Skólavarðan - 01.01.2001, Síða 8

Skólavarðan - 01.01.2001, Síða 8
ar sætta sig ekki við að hlutirnir séu ekki eftir þeirra höfði í einu og öllu. Um daginn mótmæltu þeir til dæmis próftíma fyrir- hugaðan dag og sögðu að hann hentaði þeim ekki. Það er engin spurning að börn eru orðin mun frakkari í tali en áður var.“ Að sögn Inga Viðars veldur ýmis upplausn á borð við til dæmis hjónaskilnaði röskun í bekkjarstarfi: „Þau koma bóka- laus af því að bækurnar gleymd- ust hjá pabba eftir pabbahelgi. Að auki eru mörg börn vansvefta og mæta án þess að hafa borðað morgunmat. Sum hver eru særð börn með mikla vanlíðan. Þau eru að glíma við mikla erfiðleika heima fyrir og andspænis þeim er hreinn hé- gómi að læra heima. Varðandi fjölskyldumynstrið þá rann upp fyrir mér ljós í haust hve breyt- ingarnar eru gífurlegar frá því sem áður var. Krakkarnir áttu að skrifa enskuritgerð um dæmigerðan dag í lífi sínu og nokkur þeirra tóku það sérstak- lega fram að foreldrar þeirra væru giftir, líkt og það væri ekki lengur eðlilegt ástand.“ Þeim sem líður illa fer fjölgandi Inga Mjöll segir að miðju- hópurinn, börn sem hafa það bærilegt, fari minnkandi ár frá ári. Hópurinn sem hafi það mjög gott og vel sé haldið utan um að öllu leyti standi í stað en fjölgunin sé í hópi þeirra sem líður illa. „Sá hópur er orðinn sorglega stór,“ segir hún. Ingi Viðar bendir á að merkja megi ýmsar breytingar sem hafi orðið á undanförnum fjórum til fimm árum þegar grannt er skoðað, meðal annars óvirðingu gagnvart skólareglum um mæt- ingu: „Margir krakkar hafa það viðhorf að ekki skipti máli hvort þeir mæta í tíma eða ekki, og það þrátt fyrir punktakerfi. Þetta er ný reynsla. Þeir eru á ganginum þegar bjallan hringir og leyna því ekki að þeir eru að skrópa. Gangaverðir eru fáir og anna ekki eftirfylgni hvað þetta varðar. Þetta virðingarleysi gagnvart skipulögðu starfi hefur komið fram á allra síðustu árum.“ Að sögn Ingu Mjallar er æ al- gengara að kennurum sé svarað með skætingi og úrræði kenn- ara í stórum bekkjardeildum séu fá: „Í fyrra vorum við með opna bekkjardeild hér í skólan- um og þangað var hægt að vísa nemendum sem voru með ólæti í bekkjarstofunni. Sökum þessa úrræðis leið öllum betur, vinnu- friður skapaðist hjá bekknum og þeim sem létu illa leið líka betur eftir en áður því að opna deildin var fámennari og betri aðstæður til að sinna þeim.“ Ingi Viðar bætir við að það sé skelfilegt en satt að einungis þurfi einn nemanda til að eyði- leggja bekkjarstarfið: „Réttur þeirra sem eru í skólanum til að læra er stöðugt fyrir borð bor- inn. Kerfið er þunglamalegt og virkar allt of seint. Bekkjar- deildir eru of stórar, hér í skól- anum eru allt upp í 30 manna bekkir og lausnir á borð við að flytja fólk til í sætum eru erfiðar í framkvæmd og hafa takmörk- uð áhrif. Að hafa einungis 20 manns í bekk væri draumastaða miðað við það sem við erum að berjast við. Í handbók Kennara- sambandsins er ekki einu sinni gert ráð fyrir svona mörgum, þar eru kladdar fyrir 28 manna bekki og svo þarf maður sjálfur að bæta hinum neðan við.