Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Nýlistasafnið býður til opnunar á sýningunni Nothing Really Mat- ters (except me) í Núllinu í dag kl. 17. Á sýningunni verða ný verk eftir enska myndlistarmanninn Simon Buckley. Núllið er í Banka- stræti 0 og fyrir sýningu sína hef- ur Buckley teiknað á veggi rým- isins. Teikningarnar sýna pyntingar líkt og á miðöldum þar sem kvalarinn beitir villimanns- legum aðferðum til að draga játn- ingar upp úr fórnarlambi sínu, eins og segir í tilkynningu. Í kringum þessar sögupersónur spinnist tveggja manna samtal milli Simon 1 og Simon 2 og í gegnum þær samræður reyni þeir að finna eigin tilgang, greina vægi og þörfina fyrir verk sín og eigin tilveru, eins og því er lýst. Furðuskepna Teikning eftir Buckley. Simon Buckley sýnir í Núllinu Myndlistarmaðurinn Dagbjört Drífa Thorlacius opnaði í gær sína fyrstu, stóru einkasýningu í Galleríi Gróttu, Seltjarnarnesi. Verkin á sýningunni varpa ljósi á samferða- menn Dagbjartar í tímans rás og er ekki um eiginlegar persónur að ræða heldur vinnur listamaðurinn úr samansöfnuðu minni sínu mynd- ir af fólki sem hefur orðið á vegi hennar í gegnum lífið, eins og því er lýst í tilkynningu. Við verkin fléttast utanaðkomandi þættir sem hafi áhrif á okkar daglega líf, eins og tilfinningar, náttúra, litir og tíð- arandi. Dagbjört útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í myndlist árið 2004 og með diplo- magráðu í listkennslufræðum árið 2006. Hún nam ljósmyndun við Kø- benhavns tekniske skole og hag- nýta menningarmiðlun við Háskóla Íslands árið 2013. Sýningin stendur til 9. október. Einkasýning Dagbjört Drífa Thorlacius. Dagbjört sýnir í Galleríi Gróttu Opnunarmynd RIFF í ár ereinhver sú ævintýraleg-asta sem ég hef séð í háaherrans tíð, enda byggð á þremur af tugum ævintýra sem ítalska skáldið Giambattista Basile safnaði saman í Napólí á 17. öld og gefin voru út undir heitinu Il Penta- merone. Ævintýri þessi eða þjóðsög- ur urðu Grimm-bræðrum og fleirum síðar innblástur og má því í raun segja að þau séu frumgerð margra þeirra ævintýra sem hvert manns- barn þekkir, sagna sem eru fullar af hættum, skrímslum, nornum og tröll- um. Ekki kannaðist ég við þessar sög- ur Basiles áður en ég sá Sagnasveig, eins og myndin heitir í íslenskri þýð- ingu RIFF, og kom hún hressilega á óvart. Í myndinni eru rakin ævintýri úr þremur konungsríkjum sem liggja hvert að öðru. Í einu fer Salma Hayek með hlutverk drottningar sem þráir heitar en nokkuð annað að eignast barn. Dularfullur maður kemur á fund hennar og konungs og segir einu leiðina til barneigna þá að drottningin leggi sér til munns hjarta úr skrímsli, eldað af hreinni mey. Þessu töfra- bragði fylgir auðvitað mikil bölvun. Í næsta ævintýri segir af kynóðum konungi (Vincent Cassell) sem heill- ast mjög af söng ókunnugrar konu og verður heltekinn af þrá til hennar. Hann fer á fund hennar en fær aðeins að sjá af henni einn fingur enda kon- an öldruð og heldur óhrjáleg að sjá. Honum tekst að telja hana á að eyða nótt með sér en sú gamla setur það skilyrði að algjört myrkur verði allan tímann. Sú áætlun fer út um þúfur og sú gamla er feig. Í þriðja ævintýrinu segir svo af konungi (Toby Jones) sem verður heillaður af fló sem hann nærir á blóði sínu og flóin stækkar með hverjum deginum sem líður. Dóttir konungs þráir athygli föður síns en fær ekki, fellur í skuggann af flónni. Kóngurinn virðist hafa tapað glórunni og ákveð- ur að gefa prinsessuna þeim manni sem leyst geti