Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 35

Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 1998-2010, var lengst af formaður Þekkingarnets Austurlands 1998- 2011, formaður Héraðs- og Austur- landsskógar 2003-2010, var verk- efnastjóri vaxtarsamnings Austurlands 2005-2006, sat í norðausturnefnd forsætisráðuneyt- isins 2008-2009 og í verkefnahópi 20/ 10 um sóknaráætlun landshluta frá 2009. Hann var kjörræðismaður fyrir Svíþjóð á Seyðisfirði 1995-2011 og formaður og stofnandi Hollvina- samtaka Sjúkrahúss Seyðisfjarðar frá 2008. Áhugamál Þorvalds snúast um stórfjölskylduna, golffélagana, skíða- félaga og gengi knattspyrnufélagsins Hugins sem nú var að komast upp í fyrstu deild: „Þetta eru mínar ær og kýr í dag. Við golffélagarnir sem er- um sextugir og eldri köllum okkur Lávarða GSF en við förum saman í eina góða golfferð erlendis á hverju ári. Ég er formaður Lávarðadeild- arinnar og stofnaði auk þess Seyð- firska alpaklúbbinn, árið 1986 og sinni þar einnig formennsku. Við för- um saman á skíði í Alpana á hverju ári en í vetur höldum við upp á 30 ára afmæli klúbbsins, með pomp og pragt í bænum Selva á Ítalíu. Það er því nóg að gera enda yngist ég með hverju ári.“ Þorvaldur var sæmdur gullmerki ÍSÍ árið 2013 og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1.1. 2015. Fjölskylda Þorvaldur kvæntist 2.9. 1961 Dóru Sæmundsdóttur, f. 19.12. 1935, d. 28.5. 1998, húsfreyju. Foreldrar Dóru voru Sæmundur Guðmundsson og k.h., Ríkey Eiríksdóttir. Börn Þorvalds og Dóru eru Frið- þóra Ester, f. 22.6. 1961, hjúkr- unarfræðingur á Höfn í Hornafirði, gift Birni Sigfinnssyni kennara; Inga, f. 8.8. 1963, fulltrúi á bæjarskrifstof- unni á Seyðisfirði, gift Þorsteini Ara- syni, fyrrv. skólastjóra; Jóhann, f. 10.10. 1966, sjómaður í Vest- mannaeyjum, kvæntur Hrafnhildi Helgadóttur. Fósturbörn Þorvalds, frá fyrra hjónabandi Dóru Sæmundsdóttur: Sigurbjörg Baldvinsdóttir f. 5.1. 1951 matvælatæknir, búsett í Danmörku gift Olavi Jacobsen skipstjóra; Haf- dís Baldvinsdóttir, f. 26.6. 1952, hús- freyja í Keflavík, var gift Gunnari Gunnlaugssyni sem er látinn; Þor- steinn Þórir Baldvinsson, f. 23.8. 1957, sjómaður í Hafnarfirði en kona hans er Ruby Carticano. Barnabörn Þorvalds eru nú 13 talsins og langafabörnin eru 12. Systkini Þorvalds: Sigríður, f. 16.6. 1939, d. 10.10. 2003, sjúkraliði í Reykjavík; Stefanía, f. 17.11. 1941, leikskólakennari í Reykjavík; Indriði, f. 27.1. 1943, fyrrv. bankastarfs- maður; Freysteinn, f. 25.6. 1946, fyrrv. fréttastjóri Morgunblaðsins. Foreldrar Þorvalds voru Jóhann Þorvaldsson, f. 16.5. 1909, d. 9.10. 1999, skólastjóri á Siglufirði, og k.h., Friðþóra Stefánsdóttir, f. 4.1. 1910, d. 17.3. 