Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 7
Einn helsti vandi við skipulagningu
kennaramenntunar er hversu fjölþættar
kröfur eru gerðar til kennara. Þennan
vanda verður einnig að skoða í ljósi þess
hve stutt kennaranámið er, eða aðeins þrjú
háskólaár, miðað við almenn kennslurétt-
indi á leik- og grunnskólastigi. Er með
ólíkindum hve illa hefur gengið að skapa
skilning á því hversu naum þrjú skólaár eru
til að gera skil öllum þeim fjölmörgu við-
fangsefnum sem kennarar þurfa að hafa á
valdi sínu. Og varla þarf að útlista fyrir les-
endum Skólavörðunnar að kröfur til kenn-
ara fara stöðugt vaxandi.
Tökum dæmi af umsjónarkennara á mið-
stigi grunnskóla. Hann þarf auðvitað að
kunna vel allar þær greinar sem hann á að
kenna, en það eru gjarnan fimm til átta
námsgreinar. Auk kunnáttu í greinunum
þarf hann að hafa kennslu- og námsmats-
aðferðir vel á valdi sínu, þekkja og geta
beitt kennslutækni, kunna aga- og bekkjar-
stjórnun, geta kennt í blönduðum nem-
endahópum, hafa þekkingu á sértækum
námsörðugleikum, búa yfir leikni til að
geta komið til móts við ólíka nemendur,
kunna að taka á samskiptavandamálum,
einelti og áföllum í nemendahópnum og
geta átt gefandi og uppbyggileg samskipti
við foreldra, svo að fátt eitt sé nefnt af
þeim fjölmörgum viðfangsefnum sem
kennari þarf að takast á við í daglegu starfi.
Þá má nefna nýjar kröfur í tengslum við
skólanámskrárgerð, sjálfsmatsaðferðir, þró-
unarstarf, tölvu- og upplýsingatækni og
fjölmenningarkennslu, að ekki sé minnst á
nýjar námsgreinar (t.d. lífsleikni, tækni-
mennt og leikræna tjáningu). Enn má
nefna kröfur um þekkingu og hæfni í for-
varnastarfi, þekkingu á fjölmiðlum, um-
hverfismennt og umferðarmálum. Þá þarf
vel menntaður kennari vitaskuld einnig að
þekkja uppeldis- og skólasögu, þroskasál-
fræði, námssálarfræði, félagsfræði, heim-
speki menntunar og hafa innsýn í mennta-
rannsóknir. Og varla er hægt að hugsa sér
menntaðan kennara nema hann þekki lista-
sögu og hafi innsýn í listmenntir og fagur-
fræði. Rannsóknum á námi og kennslu
fleygir hratt fram og þarf að hafa sig allan
við til að fylgjast með þeim fjölmörgu
áhugaverðu straumum sem nú flæða um
skólakerfið. Og þennan þráð má lengi
Kennaramenntun
8
Kennaramenntun er í stöðugri mótun
enda brýnt að nemendur í grunn-
skóla, jafnt sem á öðrum skólastigum,
hafi aðgang að úrvalskennurum með
gott nám að baki sem gerir þeim kleift
að takast á við fjölbreyttar kröfur í
samfélagi örra breytinga. Skólavarð-
an fékk Ingvar Sigurgeirsson prófess-
or í kennslufræði við Kennaraháskóla
Íslands til að segja lesendum frá
þeirri gerjun sem á sér stað í kennara-
náminu.
Framtíðarsýn:
Samskipan grunn- og endurmenntunar
„Það er með ólíkindum hve illa hefur gengið að skapa skilning á því hversu naum þrjú skólaár eru til að gera skil öllum þeim fjölmörgu viðfangsefnum
sem kennarar þurfa að hafa á valdi sínu,“ segir Ingvar Sigurgeirsson.