Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
VINNINGASKRÁ
21. útdráttur 24. september 2015
27 7366 17483 28082 37026 53235 60990 72514
58 7460 18349 28151 38518 53806 61148 72605
157 7506 18355 28264 39041 53811 61345 72819
787 7890 18459 28351 39192 53818 62078 72909
903 7926 18534 28652 39345 54252 62171 72961
1257 8589 18910 29041 39843 54467 62381 73067
1402 8966 18943 29213 40061 54474 62813 73437
1514 9161 19237 29639 40762 54477 63176 73576
1929 9312 19789 29746 41373 54815 63615 73819
1989 9351 19883 29750 41438 54827 63922 73898
2254 9392 20194 29776 41687 55025 64201 74227
2287 9656 20560 29973 41798 56043 64774 74337
2415 10064 20842 30336 41902 56144 65416 74470
2484 10108 21243 31751 42523 56167 65599 74751
3147 10232 21374 32187 42537 56241 65633 75037
3436 10841 21494 32271 42589 56247 65855 75278
3578 11360 21568 32322 42858 56291 65983 75578
3740 11582 21834 32846 43612 56485 66101 76268
3979 12246 21849 32859 43877 56601 66150 76273
4067 12299 21957 32898 44264 56662 66515 76353
4288 12561 22053 33074 44380 56719 66693 76817
4400 12665 22263 33446 45222 56748 66884 76877
4575 12947 22407 33483 45913 56792 67094 76906
4836 12999 23377 33684 46368 56840 67829 77809
4881 13096 23658 33721 47203 56849 67885 77996
5176 13549 23962 33737 47530 56926 68484 79066
5218 14431 24121 33928 47672 57772 68679 79280
5837 14778 24713 34457 48179 57787 69204 79309
6023 15099 24907 34711 49651 57972 69681 79465
6050 15204 25585 35017 49915 58770 70041 79643
6129 15253 25825 35157 51034 58979 70170 79678
6189 15399 26112 35424 51136 59264 70180
6233 15462 26342 35587 51291 59341 70292
6373 15811 26400 35689 51647 59535 71290
6548 16022 26503 36391 51650 59773 71490
6981 16593 26518 36543 53027 60346 71518
7017 17157 26759 36978 53147 60599 71985
895 12931 27746 38267 43545 55785 65054 73098
2260 13356 28982 38667 44738 57143 65889 74380
4477 13755 29149 38782 44893 58038 66877 76351
6126 14870 29467 38929 45634 59724 67396 76910
6697 16913 30347 40730 46874 59738 67747 76922
7291 17799 31313 40901 48177 60176 68944 77028
7351 18028 32386 41625 48532 60229 69374 77159
7809 18721 33194 42231 49088 60420 69659 77336
9196 18972 34176 42463 52317 60974 70458 77439
9445 20438 35844 42864 53800 61453 71726
10506 21087 36757 43040 54180 63239 72307
10638 21326 37221 43196 54987 63774 72410
11237 25257 37256 43282 55213 64377 72951
Næsti útdráttur fer fram 1. október 2015
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
7883 15448 16926 46107
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
510 5159 31944 43246 56041 67154
2630 5719 32825 46422 59249 69278
3026 20061 33820 50849 62792 71452
3464 21263 36524 53259 64987 73490
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 5 2 1
Samspil vinnuum-
hverfis og heilbrigðis
skiptir miklu máli, en
er flókið. Áður fyrr var
áherslan í vinnuvernd-
arstarfi á að fyrir-
byggja líkamlegt
heilsutjón og slysa-
varnir en í dag þarf
áherslan að vera meira
á félagslega og andlega
vinnuumhverfið eða
það sem oft er kallað sálfélagsleg
vinnuvernd.
Sálfélagsleg vinnuvernd er frek-
ar nýtt hugtak en með því er átt
við allt það sem hefur áhrif á and-
lega og líkamlega líðan starfsfólks,
þar með talið álag og streita, sam-
skipti, skipulag og stjórnun.
Um 50-60% allra tapaðra vinnu-
daga í ríkjum Evrópusambandsins
má tengja streitu. Örorka hefur
aukist hér á landi og samkvæmt
tölum frá Tryggingastofnun rík-
isins árið 2013 voru geðraskanir al-
gengasta orsök fyrir örorku eða
38% og stoðkerfisvandmál um 29%.
Til samanburðar var hlutfall geð-
raskana um 35% árið 2003. Undir
flokkinn geðraskanir falla meðal
annar greiningar eins og streita,
kvíði og þunglyndi. Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin spáir því að árið
2020 verði þunglyndi önnur helsta
orsök örorku.
Geta stjórnendur og starfs-
menn haft áhrif á þessa þró-
un?
