Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 27

Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 27
Stuðningur við Sigrúnu Maríu og fjölskyldu í Dalsgerði 1k á Akureyri Lovísa Jónsdóttir er félagsmaður í KÍ. Hún lenti ásamt fjölskyldu sinni í alvarlegu umferðarslysi í Dan- mörku í byrjun júní sl. Vinir hennar og Óskars Þórs Halldórssonar hafa ákveðið að efna til átaks til stuðn- ings Sigrúnu Maríu dóttur þeirra og fjölskyldu hennar í Dalsgerði 1k á Akureyri og reyna þannig eftir mætti að létta þeim róður eftir bílslysið. Opnaður hefur ver- ið hlaupareikningur í Sparisjóði Svarfdæla til að taka við framlögum. Framfarir Sigrúnar Maríu hafa verið verulegar og allir sem að því verki koma gera hvað þeir geta til að hún nái sem mest- um og bestum bata til frambúðar. Hún er enn sem komið er með skerta hreyfigetu og þarf á hjólastól að halda, hvað sem síðar verður. Það er því ljóst að hennar bíður langt og strangt endurhæfingarferli með tilheyrandi álagi á hana sjálfa og nána aðstandendur. Slysið og afleiðingar þess hafa bein áhrif á afkomu fjölskyld- unnar þar sem saman fara tekjusamdráttur vegna vinnutaps og útgjöld vegna slyssins sem ekki fást bætt eftir tryggingar- leiðum. Einnig vega þungt kaup á stórum bíl og nauðsynlegar breytingar á húsnæði (fjölskyldan býr á tveimur hæðum). Hér kemur samhjálpin til sögunnar sem við vonum að muni stuðla að því að draga sem mest úr fjárhagslegu höggi sem fjölskyldan verður óhjákvæmilega fyrir. • Hlaupareikningur í Sparisjóði Svarfdæla á Dalvík undir heitinu Stuðningur við Sigrúnu Maríu og fjölskyldu í Dalsgerði (1177-26-4242). • Bankanúmer: 1177 • Höfuðbók: 26 • Reikningsnúmer: 4242 • Kennitala reiknings: 280463-2139 Ábyrgðarmaður stuðningssjóðsins er Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Svarfdæla á Dalvík. Ársþing Samtaka fámennra skóla Samtök fámennra skóla halda ársþing sitt á Hallormsstað 2. nóvember nk. Í samtökunum eru kennarar, leiðbeinendur og skólastjórnendur í fámennum skólum á leik-, grunn- og fram- haldsskólastigi og aðrir sem áhuga hafa á skólamálum. Dag- skrá þingsins verður kynnt nánar þegar nær dregur. Hlutverk samtakanna er að efla samstarf og samskipti fá- mennra skóla, stuðla að bættu og fjölbreyttara skólastarfi og standa vörð um hagsmuni skólanna. Samtökin hafa starfað frá því 1989 . Nánari upplýsingar um samtökin er að finna á heimasíðu þeirra, http://www.ismennt.is/vefir/sfs Formaður Samtaka fámennra skóla er Sif Vígþórsdóttir, sif@ismennt.is, skólastjóri á Hallormsstað, og varaformaður er Helga M. Steinsson, helga@ismennt.is, skólameistari í Nes- kaupstað. FG semur við Suðurhlíðaskóla Félag grunnskólakennara hefur gert kjarasamning fyrir hönd Kennarasambands Íslands um launakjör kennara og skóla- stjórnenda Suðurhlíðaskóla. Kjarasamningurinn gildir frá und- irskriftardegi til 31. mars 2004 en fellur þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar. Um kaup og kjör grunnskólakennara og skólastjórnenda Suðurhlíðarskóla fer skv. kjarasamningi Kennarasambands Ís- lands við Launanefnd sveitarfélaga sem undirritaður var 9. jan- úar 2001. Þannig gilda ákvæði hans bæði um laun svo og önn- ur launakjör eins og orlof, uppsagnarfrest, fæðingarorlof, vinnutíma og veikindarétt fyrir kennara og skólastjórnendur Suðurhlíðarskóla. Um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda í Suður- hlíðaskóla fer samkvæmt. ákvæðum laga nr. 72/1996 um rétt- indi og skyldur kennara og skólastjórnenda. Tekið er fram að ákvæði í ráðningarsamningi sem veitir lakari rétt en um getur í kjarasamningnum sé ógilt. Samkvæmt samningnum sér Suðurhlíðaskóli um að halda eftir og skila til KÍ félagsgjöldum starfsmanna sem samningur- inn tekur til. Einnig greiðir skólinn gjald í Verkefna- og nám- styrkjasjóð KÍ eins og ákveðið er í kjarasamningi þess við Launanefnd sveitarfélaga. Nýr vefur KÍ Hin nýja heimasíða Kennarasambandsins er komin í loftið. Lögð verður áhersla á öflugan fréttaflutning á sviði menntunar og skólamála, einnig á sviði kjaramála, vinnuverndar og ann- ars þess sem ætla má að kennarar hafi áhuga á og komi þeim við. Í stiku efst á vefnum eru heimasíður allra félaga Kennara- sambandsins og til hliðar vinstra megin eru hagnýtar upplýs- ingar sem félagar þurfa að hafa greiðan aðgang að, svo sem um orlofssjóð, sjúkrasjóð, fæðingarorlof og endurmenntun auk frétta, tilkynninga og annarra upplýsinga. Það er von okkar hér í Kennarahúsinu að félagsmenn hafi mikið gagn af vefnum og við hvetjum fólk til að hafa samband við útgáfu- og kynningar- svið ef það hefur ábendingar varðandi efni hans eða vill lýsa skoðun sinni á honum. Netföng starfsmanna útgáfu- og kynningarsviðs eru helgi@ki.is og kristin@ki.is, símanúmer eru 595 1119 (Helgi) og 595 1118 (Kristín). Lifðu í lukku en ekki krukku „Lifðu í lukku en ekki í krukku” er heiti ráðstefnu sem faghópur leikskólastjóra efnir til í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík föstu- daginn 1. nóvember. Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni verður Sue Baldwin en hún er þekktur fyrirlesari og ráðgjafi í Bandaríkjun- um og hefur sérhæft sig í umfjöllun um vellíðan í starfi. Yfir- skrift fyrirlesturs hennar er „Managing for Success and Sanity”. Sue Baldwin hefur ritað nokkrar bækur, m.a. bókina „Lifesa- ver”. Þeim sem áhuga hafa á að kynnast henni betur er bent á heimasíðu hennar. Slóðin er: www.suebaldwin.com. Samskiptaleikni - öflug liðsheild „Samskiptaleikni - öflug liðsheild” er yfirskrift fyrirlesturs sem Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur heldur á vegum skóla- málanefndar Félags leikskólakennara í Breiðagerðisskóla í Reykjavík fimmtudaginn 31. október. Í auglýsingu frá félaginu segir að í fyrirlestrinum muni Jóhann fjalla um hvernig ná megi árangri í starfi sem leiðtogi ungra barna við uppeldi og kennslu. Fyrrlesturinn er opinn öllu starfsfólki leikskóla. Aðgangseyrir er kr. 500. Allur ágóði rennur í Rannsóknarsjóð leikskóla. Frétt i r, smáauglýs ingar og t i lkynningar 28

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.