Skólavarðan - 01.04.2005, Blaðsíða 23

Skólavarðan - 01.04.2005, Blaðsíða 23
23 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005 Sífellt fleiri fagstéttir þurfa að takast á við erfiðar siðferðilegar spurningar í starfi sínu. Má þar m.a. nefna heilbrigðis- stéttir, kennara, blaðamenn og starfsfólk í viðskiptalífinu. Starfstengd siðfræði er sniðin að þörfum þessara hópa. Hún hefur það að meginmarkmiði að þjálfa fólk í að nota siðfræði við úrlausn raun- hæfra vandamála í nútímasamfélagi. Stúdentum eru kynntar helstu kenningar í siðfræði, lögð er áhersla á þjálfun í rök- ræðum um siðferðileg úrlausnarefni og ákvarðanir um þau. Fyrir hverja? Starfstengd siðfræði er kennd til 30 eininga og er viðbótarnám við grunnnám á háskóla- stigi og hægt að sækja um að taka M.Paed eða MA gráðu í framhaldinu. Þeir sem lokið hafa prófi í starfstengdri siðfræði hafa fjöl- breyttan bakgrunn, m.a. í hjúkrunarfræði, heimspeki, læknisfræði, leikskólakennslu og þroskaþjálfun. Námið er skipulagt í samvinnu við Kenn- araháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og geta nemendur valið námskeið sem kennd eru í þeim skólum í stað námskeiða við HÍ. Uppbygging námsins. Námið tekur þrjú misseri og er þá gert ráð fyrir að stúdentar ljúki 10 einingum á misseri. Mögulegt er að taka námið á lengri tíma sé þess óskað. Á fyrsta misseri (hausti) eru tekin tvö námskeið: Inngangur að heim- speki fjallar um viðfangsefni heimspek- innar og aðferðir og í Hagnýtri siðfræði er fjallað um tengsl fræðilegrar og hagnýtrar siðfræði og fjallað um efni eins og tjáning- arfrelsi, líknardráp, fóstureyðingar, réttindi dýra, stöðu fátækra ríkja, siðfræði stríðs og refsingar svo að dæmi séu nefnd. Á öðru misseri (vori) eru einnig tekin tvö námskeið. Í Inngangi að siðfræði er veitt yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum sið- fræðinnar og í Málstofu um starfstengda siðfræði koma gestafyrirlesarar og fjalla um það hvernig siðfræðileg vandamál mæta þeim í starfi. Á þriðja misseri vinna nemendur síðan við lokaverkefni sitt undir handleiðslu kennara við heimspekiskor. Verkefnið skal unnið í tengslum við ákveðið starf eða starfssvið þar sem raunveruleg siðferðileg vandamál eru greind, m.a. í ljósi siðfræði- legra kenninga. Heimspekiskor hefur faglega umsjón með náminu og Siðfræðistofnun sér um framkvæmd þess. Sækja þarf sérstaklega um námið til Siðfræðistofnunar háskólans. Nánari upplýsingar í síma 525 4195 eða sal- vorn@hi.is. Starfstengd siðfræði - Starfsmiðað nám við Háskóla Íslands HVAÐ SEGJA NEMENDUR? Starfstengda siðfræðin uppfyllti svo sannarlega væntingar mínar og er nám sem hefur fallið mjög vel að þörfum mínum og starfsvettvangi. Námið er mjög fjöl- breytt, áhugavert og hagnýtt. Ég er ekki í vafa um að þessi námsleið henta vel og nýtast mörgum stéttum sem vinna í þjónustu við fólk á ólíkum vettvangi. Sigríður Daníelsdóttir þroskaþjálfi. Nám í starfstengdri siðfræði var krefjandi og skemmtilegt, gefandi og gagnlegt. Það nýtist vel í leik og starfi og bæði svalaði þekkingarþorstanum og vakti hann. Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.