Skólavarðan - 15.10.2002, Qupperneq 21
Í um 50 ár hefur verið stundað framúr-
skarandi skólastarf í leikskólunum í Reggio
Emilia á Norður-Ítalíu og þar hafa list-
greinar verið mikið notaðar. Frá 1987 hef-
ur verið starfað í þessum anda í leikskólan-
um Marbakka í Kópavogi og nú vinna að
minnsta kosti þrettán leikskólar hér á landi
á þennan hátt.
Rætur skólastarfs í anda Reggio er að
finna í leikskólum en það hefur hægt og
bítandi verið að færast yfir á grunnskóla-
stig. Heimspeki með börnum á hins vegar
uppruna sinn í grunnskólum en hefur verið
að teygjast yfir á leikskólastigið. Heimspeki
með börnum í leikskólum á sér ekki langa
sögu á Íslandi, en starfsfólk leikskólans
Foldaborgar í Reykjavík ruddi brautina og
hóf að stunda heimspeki með leikskóla-
börnum árið 19944 og 1999 var svo farið af
stað með slíkt starf í leikskólanum Lundar-
seli á Akureyri.
Við rannsóknarvinnuna dvaldi ég í þrjá
mánuði í barnaheimspekimiðstöðinni
(IAPC) í Mont Clair í New Jersey fylki í
Bandaríkjunum og sex mánuði í borginni
Reggio Emilia á Ítalíu. Vinnan fór einnig
fram á Akureyri, í Kópavogi og Reykjavík.
Helstu rannsóknaraðferðir voru viðtöl,
vettvangsathuganir og textagreining á
frumtextum.
Hvað er heimspekilegt?
Hér í þessari stuttu grein verða aðeins
dregnir fram nokkrir þættir og leitast við
að svara spurningum eins og: Er heimspeki -
heimspeki? Er leikur - leikur? Eru listir - list-
ir? Og ber að varast að blanda þessu saman?
Hvar liggja mörkin á milli þess sem telst
vera heimspekilegt og þess sem ekki telst
vera það? Hugmyndafræðingurinn að baki
heimspeki með börnum, Mathew Lipman
prófessor hjá IAPC, segir eitt svar við
þeirri spurningu geta verið að samræða sé
munnleg rannsókn, rökleg rannsókn sem
vaxi líkt og afurð. Það sem geri samræðu
heimspekilega telur hann vera tengsl við
hugtök sem krefjist heimspeki frekar en
annarra greina. Engar aðrar greinar krefjist
þess að eiga samræðu um réttlæti eða sann-
leika.
Hann bendir á að fjöldinn allur af mjög
almennum, illa skilgreindum, óhlutbundn-
um hugtökum tengist heimspeki. Einstakl-
ingar innan annarra greina segi gjarna:
„Þið getið átt þau, það er ekkert hægt að
gera við þau,“ og heimspekingar segi: „Allt
í lagi, við tökum þau.“ Rökfræði, ígrundun
um þætti eins og: Hvað er þekking? Hvað
er veruleiki? Þekkingarfræði, frumspeki.
Hvað er fallegt? og svo framvegis.
Lipman telur að ekki sé hægt að skil-
greina hvar heimspekin er, hún geti verið
alls staðar. Af fyrrgreindu dreg ég þá álykt-
un að hægt sé að ástunda heimspeki á öll-
um skólastigum.
Í lögum um grunnskóla
er kveðið á um að í starfi
skólans skuli leggja áherslu
á að nýta leiki barna sem
náms- og þroskaleið. Í lög-
um um leikskóla gegnir
leikur einnig mikilvægu
hlutverki. Í framhaldi af því
er rétt að velta fyrir sér hvað leikur er,
Knutsdotter-Olofsson skilgreinir leik sem
ástand en ekki hegðun. Það er, að einungis
sá sem leikur sér veit hvort hann er í leik
eða ekki. Barn getur til dæmis verið að þvo
dúkku vegna þess að dúkkan er óhrein og
það getur verið að þvo henni vegna þess að
það leikur að hún sé óhrein.
Myndlistarmaður og stelpa
að moka
Ef leikur er hugarástand getur þá
heimspeki verið leikur? Ann Sharp
heimspekingur við IAPC telur að
heimspeki sé dásamlegur leikur.
Leikur sé ein hlið af samræðum,
til dæmis að láta sig dreyma um
aðra heima, velta fyrir sér með
vinum sínum hvort máninn sé
grænn og svo framvegis. Einnig
kom fram hjá heimspekingunum
að eitt grundvallaratriði leiks er rökleikni
og í leiknum æfist hún, svo og í samræðu-
félagi.
Það má segja að listamaðurinn sé sá sem
heldur áfram að taka mark á leiknum - trú-
ir á mátt hans. Hann notar leikinn meðvit-
að og ómeðvitað í listgerð sinni og ef til vill
er list ekki list ef hún er ekki leikur. Mynd-
listarmaðurinn, tónsmiðurinn, eðlisfræð-
Heimspeki í le ikskólum
22
Hér verður í örstuttu máli greint frá
hluta af rannsókn sem ég hef nýlega
lokið við. Hún er til komin vegna
áhuga míns til margra ára (síðan
1985) á leikskólastarfi í ítalska bænum
Reggio Emilia og síðar á heimspeki
með börnum. Fyrir um sex árum
kynntist ég barnaheimspekinni og eft-
ir því sem ég öðlaðist meiri þekkingu
á henni þóttist ég merkja ýmislegt líkt
með henni og þeirri sýn á nám sem
ríkir í leikskólunum í Reggio og mér
lék hugur á að skoða það nánar.
Heimspeki - Listir - Leikur
Myndlistarverkefni notað með sögunni ásamt
samræðum - þegar verkefnið er komið á stað
er beitt heimspekisamræðutækni og rannsókn
hafin!
Kennarar í Lundarseli
Heimspekivinna í myndlist er tengd saman með
því að börnin upplifa myndverkin, greina mis-
munandi tilfinningar og nota hugmyndir sínar
sem kveikju að samræðum.
Kennarar í Lundarseli
Guðrún Alda Harðardóttir
L
jó
s
m
y
n
d
ir
n
a
r
e
ru
f
rá
l
e
ik
s
k
ó
la
n
u
m
L
u
n
d
a
rs
e
li
á
A
k
u
re
y
ri
.