Heilsuefling á vinnustað hefur
færst frá því að vera eingöngu
heilsuhugtak yfir í að vera hug-
myndafræði og stjórntæki sem nær
utan um mun fleiri þætti en nær-
ingu og hreyfingu. Rannsóknir og
reynsla sýnir að á þeim vinnustöð-
um sem leggja áherslu á heilsuefl-
andi stjórnunarhætti hefur heilsa
starfsfólks batnað, framleiðni og
afkoma aukist. Dæmi frá dönsku
fyrirtæki sýndi að þar lækkaði
fjarvistarprósentan úr 14% í 2,7%
á þremur árum samhliða því að
gæði, árangur og hagnaður jukust.
Fyrirtæki geta stefnt að heil-
brigðum vinnustað til
framtíðar. Lykillinn
felst fyrst og fremst í
góðu skipulagi og
stjórnun þar sem
leiðtogahæfni stjórn-
enda og þátttaka
starfsmanna er höfð í
fyrirrúmi. Þegar
unnið er að heilsuefl-
ingu á vinnustöðum
þarf að greina
áhersluatriði og
framkvæma sál-
félagslegt áhættumat
og kanna hvað er heilsueflandi fyr-
ir starfsmannhópinn, því starfsfólk
vill gjarnan hafa áhrif og taka þátt
í að móta vinnustaðinn sinn og
verkefni.
Heilsuátak innan vinnustaða, til
dæmis þar sem starfsmenn eru
hvattir til þess að hreyfa sig meira
eða tileinka sér hollara mataræði,
getur verið vel þess virði en slíkt
átak dugir þó oftast skammt því
einn stærsti þátturinn að baki van-
líðan á vinnustað og fjarvistum er
andlegs eðlis. Von er á mestum ár-
angri ef stjórnandinn rýnir í eigin
stjórnunarstíl og skilgreinir heilsu-
eflandi áherslur samhliða rekstr-
arstefnu fyrirtækisins, þar sem
rýnt er í samskiptin, menninguna,
vinnulag, vinnuálag og streitu.
Starfsfólki treyst og það hvatt til
að sýna frumkvæði og ábyrgð í
starfi. Um helmingur vinnuafls í
Noregi telur góða stjórnun og leið-
togahæfni hafa meiri áhrif á að það
sé áfram í starfi en góð laun.
Ávinningur
Aukin þátttaka starfsmanna í
skipulagi og ákvarðanatöku hefur
fylgni við frammistöðu fyrirtækja.
Þeir sem eru ánægðir í starfi og
líður vel sýna meiri áhuga, vinsam-
lega framkomu, veita betri þjón-
ustu, hafa meiri þjónustulund og
eru hjálpsamir bæði við við-
skiptavinina og samstarfsmenn.
Minna er um fjarvistir, þeir smita
meiri orku og áhuga til samstarfs-
manna og eru tilbúnir að læra eitt-
hvað nýtt á vinnustaðnum.
Heilsueflandi stjórnun fjallar um
leiðtogahæfni stjórnandans og
mannauðsmálin. Hvernig stjórn-
andinn nær að virkja og hvetja
mannskapinn, vekja áhuga og leið-
beina til að ná sameiginlegum ár-
angri fyrirtækisins. Við nútímalega
stjórnun fyrirtækja huga yfirmenn
mun meira að líðan og heilsu
starfsmanna en áður og nýta sér
nýjustu þekkingu á forvörnum,
samskiptamunstrum og streitu.
Það er ekki til einföld uppskrift
að því hvernig vinnustaður verður
meira heilsueflandi en stjórnandinn
þarf að vera meðvitaður um:
Að rýna í eigin leiðtogastíl
Að líta á heilsu og færni
starfsmanna sem mikilvægan þátt í
rekstri
Að viðhorf og aðgerðir fylgist
að
Menningu sem ýtir undir
áhuga, samskipti og samstöðu
Að efla sjálfstraust og starfs-
hæfni hvers og eins
Hver stjórnandi og vinnustaður
verður að finna sína leið til þess.
Mikilvægt er að byrja á því að átta
sig á stöðunni með vinnustaða-
greiningum sem gefa yfirlit yfir
stöðuna almennt en færst hefur í
vöxt að láta gera sálfélagslegt
áhættumat þar sem farið er dýpra
í þá þætti sem hafa áhrif á andlega
líðan á vinnustaðnum og fé-
lagsauðinn.
Heilsueflandi stjórnandi leggur
áherslu á að þróa getu og starfs-
hæfni starfsfólks og stjórna kröft-
um þeirra í gegnum vinnuferlið
heildinni til hagsbóta. Þetta er for-
senda fyrir langtímaárangri í
mannauðsmálunum. Það er á
ábyrgð stjórnandans að ná árangri
í gegnum aðra.
