Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 8

Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 8
spinna enn þó að það verði ekki gert hér. Lenging kennaranáms er nauðsyn Í þessu ljósi má halda því fram að kennaramennta- stofnanir séu í þeirri stöðu að þurfa að gera ókjörum mikilvægra viðfangsefna skil á alltof naumum tíma. Fátt verður því skoðað til hlítar og veruleg hætta á að umfjöllun verði yfir- borðsleg í kapphlaupinu við að koma öllu til skila. Lenging kennaranáms er því fyrir löngu orðin afar brýn. Engu að síður er ljóst að því fer fjarri að hún ein og sér leysi þennan vanda allan. Þær aðstæður sem hér er lýst og ör þró- un á öllum sviðum vekur krefjandi spurn- ingar um hvernig best verði staðið að kennaramenntun svo að viðunandi sé. Færa má rök fyrir því að grunnmenntun ein dugi ekki lengur til að skapa þann þekkingar- og leiknigrunn sem nauðsynlegur er. Kenn- arastarf krefst stöðugrar menntunar, þ.e. öflugrar símenntunar. Krafan um stöðuga endurmenntun verð- ur sífellt áleitnari. Hvarvetna í samfélaginu er verið að huga að símenntunarmálum. Fyrirtæki sem hvað mestum árangri ná skilgreina nú endurmenntun sem stöðugt stærra hlutfall starfa og menntun starfs- manna jafnvel talin til eignaaukningar fyr- irtækisins! Á sama tíma má segja að símenntunar- mál kennara séu með vissum hætti í upp- námi. Nýir kjarasamningar virðast hafa haft neikvæð áhrif á hvatningu til endur- menntunar og breyttur starfstími skóla skapar vissa örðugleika á framboði á endur- menntun. Þá er ljóst að eftir flutning grunnskólans til sveitarfélaga hefur sí- menntunartilboðum verið drepið á dreif. Vonandi er hér um tímabundið ástand að ræða og víst er að endurmenntunarmál eru mjög í deiglunni í skólum um þessar mundir. „Opinn“ háskóli Í Kennaraháskólanum fara nú fram um- ræður um það með hvaða hætti sé best að byggja upp vandaða símenntun fyrir kenn- ara og þroskaþjálfa. Helst er litið til hug- mynda sem kenna má við „opinn“ háskóla. Þær hafa fengið nokkurn byr í ljósi þess að fjarnám hefur verið að eflast mjög við skól- ann á undanförnum árum og er nú svo komið að meirihluti nemenda stundar nám sitt við skólann sem fjarnám. Í þessu sam- bandi má nefna að um 500 kennarar og þroskaþjálfar eru nú í framhaldsnámi við skólann sem að hluta til er skipulagt sem fjarnám og því unnt að stunda það með starfi. Athygli hefur nú beinst að fjölbreytt- um símenntunarmöguleikum innan grunn- deildar skólans. Nefna má möguleika sem byggjast á nýjum námsbrautum og náms- leiðum í kjölfar sameiningar þeirra skóla sem nú mynda Kennaraháskólann, nýjar uppsetningar á kjörsviðum (sem m.a. tengj- ast nýrri aðalnámskrá) og stóraukna áherslu á valnámskeið og frjálst val. Fjölmargir möguleikar sýnast vera á því að bjóða þetta nám fram sem sí- eða viðbótarmenntun, bæði í staðnámi og ekki síður í fjarnámi. Sem dæmi má nefna að tilvalið sýnist að starfandi kennarar stundi fjarnám meðfram starfi þar sem þeir bæta til dæmis við sig námi á kjörsviði, en um skeið hefur þetta verið vinsæll kostur meðal kennara í orlofi. Í þessu sambandi má benda á áhugaverð ný kjörsvið eins og nám og kennslu yngri barna og tölvu- og upplýsingatækni. Þá ætti að vera spennandi að bæta við sig námi í íslensku og stærðfræði, en þessi kjörsvið hafa bæði verið stækkuð. Og hví skyldi það ekki freista kennara að bæta við sig námi í samfélagsgreinum, náttúrufræði eða list- greinum? Enn má nefna að opna kennurum og þroska- þjálfum námskeið á öðrum námsbrautum. Það ætti til dæmis að vera áhugavert fyr- ir leik- og grunnskólakenn- ara að bæta við sig námi á íþrótta-, tómstunda- eða þroskaþjálfabraut. Í Kennaraháskólanum er mikið framboð af námskeið- um sem nýst gætu sem hluti símenntunar. Sem dæmi má nefna að í núgildandi náms- og kennsluskrá skólans er boðið upp á fjölda áhugaverðra valnám- skeiða, til dæmis um það hvernig kennarar geti komið til móts við ólíkar þarfir nem- enda, aga og agavandamál, áföll í nem- endahópnum, gagnrýna hugsun, heildstæða móðurmálskennslu, karlmennsku og kenn- arastarf, leikræna tjáningu, heimspekilega samræðu, ljósmyndun, læsi, miðla og menntun, námsmat og prófgerð, næringu og líkamsrækt í skólastarfi, stærðfræði sem leik, tónlist í skólastofunni, starf umsjónar- kennarans, bekkjarstjórnun, fjölmenning- arlegt samfélag, hljóðfæragerð og tónsköp- un, hnattvæðingu og menntastefnu, kennslu í fámennum skólum, lífsleikni og neytendafræðslu, listir í skólastarfi, um- hverfismennt, samvirkt nám, skapandi skólastarf, skólastarf og fjölmiðla, tengsl leikskóla og grunnskóla. Hér eru aðeins talin þau valnámskeið sem í boði eru á grunnskólabraut. Á næstu misserum verður skoðað með hvaða hætti þessum spennandi endur- menntunarkostum verður best komið á framfæri við starfandi kennara og þroska- þjálfa. Upplýsingar um símenntun á vegum Kennaraháskólans er að finna á vef hans: www.khi.is eða á vef Símenntunarstofnun- ar: http://simennt.khi.is Ingvar Sigurgeirsson Kennaramenntun 9 Í Kennaraháskólanum fara nú fram umræður um það með hvaða hætti sé best að byggja upp vandaða sí- menntun fyrir kennara og þroskaþjálfa. Helst er litið til hugmynda sem kenna má við „opinn“ háskóla. Þær hafa fengið nokkurn byr í ljósi þess að fjarnám hefur eflst mjög við skólann á undanförnum árum og er nú svo komið að meirihluti nemenda stundar nám sitt við skólann sem fjarnám.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.