2003, kennari. Úr frændgarði Þorvalds Jóhannssonar Þorvaldur Jóhannsson Þórdís Jónsdóttir húsfr. á Kletti Einar Jónsson b. á Kletti í Reykholtsdal Dýrleif Einarsdóttir húsfr. á Nöf Stefán Pétursson b. á Nöf á Hofsósi Friðþóra Stefánsdóttir kenn. og húsfr. á Siglufirði Hólmfríður Jónsdóttir húsfr. í Brekkukoti Pétur Guðmundsson b. í Brekkukoti Þorbjörg Jónsd. húsfr. í Baugaseli Guðný Loftsd. húsfr. á Þúfnav. Barði Guðmundss. alþm. og þjóðskjalav. Eiður Guðmundsson hreppstj. og sagnaritari á Þúfnavöllum Jón Skafta- son, fv. alþm. og sýslum. Skafti Stefánsson útg.m. á Siglufirði. Snjólaug Þor- valdsdóttir hús- fr. á Laxamýri Jóhannes B. Sig- urjónss. óðalsb. á Laxamýri Jóna Kristjana Jóhannes- dóttir húsfr. í Rvík Benedikt Árnason leikstjóri Einar Benediktss. tónlistarm. og fyrrv. borgarfulltr Freysteinn Jóhannsson fyrrv. fréttastj. Morgunblaðins Rósa Sveinsdóttir húsfr. á Tungufelli, frá Hofi Sigurður Sigurðsson b. á Tungufelli í Svarfaðardal Sigríður Sigurðardóttir húsfr. á Tungufelli Þorvaldur Baldvinsson kennari og b. á Tungufelli í Svarfaðardal Jóhann Þorvaldsson skólastjóri Barnaskóla Siglufjarðar Þóra Sigurðardóttir húsfr. á Sökku Jóhann Sigur- jónsson skáld Snjólaug Sigur- jónsdóttir, húsfr. á Húsvík og í Rvík Sigurjón Sigurðs- son lögreglustj. í Rvík Jóhann Sigurjónsson forstjóri HAFRÓ Ingibjörg Sig- urðardóttir húsfr. í Edinborg Magnús Magnús- son dagskg.m. hjá BBC Sallý Magnúss. dagsskrárg.m. hjá BBC Þorsteinn Þorvalds- son b. á Stóru- Hámundarstöðum Kristín Þorsteinsdóttir húsfr. á Siglufirði Jóhann S. Hannesson skáld og skólameistari ML Þorsteinn Hannes- son óperusöngvari Hallfríður Hannesd. húsfr. á Siglufirði Páll S. Árdal heim- spekingur í Kanada Baldvin G. Þorvaldsson b. á Sökku í Svarf- aðardal, af Krossaætt Gestur Jóns- son lögmaður Helga Jóns- dóttir fyrrv. bæjarstýra í Fjarðabyggð Steindór fæddist á Kiðjabergi íGrímsnesi 25.9. 1889. For-eldrar hans voru hjónin Gunnlaugur Þorsteinsson, hrepp- stjóri á Kiðjabergi, og k.h., Soffía Skúladóttir húsfreyja. Kiðjaberg var þá sem síðar mikið myndarbú og mannmargt og gestkvæmt menning- arheimili. Systkini Steindórs voru Skúli, Guðrún, Jón, Halldór og Ingi. Steindór kvæntist Bryndísi, dóttir Pálma Þóroddssonar, prests á Hofs- ósi,og k.h., Önnu Jónsdóttur hús- freyju. Steindór og Bryndís áttu tvö börn; Önnu Soffíu og Gunnlaug Pálma. Steindór lauk embættisprófi í lög- fræði frá HÍ 1915. Eftir embættisróf var hann fulltrúi bæjarfógetans á Akureyri og síðar fulltrúi í dóms- málaráðuneytinu. Á þeim tíma var hann settur sýslumaður bæði í Skagafirði og Árnessýslu. Síðan var hann setudómari og sinnti mála- færslustörfum í Reykjavík. Árið 1931 varð Steindór lögtaks- fulltrúi lögmannsins í Reykjavík við innheimtu útsvars og sjúkra- samlagsgjalda og þeim starfa hélt hann fram yfir áttræðisafmæli sitt. Steindór var alla tíð mikill hesta- maður og átti ávallt afbragðs hesta, enda var hann góður tamninga- maður. Þegar Steindór gegndi emb- ætti sýslumanns í Skagafirði, var sérstaklega haft á orði hvað þau hjón væru glæst að vallarsýn. Steindór var trúaður maður og það kom fyrir að hann fékk að „stíga í stólinn“ og hélt þá ágætar ræður. Eitt sinn á Steindór að hafa verið spurður hvort hann hefði ekki frem- ur átt að verða prestur en lögfræð- ingur og hann á að hafa svarað með hægð: „Heldurðu ekki að lögfræð- ingur þurfi líka stundum á umburð- arlyndi Krists að halda?