Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð. Til stendur að nýta Knarr- arósvita, sem stendur skammt austan við Stokkseyri, sem áfangastað ferðamanna. Vitinn er alls 26,2 metrar á hæð og þar með hæsta bygging Suðurlands. Setur vitinn því sterkan svip á umhverfið í lágsveitum Flóans. Bragi Bjarnason, menningar- og frístundafulltrúi hjá Árborg, segir að sveitarfélagið hafi haft frumkvæðið að því að ræða við Vegagerðina um möguleikann á því að nýta vitann til ferða- mennsku. Að sögn hans fékk sveitarfélagið tveggja milljóna króna styrk frá Framkvæmda- sjóði ferðamannastaða síðasta vetur og verður styrknum að mestu varið í að bæta öryggismál í vitanum. „Ef allt gengur að óskum mun fram- kvæmdum ljúka í vetur,“ segir Bragi. Knarrar- ósviti, sem byggður var á árunum 1938 til 1939, er fyrsti vitinn á Íslandi sem byggður er úr járnbentri stein- steypu. „Vitinn er í raun einn geimur. Við innkomu ertu stadd- ur í stórum sal, en svo liggja stig- ar upp á toppinn. Þegar upp er komið blasir svo við manni alveg magnað útsýni - maður hefur sjó- inn fyrir framan þig og í raun alla fjallasýn Suðurlands á góð- viðrisdögum,“ segir Bragi. vidar@mbl.is Ferðamenn fái aðgang að Knarrarósvita Ljós Til stendur að gera Knarrarósvita aðgengilegan ferðamönnum og standa nú yfir viðhaldsframkvæmdir í tengslum við það. Sjór og fjallasýn yfir Suðurland Bragi Bjarnason Sveitarfélagið Árborg varð til við sameiningu fjögurra sveitar- félaga árið 1998 og búa þar rúmlega 8.000 manns, en sveitar- félagið er alls um 157 ferkílómetrar að stærð. Innan þess má finna fjölbreytt landslag, s.s. tilkomumikla fjallasýn og stórbrotnar fjörur, en atvinna er þar helst iðnaður, verslun og þjónusta. meðal annars rætt við Rune Hesager, drenginn sem lenti í háskanum. Sagð- ist hann hafa verið á gangi efst í snjó- brekku inni í gilinu fyrir ofan bæinn, þegar jörðin fór skyndilega öll á hreyfingu. Rann hann því næst niður hlíðina og grófst undir snjó, en flóðið féll um það bil 150 metra. „[É]g sá ekkert og vissi ekkert fyrr en ég var allt í einu alveg fastur þarna í snjónum, gat hvorki hreyft legg né lið,“ sagði Rune í samtali við blaðamann Morgunblaðsins sem sótti drenginn og fjölskyldu hans heim fá- einum dögum eftir snjóflóðið. „Ég varð auðvitað dálítið hrædd- ur þegar ég fann að ég gat alls ekki hreyft mig neitt, en ég fór fljótlega að hugsa um að pabbi myndi fljótlega koma og bjarga mér. Mér kólnaði mjög fljótt, en það varð aldrei neitt óbærilegt og ég gat mjög vel andað allan tímann. Svo kom bara stöngin í mig og þá vissi ég auðvitað að mér yrði fljótlega bjargað.“ Fram kemur í viðtalinu við fjöl- skylduna að tugi manna hafi fljótlega drifið að á skömmum tíma og fannst Rune eftir um eins og hálfs tíma leit, en þá höfðu meðal annars stangir og skóflur verið notaðar við leitina. Rune var fluttur til læknisskoðunar á sjúkrahúsið á Selfossi, en var þó fljót- ur að jafna sig eftir hnjaskið, að því er fram kemur í áðurnefndri frétt Morg- unblaðsins. Ljósmynd/Úr einkasafni Göngugarpur Útivist er helsta áhugamálið og hér má sjá Heiðar Bjarndal ásamt góðum hópi í hlíðum Ingólfsfjalls. Á vaktinni Heiðar Bjarndal vann hjá lögreglunni í Árnessýslu í 38 ár, en sinnir nú áhugamálunum. Drengurinn Rune litli á heimili sínu í fullu fjöri, en myndin birtist fyrst í Morgunblaðinu þremur dögum eftir flóðið. sem í bænum býðst „Til að byggja traustari stoðir undir reksturinn erum við líka með átta til níu manna bíla og förum með fólk gullna hringinn, í norðurljósaferðir og annað slíkt,“ segir Kristján. Hluthafar í Arctic wings eru alls tuttugu og einn. Í þeim hópi eru til að mynda ferðaþjónustufyrirtæki, fyrirtæki í flugtengdum rekstri, flugáhugamenn og aðrir áhuga- menn um rekstur félagsins. Glæsileg Tveggja hreyfla Piper Senica kemur til landsins í október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.