“ Agi með aðstoð foreldra Inga Mjöll útskýrir að í Hagaskóla sé kerfi um hvernig tekið skuli á agabrotum en þau eru öll skráð í svokallaða vammabók. Á heimasíðu Haga- skóla er að finna eftirfarandi texta sem skýrir vel þetta kerfi: Í Hagaskóla er kennara heimilt að víkja nemanda úr kennslustund ef hann hefur valdið verulegri truflun og ekki látið skipast við áminn- ingu. Nemanda skal þá jafnan vísað á ákveðinn stað í skól- anum, svo sem skrifstofu skólastjóra eða aðstoðar- skólastjóra, skrifstofu skólans eða kennarastofu eftir að- stæðum. Skal kennari jafnan ræða málið einslega við nem- anda og jafnframt hafa sam- band við forráðamenn hans. Kennari ræðir mál einstakra nemenda við umsjónarkenn- ara / skólastjóra ef ástæða þykir til og leitast þeir við að ljúka málinu. Valdi nemandi verulegum vandræðum í skólanum með hegðun sinni ber umsjónar- kennara að leita orsaka og reyna að ráða bót á m.a. með viðtölum við nemanda og for- ráðamenn hans. Ef sú við- leitni ber ekki árangur skal umsjónarkennari vísa málinu til skólastjóra / nemenda- verndarráðs. Því miður er það staðreynd að sumir nemendur eiga erfitt með hegðun sína og halda á- fram að valda öðrum ónæði og óþægindum í kennslu- stundum og frímínútum þrátt fyrir ítrekuð tilmæli starfsfólks skólans. Eitt þeirra úrræða sem gripið hefur verið til er að fara fram á það við for- ráðamenn að þeir komi með barni sínu í skólann og gæti þess í kennslustundum og utan þeirra. Hefur þetta gefið góða raun og verður notað í enn meiri mæli ef ástæða verður til í von um stórbætta framkomu nemenda. Stjórn- endur Hagaskóla vænta þess því að nemendur og forráða- menn búi sig undir að vera saman í skólanum ef þess gerist þörf. Viðvera foreldra hefur verið reynd með góðum árangri, með- al annars í bekkjardeild þar sem óvenju margir nemendur ollu endurteknum truflunum. For- eldrar hafa komið og setið í tím- um og viðbrögð þeirra við þess- ari málaleitan skólans voru und- antekningalaust mjög jákvæð. Vandinn undir yfirborðinu „Það eru gömul sannindi og ný að þeir sem kalla hæst fá iðulega mest. Aðrir verða útundan,“ segir Ingi Viðar. „Krakkar eru eirðar- lausir og það er óhemjugangur í þeim, þetta er bara staðreynd. Þeim er gjarnt að grípa fram í og þeir hafa ekki þolinmæði til að bíða. Ef ég er að útskýra eitthvað á glæru og er efst í textanum eða dæminu heimta þau sem eru komin lengra að ég útskýri það sem er neðst. Þetta er vandamál sem við rekumst oft á.“ Inga Mjöll segir að krakkar heimti ekki bara, þeir reiðist líka um leið ef þeir fá ekki aðstoð strax: „En svo þarf ekki nema eitt fallegt atvik og maður gleymir um leið öllu streðinu í starfinu.“ Ingi Viðar tekur undir þetta. „Það er eitthvað innbyggt varn- arforrit í mann, maður man bara góðu stundirnar.“ „Langstærsti hluti nemenda er til fyrirmyndar,“ segir Inga Mjöll, „það má ekki gleymast.“ „Þess vegna er svo grátlegt að þurfa sí og æ að sýna á sér skammahliðina,“ segir Ingi Við- ar. „Sumir nemenda eru við- kvæmir og slíkt fer illa í þá, þeim líður ekki vel að sitja undir skömmum þótt þeim sé ekki beint að þeim sérstaklega. Þeir saklausu eru hins vegar stundum dæmdir til að sitja undir skammalestri og það er ekki gott. Meðal annars þess vegna er svo æskilegt að hafa möguleika á því að geta fjarlægt tímabundið þá sem trufla.“ Þau Inga Mjöll og Ingi Viðar segja að lokum að þessi vandamál séu of mikið undir yfirborðinu. Kennarar láti bjóða sér of mikið, til að mynda kennslu í allt of stórum bekkjardeildum, og því komi vandinn ekki upp á yfir- borðið. keg Skólavarðan janúar 2001 Inga Mjöll Harðardóttir og Ingi Viðar Árnason 9 Óróle ik i í skó lastofunni

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.