Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Að vera sjálfum sér reiður gagnast öðrum lítt. Dagur B. Eggerts- son lætur eðlilega und- an alvarlegum athuga- semdum við fljótfærn- islega samþykkt meirihluta borgar- stjórnar um málefni Palestínu. Hann er meira að segja sjálfum sér reiður fyrir að hafa ekki undirbúið málið betur. En hvað með öryggishagsmuni Ís- lendinga og ástæðu til að undirbúa önnur mál betur? Tvö ár eru nú liðin frá því að Hjartað í Vatnsmýri afhenti borg- arstjórn Reykjavíkur undirskrift nærri 70.000 Íslendinga þar sem skorað er á borgaryfirvöld og Al- þingi að tryggja rekstur Reykjavík- urflugvallar í óbreyttri mynd. Meiri- hluti borgarstjórnar Reykjavíkur ætlar með dyggum stuðningi Vals- manna að loka neyðarbrautinni hvað sem öryggi sjúkraflugsins líður. Meirihluti borgarstjórnar Reykja- víkur metur þannig hagsmuni bygg- ingarfélags Valsmanna meira en ör- yggishagsmuni þjóðarinnar. Valsmenn segjast munu hagnast um marga milljarða króna á þessum byggingarframkvæmdum, sem geta stofnað mannslífum í voða svo ekki sé sterkar til orða tekið. Þessi stærsta undirskriftasöfnun fyrr og síðar hratt af stað atburða- rás, sem margir vonuðu að myndi binda enda á áratuga deilur um Reykjavíkurflugvöll, en svo er al- deilis ekki. Allan tímann á meðan Rögnunefndin var að störfum vann Dagur B. Eggertsson hörðum hönd- um að eyðileggingu Reykjavíkur- flugvallar, þvert ofan í yfirlýstan vilja 70 til 80 prósenta landsmanna. Dæmalaus áhættumatsskýrsla Ísavía hefur fengið falleinkunn hjá Öryggisnefnd Félags íslenskra at- vinnuflugmanna, en allt kemur fyrir ekki. En nú er Dagur sjálfum sér reiður fyrir að hafa flanað að ákvörðun um viðskipti við Ísrael, en hann þarf að líta sér nær. Þegar að því kemur að fyrsta sjúkraflugvélin getur ekki lent í Reykjavík vegna þess að búið er að loka neyðarbrautinni getur Dagur vitanlega orðið sjálfum sér reiður fyrir að hafa beitt sér fyrir lokun hennar. En reiði Dags í eigin garð mun ekki hjálpa þeim, sem í flugvél- inni eru. Hvað þarf til að Dagur B. Egg- ertsson og meirihluti borgarstjórnar fáist til að hlusta á vilja mikils meiri- hluta þjóðarinnar í málefnum Reykjavíkurflugvallar? Fyrir hönd Hjartans í Vatnsmýri. Reiður borgarstjóri Eftir Friðrik Páls- son og Njál Trausta Friðbertsson »En reiði Dags í eigin garð mun ekki hjálpa þeim, sem í flug- vélinni eru. Friðrik Pálsson Höfundar eru formenn Hjartans í Vatnsmýri. Njáll Trausti Friðbertsson Það fer býsna margt um huga hins aldraða nú á haustdögum, því nóg er framboð tíðind- anna og því miður enn frekar ótíðindanna, þeg- ar skyggnst er um heimsbyggð alla. Flóttamannavanda- málið risastóra þar sem allir sem einhvers megna eiga að leggja lið herjar á okkur í hryll- ingsmyndum frá hinum stríðshrjáðu svæðum. Það leiðir raunar hugann að rótinni, vígbúnaðarbrjálæðinu, styrj- öldunum svo víða sem skapa þessi vandamál, en ekki gleyma misskipt- ingu auðsins í heiminum, ekki gleyma trúarofstækinu svo víða sem byggist eins og fyrri daginn á fáfræði og miskunnarlausri grimmd. Og allra sízt skyldum við gleyma hvernig herveldið í vestri og bandamenn þess hafa með inngrip- um sínum skapað meira illt en gott hvar- vetna. Lítum til þess þegar mesti vopna- framleiðandi heims heyr styrjaldir til þess að koma þessum vopnum sínum í „gagnið“, viðhalda völdum sínum og heimsyfirráðum, olíuauðnum svo nærtækt dæmi sé tekið. Hún Stein- unn Þóra kom rösklega inn á þetta í umræðunum um stefnuræðu for- sætisráðherra og hafi hún þakkir fyr- ir. En ekki fleiri orð hér um, svo margt sem vel er kveðið um þetta heimsvandamál af svo mikilli þekk- ingu og innsæi. En orð megna lítið gegn sprengjunnar helþunga gný – og þó. Og vel á minnst, stefnuræða for- sætisráðherra, þess annars þokka- lega drengs, sem ég held að hafi sleg- ið öll met í sjálfhælni og hefi ég þó heyrt anzi margt af slíku. Ekki það að ýmislegt er það sem gleður hugann eftir svartnætti hrunáranna og sjálf- sagt að halda því til haga. En þá er líka skylt að geta þess hversu unnið var úr þeim skelfilegu aðstæðum. Auðvitað lítur maður fyrst og síð- ast til heimahaganna og ótal tilefni gefast til þessa, ekki sízt nú á haust- dögum þegar stjórnmálaumræðan tekur flugið og gamall heimagangur þar reynir að fylgjast með. Þar eru mörg fyrirbærin sem hann skilur ekki til hlítar svo sem geysifylgi „sjó- ræningjanna“ sem fljúga nú hátt á vængjum skoðanakannana og vissu- lega hefur maður séð slíkt áður og séð hversu fallvalt slíkt fylgi í skoð- anakönnunum getur orðið, þegar til kastanna