gátu sem virðist óleys- anleg. Honum til mikillar furðu og skelfingar tekst einum manni að leysa gátuna og er sá langt frá því að vera draumaprins. Ítalski leikstjórinn Matteo Garr- one framreiðir þennan furðuheim kónga, drottninga, norna, skrímsla og skaðræðisskepna á einstaklega skemmtilegan hátt. Leikaravalið er gott, Reilly því miður í mjög litlu hlut- verki en þau Hayek, Cassell og Jones fara á kostum í hlutverkum sínum og þrátt fyrir að þessar hryllingssögur eigi sín mjög svo spaugilegu augna- blik er engu líkara en leikararnir séu stundum að leika í verki eftir Shake- speare, slík er alvaran. Það er heldur ekkert verið að skafa af hryllingnum til að hlífa áhorfendum, þetta eru blessunarlega ekki Disney-ævintýri sem enda vel. Enginn köttur úti í mýri nema þá ef vera skyldi köttur sem drekkt er úti í mýri. Boðskapur sagnanna er í anda sígildra ævintýra: gættu að því hvers þú óskar þér, dramb er falli næst o.s.frv. Hér eru mörg vítin til varn- aðar og þeir sem eiga skilið sína refs- ingu fá hana. Andúðin á iðjulausum og heimskum kóngum er rauður þráður í tveimur sagnanna en í þeirri þriðju, af drottningunni, er sjálfselskan tekin fyrir. Enginn flýr örlög sín. Á köflum er myndin skemmtilega gervileg þegar kemur að atriðum sem fara fram utandyra en sviðsmyndir innandyra og þá m.a. kastalar eru aft- ur á móti afar raunverulegar. Ein- hver atriði munu enda hafa verið tek- in upp í fornum kastölum. Sagnasveigur er mikið sjónarspil, lit- rík en líka drungaleg og stórkostleg- ar furðuskepnur koma við sögu sem ættu að fá hárin á mörgum áhorfand- anum til að rísa. Það er í raun furðu- legt að ekki skuli fyrr hafa verið gerð kvikmynd upp úr þessum ævintýrum og vonandi verða þær fleiri. Sagna- sveigur er ákaflega skemmtileg mynd, kemur sífellt á óvart og unn- endur góðra ævintýra mega ekki missa af henni. Ævintýri Salma Hayek í hlutverki drottningar í Sagnasveig. Við hlið hennar skrímsli sem búið er að skera hjartað úr svo drottningin geti gætt sér á því. Af skrímslum og mönnum RIFF Il racconto dei racconti/ Sagnasveigur bbbbn Leikstjóri: Matteo Garrone. Handrit: Edo- ardo Albinati, Ugo Chiti, Matteo Garrone og Massimo Gaudioso. Aðalhlutverk: Salma Hayek, John C. Reilly, Vincent Cassell, Toby Jones, Bebe Cave, Christi- an og Jonah Lees og Shirley Henderson. Bretland, Frakkland og Ítalía, 2015. 125 mín. Flokkur: Fyrir opnu hafi. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Bíó Paradís: 26. sept. kl. 19.15 Háskólabíó: 30. sept. kl. 18.00 Háskólabíó: 4. okt. kl. 18.15 RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK Þjóðlagasveitin Hrafnar heldur tón- leika í kvöld í Hannesarholti, Grund- arstíg 10. Húsið verður opnað kl. 18.30 og verða léttar veitingar í boði. Hrafnar hafa starfað frá árinu 2008 og er hljómsveitin skipuð bræðr- unum Georgi og Vigni Ólafssonum og bræðrunum Helga og Hermanni Inga Hermannssonum og Hlöðveri Guðnasyni. Hrafnar gefa sig út fyrir að vera þjóðlagasveit og bendir hljóðfæraskipan hennar sannarlega í þá átt; að því er segir í tilkynningu. Hrafnar leika í Hannesarholti Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast. EVEREST 3D 5,8,10:30 SICARIO 8,10:30 (P) HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 4 HÓTEL TRANSYLV. 2D ENS 6 MAZE RUNNER 8 NO ESCAPE 10:40 ABSOLUTELY ANYTHING 6 SKÓSVEINARNIR 2D ÍSL 4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10:30 TILBOÐ KL 5 TILBOÐ KL 4 TILBOÐ KL 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.