Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 3

Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 3
4 Leiðar i Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Hönnun: Penta ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson Teikningar: Ingi Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470 Prentun: Prentsmiðjan Grafík / Gutenberg ehf. Forsíðumynd: Jón Svavarsson / Penta ehf. Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). Veit hann ekki hver vindstaðan er? Ég fór að velta því fyrir mér um daginn - þegar ég var að fletta aðalnámskrám hinna ýmsu skólastiga - hvað hún er lævís og lipur þessi krafa um að komast yfir allt. Gína við og yfir öllu. Í aðalnámskrám er leynt ef ekki ljóst gerð sú krafa til kennara að þeir fullkomni nemend- ur sína. Geri þá að eins konar sjálfvirknivélum sem geti tileink- að sér mestalla þekkingu, sem mannsheilinn hefur yfir að ráða, á árunum fram að stúdentsprófi og séu aukinheldur búnir sínæm- um móttökurum til að tileinka sér hvaðeina annað sem lífið kann að kokka upp af þörfum fyrir óvænta þekkingu og kunnáttu síðarmeir. Í hvelli. Það er nokkuð ljóst að eigi kennarar að búa til sam- félagsþegna sem vinna svona hratt og yfirgripsmikið þá gefst ekki mikið svigrúm til ígrundunar. Í Morgunblaðsviðtali fyrir nokkrum árum sagði Sveinn Einarsson sísona: „Það að hugsa þykir ekki par fínt í íslensku leikhúsi.“ Við skulum leyfa okkur rétt sem snöggvast að setja orðið „samfélag“ í staðinn fyrir „leikhús“ inn í jöfnu Sveins og halda áfram að grípa niður í orð hans: „Það að hugsa ekki þykir aftur á móti smart, enda hafa titrandi glansmyndir gert myrk og leitandi orð óþörf, er okkur sagt.“ Matthías Viðar Sæmundsson gerði sér síðar mat úr þessum orðum Sveins á sinn háðska hátt: „Hugsun!“ hrópar Matthías upp (í pistli frá 1998 á heimasíðu sinni) og heldur áfram: „Hvar hefur maður- inn eiginlega verið, spyr ég, hann gæti eins hafa sokkið með Títaník, því veit hann ekki hver vindstaðan er, að þekking þykir hallærisleg og að hvergi er minna hugsað en í leikhúsinu sem hann stjórnaði eitt sinn; því hver nennir að horfa á hugsanir nú á dögum?“ Ég býð lesendum Skólavörðunnar að setjast niður, ef þá langar til og ef tími gefst, ígrunda orð þeirra Sveins og Matthíasar og setja inn þau orð sem þeim hugnast sjálfum í staðinn fyrir orðið „leikhús“. Leiðarinn er ekki lengri að sinni. Kristín Elfa Guðnadóttir Efni Greinar Framtíðarsýn: Samskipan grunn- og endurmenntunar 8 Ingvar Sigurgeirsson segir með ólíkindum hversu illa hafi gengið að skapa skilning á því hve naum þrjú skólaár séu til að gera skil öllum viðfangsefnunum sem kennarar þurfa að hafa á valdi sínu. Íslenskt menntakerfi á villigötum 10 Í viðtali við Skólavörðuna segja nokkrir skólamenn á Höfn í Hornafirði að ýmislegt megi betur fara í skólamálum þjóðar- innar og gagnrýna meðal annars samræmd próf. Fjölmenningarvefur Breiðholtsskóla 13 Viðtal við Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur um frábæran fjölmenningarvef, kíkið á þennan! Endurskipulagning tónlistarfræðslunnar aðkallandi 14 Þórir Þórisson og Sigurgrímur Skúlason hafa staðið að stór- merkilegri tilraun í hljóðfæranámi og meðfylgjandi rannsókn með þátttöku fjölmargra nemenda, kennara og foreldra. Einelti á vinnustöðum 18 Eineltismál eru eins konar þema haustsins hjá grunnskóla- kennurum en sérstök námskeið um þau hafa verið haldin undanfarið á vegum FG, ýmist í tengslum við haustþing eða trúnaðarmannanámskeið félaganna. Honk! Burt með fordómana! 19 Felix Bergsson segir frá nýjum gamansöngleik sem sýndur er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir þar sem tekið er á eineltisvandanum á eftirminnilegan hátt. Náms- og starfsráðgjöf í Viku símenntunar 20 Hrafnhildur Tómasdóttir sagði meðal annars frá hugmynd- inni um ráðgjafarmiðstöð fyrir almenning í erindi sínu á Viku símenntunar í september síðastliðnum. Heimspeki - Listir - Leikur 22 Guðrún Alda Harðardóttir heldur því fram að oft sé erfitt að greina á milli leiks, heimspeki og listar og mikilvægt að tengsl séu markvisst mynduð þarna á milli í starfi með börnum. Brottfall nemenda í brennidepli 24 Evrópsk tengslaráðstefna um brottfall úr skólum var haldin nýverið og þar sagði Eiríkur Brynjólfsson meðal annars frá Námsveri unglinga í Austurbæjarskóla, sem á sér enga hliðstæðu hérlendis og þótt víðar væri leitað. Fastir liðir Formannspistill 3 Eiríkur Jónsson skrifar. Gestaskrif 5 Linda Vilhjálmsdóttir í skáldlegum uppáhelling... og það bragðgóðum. Skóladagar 6, 27 Tveir skammtar af myndasögu Skólavörðunnar að þessu sinni! Smiðshöggið 30 Magnúsi Þorkelssyni finnst hann stundum innilokaður í kassa en kann sem betur fer ráð við vandanum. Auk þess hinn eldhressi Elli eldfluga, smáauglýsingar, kjaramál, leiðari, tilkynningar og síðast en ekki síst fréttir um allt milli himins og jarðar.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.