- ur 25. september 1915 á Lónseyri við Arnarfjörð. Hann lést 22. nóvember 1983. Hundrað ár eru því í dag, 25. sept- ember 2015, frá fæðingu hans. Ele- seus eða Elli, eins og hann var oftast kallaður, var sonur hjónanna Pál- ínu Eleseusdóttur og Sölva Ingi- bjarts Bjarnasonar sem í 20 ár bjuggu á Steinanesi í Arnarfirði og síðustu æviár sín á Bíldudal. Eleseus var þriðji í röðinni af sex systkinum en fjögur þeirra náðu fullorðinsaldri en tveir drengir dóu ungir. Foreldrar Pálínu voru hjónin Margrét Kristjánsdóttir og Ele- seus Höskuldsson, ættaður af bændahöfðingjum úr Stranda- sýslu, en móðir hennar var dóttir Kristjáns á Borg, systir Krist- jáns í Stapadal, Guðmundar, sem lengi var skipstjóri á erlendum skipum og Sigurðar, sem lengi var skipstjóri hjá Geir Zoega. Móðir Margrétar var Guð- björg Markúsdóttir prests á Álftamýri. Ein systra hennar var Sigríður, móðir Markúsar Bjarnasonar stýrimannaskóla- stjóra og bróðir Matthías faðir Jensínu Bjargar, móður Ásgeirs forseta Ásgeirssonar. Pálína og Jörundur Hjaltason Magnússon voru systkinabörn, en hann var skáld og fræðimaður sem varð Halldóri Laxness uppspretta og helsta fyrirmyndin að Ólafi Kára- Eleseus Marís Sölvason syni Ljósvíkingi í Heimsljósi. Foreldrar Sölva voru hjónin Bjarni Bjarnason skip- stjóri og Jónína Jónsdóttir á Laug- arbóli í Mosdal í Auðkúluhreppi við Arnarfjörð. Sölvi var rösklega 18 ára þegar faðir hans fórst við tíunda mann með kútter Þráni frá Ísa- firði í norðvestan aftakaveðri þann 1. maí 1897. Sölvi, faðir Eleseusar, var sagður skemmtilegur og ágætur skipsfélagi, skapstór, en hrein- lyndur og glaðlyndur, mælskur vel, var orðheppinn, gagnyrtur og hnífilyrtur svo undan gat svið- ið þegar því var að skipta, en fljótur til sátta, sagði ágætlega frá, hafði undra gott lag á að haga orðum sínum þannig, að þeir sem hlýddu, komust í gott skap. Á öll- um þeim skipum, sem Sölvi var á, mun hann ævinlega hafa verið hæstur í fiskidrætti. Flestar vertíðir var Sölvi með skipstjóra Pétri Mikael á kútter Valtý frá Reykjavík, sem var aflahæsta fiskiskúta landsins í áraraðir. Sölvi var ráðinn á Valtý vertíðina 1919, en Pálínu, konu Sölva, hafði dreymt ískyggilegan draum um skipið og þrábað hún mann sinn um að fara ekki um borð. Sölvi var lengi tregur til, en að lokum lét hann það eftir konu sinni og fór ekki. Draumurinn rættist og Valtýr fórst með allri áhöfn, 30 mönnum. Hugur Eleseusar hneigðist snemma til sjósóknar og árið 1940 létu þeir feðgar, Sölvi, Elli og Páll, smíða sex tonna bát á Bíldudal, og tók Elli við for- mennsku á honum og var með hann óslitið í 20 ár. Bát þennan smíðaði Gísli Jóhannsson, báta- smiður á Bíldudal, og hlaut hann nafnið Steinbjörg, falleg og mikil happafleyta. Upphaflega var Steinbjörg op- inn bátur, eða aðeins yfirbyggð að framan og svo yfir vél. Seinna var hún dekkuð og varð við þá breytingu öll meiri og hæfari til sóknar en áður. Það er langróið frá Bíldudal og má nærri geta að oft hafa þeir séð hann svartan á ferðum sínum djúpt út af Kóp eða Látraröst, og suður á Breiðafjörð var einnig sótt. Elli var kjarkmaður mikill, sem hann átti kyn til og lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna, glöggur og laginn stjórnandi og ákaflega fiskinn alla sína for- mannstíð. Árið 1960 hætti Elli útgerð og formennsku á Steinbjörgu og flutti suður eins og kallað er. Fyrstu árin syðra fór hann á bát sínum Örnólfi á heimaslóðirnar vestur í Arnarfjörð til