Skólavarðan - 15.10.2002, Qupperneq 22

Skólavarðan - 15.10.2002, Qupperneq 22
ingurinn og þriggja ára telpan, sem situr og mokar í sandkassanum, kljást við sama ferli. Maður heldur sig við það sem maður kann til að henda sér síðan út í ringulreið og finna skyndilega ný form fyrir hugsanir og reynslu. Fyrstu skref rannsakanda geta ver- ið þannig að hann veit ekki hver spurning- in er. Hann byggir og breytir, snýr hlutun- um fram og aftur, aftur og aftur, bætir við og hendir út. Ef list er leikur og heimspeki er leikur, má spyrja sig hvort þessar greinar séu undirgreinar leiks? Svo er ekki, heimspeki er sjálfstæð fræðigrein og sama gildir um listgreinar. Heimspekingarnir hjá barnaheimspekimið- stöðinni (IAPC) leggja áherslu á að aðrar greinar, eins og listgreinar, verði hluti af heimspekivinnu. Þó verði að fara varlega í þeim efnum svo að aðrar greinar, eins og til dæmis dans, myndlist og sálfræði, verði ekki flokkaðar sem heimspeki, sem þær eru ekki. Heimspekingarnir segjast tengja aðrar greinar við barnaheimspeki, til dæmis kom það fram hjá Sharp, en hún segir: „Þegar ég skrifaði „Brúðuspítalann“, reyndi ég að finna eitthvað fyrir hvert þema; hugtak, dans, leikræna tjáningu, leik, brúðuleik eða eitthvað þar sem við notuðum líkamann.“ En heimspekingarnir eru sammála um að greinarnar verði að tengjast umræðunni. Af fyrrgreindu dreg ég þá ályktun að oft sé erfitt að greina á milli leiks, heimspeki og listar, að leikurinn komi þar oft við sögu, hins vegar er mikilvægt að kalla hlut- ina sínum réttu nöfnum og flokka fræði- greinar rétt. Mikilvægt er að greinar eins og leikur og listgreinar verði hluti af heim- spekivinnu þó að þær flokkist ekki sem heimspeki. Guðrún Alda Harðardóttir Höfundur er lektor við Háskólann á Akureyri. Heimpeki í leikskóla á Akureyri Heimspekivinna með börnum Í leikskólanum Lundarseli fléttum við svokallaðri barnaheimspeki inn í alla þætti starfsins. Tilgangur þess að stunda heimspeki með börnum er í raun að halda í hæfi- leika barna til að undrast, þróa þann hæfileika áfram og efla þau til sjálfstæðrar, gagnrýninnar, skapandi og umhyggjusamrar hugsunar. Börnin mynda með sér samræðufélag þar sem lögð er áhersla á að þau tjái skoðanir sínar og hlusti á hugmyndir hvert annars. Samræðan gengur meðal annars út á að finna rök fyrir skoðunum sínum, segja sína hlið á málinu, lýsa hverju þau eru sammála og ósammála, leiðrétta hvert annað og þróa hugmyndir sínar og kenningar í samein- ingu. Vinnubrögð barnaheimspeki eru nú orðin flestum börnunum töm enda marg- breytilegar leiðir farnar til að skapa sam- ræðugrundvöll í skólanum. Við lesum bæk- ur sem veita möguleika á samræðurann- sókn - allskonar barnabækur og þjóðsögur. Við tengjum og notum listir, leiki eða vett- vangsferðir svo og hið daglega starf við heimspekina. Þætti eins og: • Tónlist - hlustun. • Myndlist - myndsköpun og að lesa í myndmál. • Tjáningu og spuna - tilfinningar og dans. • Leiklist - brúðusýningar, söng og ljóð. • Hlutverka- og þykjustuleiki - hugmyndir gripnar á lofti. • Sköpunar- og byggingarleiki - með einingarkubbum. • Vettvangsferðir tengdar náttúru og umhverfi, menningu og samfélagi - heimsóknir á söfn og skoðunarferðir. Við teljum barnaheimspeki vera frábæra námsleið í leik með börnum og skemmti- lega viðbót við hið frjóa starf sem fer fram í leikskólum Akureyrarbæjar. Leikskólakennarar í Lundarseli Heimspeki í le ikskólum 23 Dæmi af heimspekivinnu Við lesum sögu um strák sem býr til snjókarl og snjókarlinn biður hann að fljúga með sér til fjarlægs lands til að gefa veikum strák leikföng. Í lokin bráðnar svo snjó- karlinn. Kennsluleiðbeiningarnar með sögunni taka á meginatriðum textans ásamt verkefnum í listum og leik. Sem dæmi bjóðum við börnunum að teikna snjókarla eft- ir sögulesturinn og á meðan þau teikna/mála rannsaka þau málin út frá reglum og tækni heimspekisamræðunnar. Þau pæla í gerð, stærð, eiginleika og hlutverki snjó- karla, nota spurningar eins og: • Úr hverju eru snjókarlar? • Hverjir búa þá til? • Hvar eiga snjókarlar heima? • Verður snjókörlum kalt? • Getur snjókarl hugsað? • Snjókarlar eru til vegna þess að... • Getur snjókarl dáið? Hvert fer hann? • Getur ljósið dáið? Hvert fer það? Hvaðan kemur ljósið? Skráning úr heimspekivinnunni um snjókarlinn: Spurning: Hvert fer snjókarlinn þegar hann deyr? Barn 4: Þá fer hann upp á sjúkrahús. Barn 5: Nei, upp til himna. Barn 2: Hann fer til Guðs. Barn 4: Nei, hann fer á sjúkrahús, á svona bakka í bílinn og svo keyrir bíllinn upp á sjúkrahús. Barn 5: Nei, hann fer upp til himna. Barn 4: Nei, hann fer á bakka. Spurning: Hvað gerist svo þegar hann kemur upp á sjúkrahús? Barn 4: Þá fer hann inn á sjúkradeild. Barn 1: Já og læknast. Barn 4: Stundum læknast fólk og verður frískur. Barn 2: Á ég að segja ykkur eitt, snjókarlar geta ekki dáið. Barn 3: Þegar maður bráðnar fer maður upp. Áframhaldandi verkefni með snjókarlinn: Teikna ferlið og breytingarnar á snjókarlin- um, ræða um breytingar: Snjókorn - snjóbolti - snjókúlur - snjókarl - lifandi maður - slydda - vatn - gufa ... Spurning: Getur snjókarl hugsað? Hvað er hugsun? Barn 1: Mér finnst hugsun vera meira eins og umm... Barn 2: Maður segir hugsun sína með munninum og með röddinni. Barn 3: Með rödd í huganum. Barn 2: Maður hvíslar þegar maður talar við sjálfan sig. Barn 4: Og maður getur hugsað um svo margt. Barn 5: Hugsun er í heilanum. Barn 2: Það er hugsun í heilanum. Barn 3: Heilinn lætur mann gera allt, taka upp dót, opna skápa, þrífa hús og hugsa. Barn 2: Og hugurinn gerir þetta sem maður er að gera, alltaf. Spurning: Vitið þið hvernig heilinn fer að því? Barn 2: Hugurinn er svo sterkur. Barn 1: Hugurinn er svo sterkur að hann leyfir manni að hreyfa sig og allt. Barn 3: Ég veit ekki hvort snjókarlar geta þú veist...

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.