Skólavarðan - 01.04.2005, Page 23
23
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005
Sífellt fleiri fagstéttir þurfa að takast
á við erfiðar siðferðilegar spurningar í
starfi sínu. Má þar m.a. nefna heilbrigðis-
stéttir, kennara, blaðamenn og starfsfólk
í viðskiptalífinu. Starfstengd siðfræði
er sniðin að þörfum þessara hópa. Hún
hefur það að meginmarkmiði að þjálfa
fólk í að nota siðfræði við úrlausn raun-
hæfra vandamála í nútímasamfélagi.
Stúdentum eru kynntar helstu kenningar
í siðfræði, lögð er áhersla á þjálfun í rök-
ræðum um siðferðileg úrlausnarefni og
ákvarðanir um þau.
Fyrir hverja?
Starfstengd siðfræði er kennd til 30 eininga
og er viðbótarnám við grunnnám á háskóla-
stigi og hægt að sækja um að taka M.Paed
eða MA gráðu í framhaldinu. Þeir sem lokið
hafa prófi í starfstengdri siðfræði hafa fjöl-
breyttan bakgrunn, m.a. í hjúkrunarfræði,
heimspeki, læknisfræði, leikskólakennslu
og þroskaþjálfun.
Námið er skipulagt í samvinnu við Kenn-
araháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri
og geta nemendur valið námskeið sem
kennd eru í þeim skólum í stað námskeiða
við HÍ.
Uppbygging námsins.
Námið tekur þrjú misseri og er þá gert
ráð fyrir að stúdentar ljúki 10 einingum á
misseri. Mögulegt er að taka námið á lengri
tíma sé þess óskað. Á fyrsta misseri (hausti)
eru tekin tvö námskeið: Inngangur að heim-
speki fjallar um viðfangsefni heimspek-
innar og aðferðir og í Hagnýtri siðfræði er
fjallað um tengsl fræðilegrar og hagnýtrar
siðfræði og fjallað um efni eins og tjáning-
arfrelsi, líknardráp, fóstureyðingar, réttindi
dýra, stöðu fátækra ríkja, siðfræði stríðs og
refsingar svo að dæmi séu nefnd.
Á öðru misseri (vori) eru einnig tekin tvö
námskeið. Í Inngangi að siðfræði er veitt
yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum sið-
fræðinnar og í Málstofu um starfstengda
siðfræði koma gestafyrirlesarar og fjalla
um það hvernig siðfræðileg vandamál
mæta þeim í starfi.
Á þriðja misseri vinna nemendur síðan
við lokaverkefni sitt undir handleiðslu
kennara við heimspekiskor. Verkefnið skal
unnið í tengslum við ákveðið starf eða
starfssvið þar sem raunveruleg siðferðileg
vandamál eru greind, m.a. í ljósi siðfræði-
legra kenninga.
Heimspekiskor hefur faglega umsjón
með náminu og Siðfræðistofnun sér um
framkvæmd þess. Sækja þarf sérstaklega
um námið til Siðfræðistofnunar háskólans.
Nánari upplýsingar í síma 525 4195 eða sal-
vorn@hi.is.
Starfstengd siðfræði - Starfsmiðað nám við Háskóla Íslands
HVAÐ SEGJA NEMENDUR?
Starfstengda siðfræðin uppfyllti svo sannarlega væntingar mínar og er nám sem
hefur fallið mjög vel að þörfum mínum og starfsvettvangi. Námið er mjög fjöl-
breytt, áhugavert og hagnýtt. Ég er ekki í vafa um að þessi námsleið henta vel og
nýtast mörgum stéttum sem vinna í þjónustu við fólk á ólíkum vettvangi.
Sigríður Daníelsdóttir þroskaþjálfi.
Nám í starfstengdri siðfræði var krefjandi og skemmtilegt, gefandi og gagnlegt.
Það nýtist vel í leik og starfi og bæði svalaði þekkingarþorstanum og vakti hann.
Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur.