Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 2
Nú er loks að líta dagsins ljós nýtt blað
Kennarasambands Íslands sem hlotið
hefur nafnið Skólavarðan. Öllum er ljóst
mikilvægi þess að samtök eins og Kenn-
arasamband Íslands eigi sér öflugt mál-
gagn þar sem hægt er að koma á framfæri
stefnu sambandsins ásamt því að miðla
upplýsingum um starfsemina. Þá er ekki
síður mikilvægt að til sé blað þar sem fé-
lagsmenn geta komið sjónarmiðum sín-
um á framfæri, blað sem er vettvangur
skoðanaskipta og þar sem birtast greinar
um þau margvíslegu mál sem tengast
starfi kennara og skóla.
Það er von þeirra sem nú eru í forystu
Kennarasambands Íslands að Skólavarð-
an verði blað sem félagsmenn og aðrir
hafa bæði gagn og gaman af og það ásamt
heimasíðu Kennarasambandsins uppfylli
óskir félagsmanna um öfluga upplýsinga-
miðlun.
Nú er liðið ár síðan Kennarasamband
Íslands var stofnað í núverandi mynd.
Þetta ár hefur um margt verið viðburða-
ríkt og ekki er hægt að segja að logn-
molla hafi ríkt í samningamálum félag-
anna sem mynda sambandið. Markmiðið
með stofnun Kennarasambandsins var að
tryggja sjálfstæði félaganna í samninga-
málum og öðrum sérmálum þeirra en
tryggja um leið að sameiginleg mál yrðu
til lykta leidd. Samtakamátturinn hefur
þegar sannað gildi sitt, til dæmis í samn-
ingum um bætt réttindi í fæðingarorlofi
og veikindum, en á þeim vettvangi náði
Kennarasamband Íslands mjög góðum
árangri í samstarfi við BSRB og BHM.
Kjaramál einstaka félaga hafa verið á
ábyrgð samninganefnda þeirra og hafa
félögin vissulega farið ólíkar leiðir til
þess að ná markmiðum sínum. Fram-
haldsskólakennarar og stjórnendur
neyddust til að grípa til verkfallsvopnsins
til þess að fylgja eftir kröfum sínum og
eru nú að sjá árangur erfiðisins eftir átta
vikna verkfall. Kennarar og stjórnendur í
grunnskólum hafa náð samningum án
þess að grípa til aðgerða og er það vel.
Margir samverkandi þættir ráða því sjálf-
sagt að svo vel tókst til en rétt er að
benda á að samninganefnd Launanefndar
sveitarfélaga mætti að samningaborðinu
með fullt umboð til að gera kjarasamning
sem er nýlunda í samningasögu kennara,
a.m.k. svo langt aftur sem undirritaður
man.
Að því gefnu að tónlistarskólakennarar
nái ásættanlegum árangri í samningum
við viðsemjendur sína ætti að ríkja bjart-
sýni um framtíð skólanna og mætti þá
loks segja að kennarar væru komnir með
laun sem jöfnuðust á við þau sem al-
mennt eru greidd hópum með svipaða
menntun og ábyrgð.
Kjörorð sameiningarinnar var: Sjálf-
stæði í samningamálum — samstaða í
réttindamálum. Nú er komið á daginn að
félagsmenn í Kennarasambandi Íslands
eru tilbúnir að vinna undir þessu kjör-
orði og jafnframt hafa þeir sýnt að vinna í
þeim anda skilar góðum árangri.
Við skulum því horfa björtum augum
til framtíðar.
Eiríkur Jónsson
Skólavarðan janúar 2001
Formannspist i l l
3
Nýtt blað — nýtt
Kennarasamband
Íslands