“ Steindór stundaði lögfræðistörf í 55 ár. Hann var maður grandvar, hógvær og heiðarlegur. Kjartan J. Gíslason frá Mosfelli sagði um þenn- an aldavin sinn: „Aldrei heyrði ég vin minn, Steindór, hallmæla nokkr- um manni, enda var hann ljúflingur og sannur mannvinur.“ Steindór lést 17. mars 1971. Merkir Íslendingar Steindór Gunnlaugsson 101 ára María Jóhannesdóttir 90 ára Arnþóra H. Sigurðardóttir Doris J. Tómasson 85 ára Anna Heiðdal Ásgeir Sölvason Jón Sigurvin Pétursson Kristín S. Guðjónsdóttir 80 ára Ólafur Björgúlfsson 75 ára Messíana Tómasdóttir Trausti Örn Guðmundsson Þórey Sigfúsdóttir 70 ára Auður Hermannsdóttir Bjarni Vésteinsson Fernando Alob Riantoco Margrét Jóhanna Vilmarsdóttir Skapti Þorgrímsson Sverrir Kristinsson 60 ára Anna Bára Pétursdóttir Erna Haraldsdóttir Hafdís Ósk Sigurðardóttir Hrefna Halldórsdóttir Jón Magnús Einarsson Kjartan Már Benediktsson Ómar Hugi Egilsson Pétur Vilhjálmur Hallgrímsson Sigurður Þór Salvarsson Tómas Eyjólfsson Wladyslaw Wieromiej Þórey Aspelund 50 ára Aðalheiður Esther Gunnarsdóttir Aðalsteinn Þórðarson Anna Bjarnadóttir Bjarnfríður Ósk Sigurðardóttir Bjarni Þór Bjarnason Brynjar Gylfason Eydís Rósa Eiðsdóttir Gísli Guðnason Helga Þórðardóttir Hulda Bragadóttir Margrét Sigurðardóttir Ólafur Ingvar Guðfinnsson Palma Rasmussen Sigfús Arnar Karlsson Stefán Flego Þorbjörn R. Steingrímsson Þór Bjarnar Guðnason 40 ára Anastasia Pavlova Árni Heiðar Ívarsson Eva Lind Vestmann Gabriele Ranfagni Guðmundur K. Jónsson Hanna María Pálmadóttir Jónas Örlygsson Nicolas Rodolphe Liebing Óskar Daði Pálmarsson Piotr Grzegorz Przado Sigursteinn Snorrason Unnur Guðný Gunnarsdóttir 30 ára Aðalsteinn Einarsson Andreia Filipa Andrade Guerra Aron Axel Cortes Ágúst Leó Sigurðsson Hafdís Ársælsdóttir Irena Rut Jónsdóttir Jóhann Björnsson Sóley Guðmundsdóttir Sunna Rún Baldvinsdóttir Sylvía Una Ómarsdóttir Thelma Rut Tryggvadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Thelma býr í Reykjavík og er flugfreyja hjá Icelandair. Maki: Kim Viljoen, f. 1986, matreiðslumeistari. Alsystkini: Helena Ýr, f. 1987, og Jón Þór, f. 1991. Hálfsystkini: Gabríel Ari, f. 2003, og Viktoría Sól, f. 2004. Foreldrar: Erna Rey- nalds, f. 1965, starfar hjá Icelandair Technical Services, og Tryggvi Daní- el Jónsson, f. 1962, sjóm. Thelma Rut Tryggvadóttir 30 ára Sylvía ólst upp á Hofsósi og í Reykjavík, býr í Reykjavík og er heimavinnandi sem stendur. Maki: Sveinn Ásgeirsson, f. 1985, ökuþór hjá Svans- prenti. Börn: Júlía Lind, f. 2007, og Jökull Þór, f. 2013. Foreldrar: Auðbjörg Kristín Guðnadóttir, f. 1966, matráður, og Þor- grímur Ómar Tavsen, f. 1965, sjómaður. Sylvía Una Ómarsdóttir 30 ára Sóley ólst upp í Hafnarfirði, býr í Reykja- vík, lauk prófi í hjúkr- unarfræði frá HÍ og er hjúkrunarfræðingur við bráðamóttöku í Fossvogi. Unnusti: Þórður Ósk- arsson, f. 1985, verkfræð- ingur. Foreldrar: Guðmundur Jónsson, f. 1957, við- skiptafræðingur, og Sig- ríður Sigurðardóttir, f. 1963, hjúkrunarfræð- ingur. Sóley Guðmundsdóttir KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR FYRIR HANN OG HANA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.