Skólavarðan - 15.10.2002, Side 26

Skólavarðan - 15.10.2002, Side 26
Kjaramál Vegna fjölda fyrirspurna um út- reikning á fermetrum, barngild- um og stöðugildum í leikskólum taldi undirrituð brýnt að benda á eftirfarandi ákvæði úr reglugerð um leikskóla. Leikskólastjórum og leikskólakenn- urum er jafnframt bent á að hægt er að fá upplýsingar og túlkun á lögum og reglugerð hjá menntamálaráðuneyti. Húsnæði - fjöldi barna Samkvæmt reglugerð um leikskóla skal húsnæði í leikskóla miðað við 6,5m_ brúttó fyrir hvert barn samtímis utan þess tíma sem hópar skarast og þar af verði nettó leik- og kennslu- rými a.m.k. 3m_ fyrir hvert barn. Þetta hvort tveggja þarf að reikna út og miða síðan við þá tölu sem lægri er. Dæmi: Leik- skóli er 650m_ að brúttóstærð og rúmar samkvæmt því 100 börn. Leik- og kennslurými er 270m_ og rúmar því 90 börn. Þessi skóli tekur því að hámarki 90 börn. Í reglugerðinni er ekki að finna ákvæði um hvað á að telja til leik- og kennslurýmis. Húsnæði leikskóla er afar mismunandi og því verður að ákvarða út frá nýtingu og faglegum forsendum í hverjum leik- skóla hvað telst til leik- og kennslurýmis. Barngildi Gefum okkur að aldurssamsetning í hópn- um dreifist jafnt, þ.e. að átján börn séu í hverjum árgangi. Í reglugerð um leikskóla segir: Fimm ára barn reiknast sem 0.8 barngildi (0.8 x 18 = 14,4 barngildi), fjögurra ára barn reiknast sem 1 barngildi (1 x 18 = 18 barn- gildi), þriggja ára barn reiknast sem 1,3 barn- gildi (1,3 x 18 = 23,4 barngildi), tveggja ára barn reiknast sem 1,6 barngildi (1,6 x 18 = 28,8 barngildi), eins árs barn og yngra sem 2 barngildi (2 x 18 = 36 barngildi). Í þessum skóla eru því samtals 120,6 barn- gildi. Í reglugerðinni er ekki að finna ákvæði um hvenær skuli reikna út barngildin, hvort það skal gert einu sinni á ári eða oft- ar. Flest sveitarfélög hafa sett sér þá vinnureglu að reikna út barngildin að hausti þegar nýtt skólaár hefst og nýr árgangur hefur leikskólagöngu. Er þá miðað við fæðingarár barnsins hvort sem það er búið að eiga afmæli eða ekki. Stöðugildi Stöðugildafjöldi fer eftir barngildafjölda, þ.e. eftir því hversu mörg barngildi þessi 90 börn hafa samtals. Í reglugerð fyrir leikskóla segir að fyrir hvert stöðugildi leikskólakennara sem sér um umönnun, uppeldi og menntun barna í leikskóla skuli vera 8 barngildi. Samkvæmt því eiga að vera 15 stöðugildi á deildum (skipting niður á deildir fer eftir barngildafjölda á hverri deild) í leikskóla sem telur 120,6 barngildi. Félag leik- skólakennara hefur gengið út frá því að miðað sé við átta stunda vinnudag en það er ekki tekið fram í reglugerðinni. Allt þar fyrir utan kallar á viðbótarstöðugildi og einnig önnur störf, þ.e. stjórnun (utan deildarstjórnunar), sérkennsla, afleysingar, ræsting og eldhús. Björg Bjarnadóttir formaður FL Leikskóli Útreikningur á húsnæði, fjölda barna og stöðugildum 27 Að undanförnu hafa staðið yfir viðræður milli Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga um kjör leikskólaþjálfa og rétt þeirra til að eiga að- ild að Félagi leikskólakennara. Um er að ræða starfsfólk leikskóla með 45 ein- inga háskólanám í leikskólafræðum til diplómu. Nú liggur fyrir bráðabirgða- samkomulag um að leikskólaþjálfar grunnraðist í launaflokk 93 samkvæmt samningi FL. Bráðabirgðasamkomulagið gildir frá 4. október 2002. Í bréfi frá Félagi leik- skólakennara eru leikskólaþjálfar sem hyggjast sækja um aðild að FL hvattir til að gera það hið fyrsta og eru þeir um leið boðnir velkomnir í félagið. Jafnframt er þeim bent á að tilkynna viðkomandi launadeild og núverandi stéttarfélagi um ákvörðun sína. Bráðabirgðasamkomulag um kjör og félagsaðild leikskólaþjálfa Frétt

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.