kemur. Mig undrar þegar menn eru að ræða af mikilli speki um fylgishrun Bjartrar framtíðar og raunar Samfylkingarinnar einnig og leita á þessu skarplegra skýringa. Í mínum öldnu augum er þetta einfalt: Óánægjufylgið sem alltaf er talsvert og óx hratt eftir hrun hefur einfald- lega séð nýja mannkynsfrelsara í pí- rötum, en snúið baki við hinum. Ég segi bara: Verði þeim vonandi að góðu! En áfram með alvöruna. Gleymska í pólitík er einstök eða man nokkur eftir því nú við hvers konar búi rík- isstjórn vinstri manna tók eftir hrun- ið? Maður gæti haldið það þegar nú- verandi stjórnarherrar hæla sér af afrekum sínum, menn sem tóku við allt öðru og langtum betra búi en vinstri stjórnin á sinni tíð, þegar allt var í kaldakoli eftir stjórnartíð þeirra sömu flokka sem nú eru við völd, þar sem markaðshyggjan var látin ráða villtri vegferð. Því skal þó haldið til haga varðandi vinstri stjórnina hver vonbrigði mín voru mikil með það, að þegar upp rofaði þá skyldu ekki verst settu öryrkjarnir og aldraðir njóta þess, en það virðast þeir heldur ekki eiga að gera nú í öllu bullandi góð- ærinu sem boðað er. Í heila átta mán- uði er dregið að bæta hag þessa fólks til samræmis við kjarasamninga vorsins og það get ég sagt þeim Sig- mundi Davíð og Bjarna að það hefði þó verið sanngirnismál hið bezta og munað þennan hóp heilmiklu í lífs- afkomu allri. En svona í lokin þá undraði það mig stórlega þegar sá um margt mæti drengur, Bjarni Benediktsson, fór að tala af fjálgleik og vandlætingu um hið skelfilega þjóðarmein sem fólst í bjórbanninu. Af því hann gætir nú ríkiskassans þá ætti hann að vita að einmitt bjór- neyzlan hefur fjölgað átakanlega þeim er þurfa að leita sér aðstoðar vegna áfengisvandamála og það mun svo sannarlega taka sinn toll af ríkis- kassanum okkar allra og gjöra það í sívaxandi mæli. Neyzla áfengis hefur nefnilega stóraukist samkvæmt öllum við- miðum og það segir til sín hjá með- ferðarstofnunum svo sannarlega og ekki síður í lífsafkomu þeirra sem þar ánetjast. En að þessu slepptu þá er það margt sem maður sér til bóta og ekki rakið hér enda básúnað nógsamlega af þeim sem með völdin fara og víst er að efnafólk og kvótaeigendur brosa nú út í bæði. Og svona í blálokin; Hvers vegna í ósköpunum er verið að skera niður fjármagn til Ríkisútvarpsins okkar? Er ekki komið nóg af snautlegum uppsögnum þar. Og mér er spurn: Hver bað nú um þetta? Af bæjarhellunni Eftir Helga Seljan »Mig undrar þegar menn eru að ræða af mikilli speki um fylgi- shrun Bjartrar fram- tíðar og raunar Sam- fylkingarinnar einnig Helgi Seljan Höfundur er fv. alþingismaður. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Fjórtán borð í Gullsmáranum Mjög góð þátttaka var í Gull- smára mánudaginn 21. september. Spilað var á 14 borðum (28 pör). Úrslit í N/S: Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 342 Ragnar Jónsson - Sigurður Dagbjartss. 311 Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjss. 304 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 301 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafss. 295 A/V: Lúðvík Ólafsson - Björn Árnason 343 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 319 Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 296 Haukur Bjarnason - Hinrik Láruss. 267 Guðl. Bessason - Trausti Friðfinnss. 266 Spilað er alla mánu- og fimmtu- daga. Lóðarhafar á Dalvegi 30 í Kópavogi óska eftir tilboðum í lóðina. Lóðin er 20.688 m2 og skilgreind sem grænt svæði í deiliskipulagi. Tilboðsgjöfum er bent á að kynna sér vel aðal- og deiliskipulag Kópavogs. Á lóðinni eru fasteignir sem eru undanskildar við sölu. Tilboðum skal skilað inn fyrir kl. 16.00, 30. september nk., til Virðingar, b.t. Brynju Hjálmtýsdóttur, Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Lóðarhafar áskilja sér rétt til að hafna öllum tilboðum. BORGARTÚNI 29 105 REYKJAVÍK 585 6500 WWW.VIRDING.IS DALVEGUR 30 KÓPAVOGI TILBOÐ ÓSKAST Í 20.688m2 LÓÐ Nánari upplýsingar: Brynja Hjálmtýsdóttir sími 585 6509, brynja@virding.is Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 www.kemi.is - kemi@kemi.is • Almennur handhreinsir sem byggir á náttúru- legum efnum. • Virkar jafnt með vatni og án. • Engin jarðolíuefni eru notuð. • Inniheldur aloa vera, jojoba olíu og lanolin til að mýkja húðina. • Virkar vel á olíu, feiti, blek, jarðveg, epoxy og lím. • Inniheldur fín malaðan sand til að hreinsa betur. Gengur illa að þrífa smurolíuna af höndunum? Eru lófarnir þurrir og rispaðir?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.