handfæra- veiða á sumrin, en hélt suður á bóginn er hausta tók, og var þá oftast einn á ferð í misjöfnum veðrum. Síðustu árin sem Elli lifði réri hann með handfæri frá Sand- gerði á sumrin á litlum báti sínum sem hét Sædís og aflaði vel. Ele- seus giftist aldrei og eignaðist engin börn. Hagyrðingurinn og veiðimað- urinn Njáll Sighvatsson, sem bjó síðustu æviár sín á Auðkúlu í Arnarfirði, orti eftirfarandi for- mannsvísur um Eleseus og happafleytuna Steinbjörgu BA-273. Fögur skeið með frækna drengi ferðagreið um sjá, Steinbjörg heitir straums á engi, stefnir landi frá happasæl á hranna leiðum. Hefur jafnan léð; góðan arð af gefnum veiðum gæfan fylgir með. Góðan arð af gefnum veiðum gæfan fylgir henni með. Eleseus stjórna starfi stillir vel í hóf, sigri með hinn sóknardjarfi sels um víðan skóg, sækir fram á flyðru leiðum formanns ötul lund, aflasæll og vanur veiðum vogs þó freyði grund. Aflasæll og vanur veiðum vogs þó freyði sollin grund. Steinbjörgin um storðir linda stefnir út á mið, þó að kyrji og vaxi vindar veki þungan nið. Gæfan leiði fleyið fríða frekt þó svelli gráð, út um þaraveldið víða veri leidd af náð. Út um þaraveldið víða veri leidd af Drottins náð. Níels A. Ársælsson, Skógum, Tálknafirði. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNMUNDUR STEFÁNSSON, Brekkugötu 9, Ólafsfirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði þann 20. september. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn 28. september kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hornbrekku og slysavarnadeildina í Ólafsfirði. . Snjólaug S. Jónmundsd., Jón Viðar Óskarsson, Guðrún K. Jónmundsdóttir, Sigtryggur Valgeir Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar og frænka, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hörðalandi 14, Reykjavík, lést á Landakotsspítala 10. september. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. . Ragnar Þ. Guðmundsson, Kristín Guðmundsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir, Sigurbjörg Ragnarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR FRANKLÍN JÓNSSON byggingarmeistari, Stekkjarseli 9, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 3S fimmtudaginn 17. september. Verður jarðsunginn í Háteigskirkju 28. september kl. 13. . Kolbrún Steinunn Gestsdóttir, Pálmi Franklín, Guðrún Ása Hjálmtýsdóttir, Þorbjörg Anna, Jón Franklín, Guðmundur, Axel, Jóhann og Tómas. Antík Antíkhúsgögn og munir í úrvali. Skoðið heimasíðuna. Opið frá kl. 10 til 18 virka daga. Þórunnartúni 6, sími 553 0755 – antiksalan.is Sumarhús Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Viðhaldslítil ferðaþjónustuhús og sumarhús til sölu halliparket@hatak.is sími 894 0048 Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Heimilishjálp óskast! Barngóð, sveigjanleg og heiðarleg manneskja óskast til að sjá um heimilisþrif á umfangsmiklu heimili. Starfstími sveigjanlegur en gjarnan kl. 12-18 með möguleika á að geta verið einstaka kvöld með stálpuðum börnum heimilisins. Viðkomandi þarf að vera með eigin bíl til umráða. 70% starfshlutfall. Vinsamlega sendið kynningarbréf til heimilishjalp@yahoo.com Póstsendum Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is Mikið úrval Ný sending af undirfatnaði og náttfatnaði frá Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is Þjónustuauglýsingar 569 1100 Smáauglýsingar Hljóðfæri Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.