Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 13
líta á það sem nokkurs konar
námsmat.
Megináhersla kennslunnar er
á söng, takt og hrynþjálfun,
samspil og rythmik/dans. Auk
þess læra nemendur að fara
með rafhljóðfæri, hljóðnema og
magnarakerfi. Í Sabro var þar
að auki blómlegt leiklistarlíf
innan skólans sem tónlist flétt-
ast verulega saman við. Skólinn
setur upp nokkra söngleiki á
ári, síðastliðið ár m.a. Grease,
og nú var unnið af kappi að
dönskum söngleik sem heitir
Bölle Bob. Í Sabro var nótna-
lestur ekki kenndur sérstaklega
en í Hinnerup var hann kennd-
ur jafnhliða blokkflautuleik.
Úrval námsefnis er mjög
mikið og allmismunandi hvað
kennt var. Eldri kennarar
kenndu til dæmis gjarnan
danska alþýðusöngva, sambæri-
lega við fjárlögin okkar, og
gamla danska alþýðudansleiki
en yngri kynslóðin valdi heldur
nýtískulegri söngva og dansa.
Börnin sýndu hvoru tveggja
sambærilegan áhuga og nutu
þess greinilega að syngja og
dansa saman. Suður-amerískir
taktar og dansar voru ofarlega á
dagskrá hjá yngri kennurum og
taktar eins og calypso, cha cha
cha og salsa voru mikið leiknir,
klappaðir, stappaðir, stignir og
sungnir.
Brenna út ef þeir kenna
of mikið
Stefna beggja skólanna er að
einungis þeir kenni tónmennt
sem hafa lært til þess. Allir tón-
menntakennararnir höfðu haft
tónmennt sem valgrein í kenn-
aranámi sínu og síðan endur-
nýjað og haldið þekkingu sinni
við með því að sækja námskeið.
Í báðum skólunum var sú stefna
að tónmenntakennarar skyldu
einnig vera bekkjarkennarar,
ekki endilega í þeim bekkjum
sem þeir kenndu tónmennt.
Það var samdóma álit þeirra níu
tónmenntakennara sem ég
ræddi við að tónmennt mætti
ekki vera meira en u.þ.b. þriðj-
ungur af kennsluskyldu þeirra
þar sem tónmenntakennsla væri
svo krefjandi og útheimti svo
mikla og stöðuga einbeitingu,
bæði andlega og líkamlega, að
enginn héldi meira út til lengd-
ar. Því væri veruleg hætta á að
tónmenntakennarar brynnu út,
kenndu þeir of mikla tónmennt.
Hafi nemendur vilja til að
nema meiri tónlist en grunn-
skólinn getur boðið þeim verða
þeir að kaupa tíma í einkaskól-
um eða einkatímum. Þó býður
frístundaskólinn (ungdoms-
skolen) í Sabro, sem er rekinn
af nokkrum nágrannabæjarfé-
lögum í Árósasýslu, upp á leik-
list þar sem tónlist er einnig
verulegur þáttur. Þar leiðbeina
starfandi tónlistarmenn í sam-
starfi við tónmenntakennara
þeim nemendum sem taka þátt í
söng og hljóðfæraleik í leiksýn-
ingunum. Þetta starf stendur
öllum unglingum á aldrinum 13
til 18 ára til boða ókeypis og
nýta margir sér það.
Mér var þessi ferð afskaplega
innihaldsrík. Móttökur í skólun-
um báðum voru mjög góðar og
ég fékk að fara um skólana alla
og kynna mér aðbúnað þeirra.
Virtist mér sem almennt væri
allmiklu betur búið að því starfi
sem fram fer í skólunum en víða
hér á landi. Aftur á móti var
enginn íburður í skólabygging-
um, þær voru einungis snyrtileg
skel um það starf sem fram fer
innan dyra. Listskreytingar inn-
an skólanna voru allar unnar af
nemendum og vel vandað til
umbúnaðar þeirra sem endast
skyldu lengur en árið.
Ég þakka öllum þeim er
lögðu mér lið við undirbúning
og framkvæmd ferðarinnar.
Höfundur er Sunnlendingur,
fæddur 1949, lauk kennara-
prófi 1969 og prófi í sér-
kennslu 1971. Hann hefur
kennt alla tíð síðan, fyrst við
Gagnfræðaskólann á Hellu
(yfirkennari þar 1971-72), síð-
an við Heyrnleysingjaskólann
1972-78 og loks við Kirkjubæj-
arskóla á Síðu frá 1978, en
þar hefur hann m.a. kennt
tónmennt síðustu fimmtán ár.
Skólavarðan janúar 2001
Tónmennt í tve im dönskum grunnskólum
15
Námslaun
Rétt til námslauna hafa fullgildir félagar í FT og FÍH sem
greitt er fyrir í sjóðinn. Sjóðsstjórn er heimilt að veita náms-
laun í allt að tólf mánuði. Skilyrði fyrir umsókn er:
Að umsækjandi hafi starfað í tíu ár við tónlistarkennslu.
Að umsækjandi hafi ekki fengið full námslaun úr starfs-
menntunarsjóði
FT og FÍH síðastliðin tíu ár.
Að nám sé endurmenntun, viðbótarmenntun eða framhalds-
menntun og nýtist umsækjanda að námi loknu.
Umsóknarfrestur um námslaun er til 15. febrúar ár hvert.
Sjá nánar um Starfsmenntunarsjóð á heimasíðu Kennara-
sambandsins.
Starfsmenntunarsjóður
tónlistarskólakennara