Skólavarðan - 01.04.2005, Blaðsíða 25
25
ENDURMENNTUN
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005
Heildarframlög menntamálaráðuneytis
til samstarfsnefndar um endurmenntun
framhaldsskólakennara verða 21 milljón
króna fyrir árið 2005 og lækka þar með
um tæpan þriðjung frá því árið áður.
Árið 2004 voru framlögin alls 29 milljónir
króna þar sem reiknað var með fram-
lögum til upplýsingatækni, faglegrar
endurmenntunar og skólaþróunar.
Allmiklar hækkanir hafa orðið á öllum
kostnaði milli áranna 2004 og 2005. Miðað
við þennan niðurskurð á framlögum er
ljóst að draga verður úr framboði á end-
urmenntun og stuðningi við kennara,
náms- og starfsráðgjafa og stjórnendur í
framhaldsskólum sem vilja sækja sí- eða
endurmenntunarnámskeið. Nauðsynlegt
verður að skerða framboð á vettvangs-
námi, sem er mjög miður því það hefur
gefið góða raun, auk þess sem minnka
verður framboð námskeiða í faggreinum,
á sviði upplýsingatækni og skólaþróunar.
Aðalfundur FF sem haldinn var í febrúar
sl. mótmælti þessari skerðingu fjárfram-
laga til endurmenntunar harðlega og
krefst þess að framlögin verði hækkuð að
raungildi miðað við árið 2004.
Ljósmynd Gerður Steinþórsdóttir.
Skert framlög til endurmenntunar
framhaldsskólakennara
Séra Baldur Vilhelmsson í Vatnsfirði fræddi
móðurmálskennara um heimaslóðir sína á
endurmenntunarnámskeiði sumarið 2004.