Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Almyrkvi á tungli verður aðfaranótt mánu- dagsins 28. september og sést hann að öllu leyti frá Íslandi, ef veður leyfir. Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, seg- ir að almyrkvinn sjáist þar sem sjáist í heið- skíran himin frá Íslandi. Það sé alltaf sér- stakt að sjá rautt almyrkvað tunglið á himninum, en það sem sé sérkennilegt núna sé að almyrkvinn verði á sama tíma og tunglið verði næst jörðinni. „Það hefur ekki gerst síðan 1982 og gerist ekki næst fyrr en 2033.“ Hann áréttar að þótt þetta hljómi spennandi komi fólk samt ekki til með að sjá mun á stærð tunglsins. „Fólk hefur talað um ofurmána, en það er hugtak sem fer í taug- arnar á okkur vísindanördunum af því að það er ekkert ofur við tunglið þennan dag,“ segir hann. Tunglið verður rautt vegna þess að það verður inni í skugganum af jörðinni. Á stjörnufræðivefnum segir: „tunglmyrkvar verða þegar sólin, jörðin og tunglið liggja hér um bil í beinni línu. Tunglmyrkvar verða því aðeins þegar tungl er fullt og gengur inn í skugga jarðar“. Tunglmyrkvar sjást frá allri næturhlið jarðar, en síðast sást al- myrkvi frá öllu Íslandi 21. desember 2010. Sævar segir að stæði maður á tunglinu sæi hann ljósið frá öllum sólarupprásum og sól- setrum á jörðinni í einu. „Það væri sjón að sjá,“ segir hann. Sólmyrkvar sjást aðeins frá takmörkuðu svæði á jörðinni og síðast frá Íslandi í mars sem leið. Sævar segir að það gerist ekki oft að sól- og tunglmyrkvi sjáist á Íslandi á sama árinu en tunglmyrkvar séu miklu al- gengari og sjáist frá Íslandi á nokkurra ára fresti að meðaltali. „Það er alltaf mjög skemmtilegt að fylgjast með þessu,“ segir hann, en tunglmyrkvinn sést vel frá Suður- Ameríku, Bandaríkjunum, Evrópu og Suð- ur-Afríku. Almyrkvinn hefst 12 mínútur yfir miðnætti og milli klukkan 2.11 og 3.23 verð- ur tunglið almyrkvað og þá blóðrautt. steinthor@mbl.is Almyrkvi á tungli eftir helgi  Sést vel frá Íslandi ef veður leyfir  Almyrkvinn á sama tíma og tunglið verður næst jörðinni  Tunglmyrkvar verða aðeins þegar tungl er fullt og gengur inn í skugga jarðar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Almyrkvi Tunglið verður blóðrautt milli klukkan 2.11 og 3.23 aðfaranótt nk. mánudags. „Þetta er einvörðungu vegna niður- skurðar á fjárheimildum. Við fórum af stað með þetta verkefni til að bæta aðstöðu barna sem koma í heimsókn til fanga, því aðbúnaður- inn var ekki bjóðandi börnum eins og hann var,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri um þá ákvörðun fangelsismálayfirvalda að hafa Barnakot á Litla-Hrauni lokað um helgar. Enn verður þó opið fimm daga vikunnar. Samrýmist ekki réttindum Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, sendi form- legt bréf til Fangelsismálastofnunar hinn 18. september síðastliðinn þar sem lokunin um helgar var gagn- rýnd og farið var fram á skýringar. Segir meðal annars í bréfi um- boðsmanns að lokunin um helgar leiði til þess að börn þurfi að taka frí frá skóla til að nýta aðstöðuna á Litla-Hrauni ásamt því að forráða- menn þeirra muni þurfa frí frá vinnu af sömu ástæðu. „Þessar hindranir samræmast illa réttindum barna og eru líklegar til þess að draga úr möguleikum þeirra til þess að heimsækja foreldri á Litla-Hrauni,“ segir umboðsmaður og bætir við að ávallt beri að leita annarra leiða til hagræðingar en að skerða þjónustu við börn. Helgaropnunin of dýr Fangelsismálastjóri segir í svar- bréfi sínu að ákveðið hafi verið fyrir um ári að nýta 4 milljónir króna af rekstrarfé stofnunarinnar í að koma upp aðstöðunni enda hafi málið verið brýnt. „Fljótlega kom í ljós að það var of dýrt. Vegna enn frekari nið- urskurðarkröfu af hálfu Alþingis var Fangelsismálastofnun nauðugur einn kostur að stytta þann tíma sem opið er, sérstaklega á þeim tímum þegar lágmarksmönnun er í fangels- inu, þ.e. um helgar.“ Ekki var lagt sérstakt mat á það, þegar þessi ákvörðun var tekin, hvort hún hefði áhrif á hagsmuni og réttindi barna. laufey@asdf.is Niðurskurður nær til Barnakots Morgunblaðið/RAX Litla-Hraun Börnin þurfa ekki að fara inn í fangelsið við komu í Barnakot.  Barnakot, aðstaða barna til heimsókna á Litla-Hrauni, lokað um helgar  Umboðsmaður barna segir það ekki samrýmast réttindum barna  „Einvörðungu vegna niðurskurðar á fjárheimildum“ „Ég held að þetta sé að aukast aftur. Unga fólkið er líka farið að gera slátur og læra af mömmu,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, verslunarstjóri Hagkaupa í Smáralind. Þar var opnaður í gær sláturmarkaður SS og Hagkaupa. Nú er hægt að kaupa kalónaðar vambir á ný, eftir árs hlé. Vanaföstu konurnar sækja í það. Guðbjörg segir að próteinpokarnir sem fylgja öllum slátrum séu handhægir og kalli á minni saumaskap við sláturgerð. Morgunblaðið/Eggert Unga fólkið lærir af mömmu Sláturmarkaður SS og Hagkaupa tekinn til starfa í Smáralind Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðis- flokks lagði fram tillögu á fundi borgarráðs í gær um að fella úr gildi tillögu Reykjavíkurborgar um að sniðganga vörur frá Ísrael. Í tillög- unni segir að mikilvægt sé að eyða allri óvissu í málinu. „Greinargerð sem fylgdi tillögu Samfylkingar, Pí- rata, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna í borgarstjórn 22. þ.m. held- ur málinu ennþá galopnu þar sem ekki var fallist á að draga greinar- gerðina til baka, en í henni eru boð- aðar áframhaldandi aðgerðir borg- arstjórnar í þessu máli. Greinargerðin er því stefnumark- andi. Slík óvissa er mjög skaðleg ís- lenskum hagsmunum og hefur haft neikvæð áhrif á ímynd lands og þjóð- ar. Því er lagt til að greinargerðin verði felld úr gildi,“ segir í tillögu Sjálfstæðisflokksins. Þá lagði Sveinbjörg Birna Svein- björnsdóttir, fram fyrirspurn vegna ummæla Dags B. Eggertssonar borgarstjóra að leitað hefði verið álits borgarslögmanns um lögmæti ákvörðunarinnar áður en hún var tekin. Óskar hún eftir upplýsingum borgarlögmanns um þá athugun. Greinargerð tillögu verði felld úr gildi  Óskað upplýsinga frá borgarlögmanni Umboðsmaður barna segir Barnakot, aðstöðuna á Litla- Hrauni, taka tillit til hagsmuna og þarfa barna. Lokunin um helgar hafi mikil áhrif á börn fanga og möguleika þeirra til að njóta samvista við foreldra sína í sem bestu umhverfi miðað við aðstæður. Í barnasáttmálanum og barnalögum segir að það sem börnum sé fyrir bestu eigi ávallt að hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir sem varða börn. Í forgang BARNVÆN AÐSTAÐA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.