Heilsueflandi stjórnun
Eftir Svövu
Jónsdóttur »Heilsueflandi stjórn-
un fjallar um leið-
togahæfni stjórnandans
og mannauðsmálin.
Hvernig stjórnandinn
nær að virkja og hvetja
mannskapinn til árang-
urs.
Svava Jónsdóttir
Höfundur er ráðgjafi hjá Forvörnum
ehf. Sálfélagsleg vinnuvernd,
www.stress.is
Mið-Austurlönd eru
ekki paradís mann-
réttinda. Mannréttindi
og sérstaklega kven-
réttindi eru fótum
troðin, trúarbragða-
ofsóknir algengar og
fjöldamorð ná varla
athygli vestrænna
fjölmiðla. Stúlkur eru
ofsóttar, jafnvel
drepnar, fyrir að
ganga í skóla, kúgaðar í hjóna-
bönd á barnsaldri og eru annars
flokks borgarar í ríkjum klerka-
veldis í miðaldastíl.
Í þessum heimshluta sker Ísrael
sig úr. Lýðræðisríki með mál-
frelsi, opna stjórnarandstöðu; ríki
þar sem menning og vísindi eru í
hávegum. Ísrael er í fremstu röð í
heiminum í nýsköpun, læknisfræði
og ýmsum raunvísindum og Ísr-
aelsmenn og aðrir gyðingar mik-
ilvægur hluti al-
þjóðlegs
vísindasamfélags.
Í nágrenni Ísraels
eru ríki og samtök,
sem stefna op-
inberlega að því að
útrýma Ísraelsríki og
þá væntanlega þjóð-
inni um leið. Stefn-
unni er fylgt eftir
með eldflaugaárásum
og hryðjuverkum og
full ástæða til að taka
yfirlýst markmið
þeirra alvarlega. Aðrir hryðju-
verkamenn drepa gyðinga hvar
sem til þeirra næst, eins og nýleg
dæmi í Evrópu, s.s. Frakklandi,
sanna og sumir muna fjöldamorð á
ísraelskum íþróttamönnum á Ól-
ympíuleikunum í Þýskalandi 1972.
Þetta umsátursástand hefur að
sjálfsögðu áhrif á ísraelskt sam-
félag. Öryggisráðstafanir eru víða
sýnilegar og stjórnmálaöfl, sem
vilja bregðast harkalega við ógn-
inni, njóta vinsælda. Vissulega
hafa ísraelsk stjórnvöld beitt
Palestínumenn ofríki og eru gagn-
rýnd fyrir bæði á alþjóðavettvangi
og innanlands í Ísrael.
Ýmsir stjórnmála- og fjölmiðla-
menn á Íslandi einblína á yfirgang
ísraelskra stjórnvalda og einstakl-
inga gagnvart Palestínumönnum.
Kúgun og fjöldamorð á „trúvill-
ingum“ í nágrannaríkjunum ná
ekki sömu athygli; rán og nauðg-
anir á hundruðum skólastúlkna í
Nígeríu kalla ekki á nein viðbrögð,
þótt Íslendingar eigi í miklu meiri
viðskiptum við Nígeríu en Ísrael.
Trúarofstækismenn sem eyði-
leggja menningarminjar árþús-
undanna vekja enga reiði í borg-
arstjórn Reykjavíkur.
Yfirlýsing borgarstjórnar um
viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael
hefur vakið athygli um allan heim.
Hún lýsir illum vilja gagnvart Ísr-
aelsríki og hvort sem mönnum lík-
ar betur eða verr, þá er hún lesin
sem illvilji gagnvart gyðingum al-
mennt. Margir gyðingar eru ósam-
mála framferði samlanda sinna
gagnvart Palestínumönnum, en
þeir bregðast allir til varnar þegar
sótt er að ríki og þjóð gyðinga.
Það er vont hlutskipti að þurfa
að afsaka og útskýra fyrir sam-
starfsmönnum og vinum í al-
þjóðlegu vísindasamfélagi að Ís-
lendingar séu ekki að hatast út í
gyðinga. Við höfum bara lent í því,
eins og sumir aðrir, að kjósa yfir
okkur stjórnvald, sem fer fram
með meira ofstæki en flestum
okkar líkar.
Hatast út í Ísrael
Eftir Einar
Stefánsson » Yfirlýsingin lýsir ill-
vilja gagnvart
Ísraelsríki og hvort sem
mönnum líkar betur eða
verr er hún skilin sem
illvilji gagnvart gyð-
ingum almennt.
Einar Stefánsson
Höfundur er yfirlæknir og prófessor.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/ - með morgunkaffinu