Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 28

Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 28
Skólastjórar jákvæðir - trúnaðarmenn gagnrýnni Könnun á framkvæmd kjarasamnings grunnskólakennara og skólastjóra Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar sem Rannsóknarstofn- un KHÍ gerði sl. vor meðal skólastjóra og trúnaðarmanna Kennarasambands Íslands um framkvæmd gildandi kjara- samnings. Þar kemur fram að meirihluti skólastjóra telur að samningurinn hafi haft jákvæð áhrif á starfsumhverfi skólanna. Viðmælendur úr hópi trúnaðarmanna virðast gagnrýnni og segja bæði kost og löst á samningnum. Þeir gagnrýna m.a. kynningu hans og sumir telja að samningurinn hafi ekki skilað þeim launahækkunum sem fyrirheit hafi verið gefin um. Sjá nánar á heimasíðu KÍ, www.ki.is (frétt frá 21. október sl.) Nýr formaður Launanefndar sveitarfélaga Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Hafn- arfjarðarbæjar, hefur verið kjörinn formaður Launanefndar sveitarfélaga til næstu fjögurra ára og Jakob Björnsson, bæjar- fulltrúi á Akureyri, hefur verið kjörinn varaformaður nefndar- innar. Karl Björnsson, fráfarandi formaður launanefndar, hefur ver- ið ráðinn sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfé- laga, en hann mun starfa fyrir launanefndina ásamt öðrum starfsmönnum kjarasviðs. Einnig mun Sigurður Óli Kolbeins- son, sviðsstjóri lögfræðisviðs Sambandsins, sinna störfum fyr- ir nefndina, sérstaklega hvað varðar lögfræðilega þætti er lúta að túlkun og framkvæmd kjarasamninga. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aðrir aðalmenn í Launanefnd sveitarfélaga eru: Þórir Sveinsson, fjármálastjóri Ísafjarðarbæjar, Þorsteinn Einarsson, starfsmannastjóri Kópavogsbæjar, Jóhanna Reynis- dóttir, sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps, Halldóra B. Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði, Birgir Björn Sigurjónsson, forstöðumaður kjaraþróunardeildar Reykjavíkurborgar, Helgi Hjörvar, varaborgarfulltrúi í Reykjavík og Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Styrkir til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á fram- haldsskólastigi. Heimilt er skv. reglum um úthlutun að verja allt að fimmtungi heildarúthlutunar til að efla ákveðin svið. Umsækjendur eru minntir á að taka mið af gildandi námskrám. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, námsefnis- nefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 4. nóv- ember næstkomandi. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu og í framhaldsskólum. Eyðublöðin er einnig að finna á vefsíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is Frétt i r, smáauglýs ingar og t i lkynningar 29 Kynning á merkjum félaga Í öllum regnbogans litum Aðildarfélög Kennarasambands Ís- lands hafa tekið upp ný félagsmerki sem eru eins og merki KÍ en hvert með sínum lit í einni rönd þess.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.