Gestur - 15.09.1933, Page 4

Gestur - 15.09.1933, Page 4
2 GESTUR 1,1. Æfiniýri. Frá aldaöðli hafa mannanna börn skemt sér við æfin- týri sín, að skapa pau og síðan að hlusta á hljómana, sem pau hafa gefið, og unað sér við heimana, er með þeim hafa skapaðir verið. 1 þeim hafa menn látið í ijós vonir sínar og þrár, hugsæi og lífsskoðanir, gleði sína og sorgir, ástir sínar á fegurð og frelsi, og hatur á harðstjórn og ranglæti. í þeim hafa þeir sungið lof guðum sínum, hetjum og ástmögum, landi bygð og borgum. I þeim er öil náttúran látin eignast skiln- ingarvit og hæfileika mannsins: dýr, jurtir, fuglar ioftsins, skógar, málmar, blóm merkurinnar, vötn og vindar. Alt leik- ur þetta hlutverk sín í lífinu, til farsælda fyrir vini sína og velunnara; en tortímingar hinum illu öflum. Æfintýrin fræða oss um margt í hugum og háttum hinna sundurleitu þjóða, sem þau hafa skapast hjá. Fræða oss um það, hvað þeim þótti eftirsóknarvert, og hvað það var, er óhamingju þótti valda; um það er í hávegum var haft, og hvað var fyrirlitið. 1 þeim hafa menn látið í Ijós þá bjart- sýni, að hið góða hljóti að vinna sigur að lokum í barátt- unni við hin illu öfl. Vinsældir æfintýranna hafa verið svo miklar, að þau hafa jafnvel stungið svefnþorni hinum ströngustu vandlætur- um, svo að hægt hefir verið í þeim að skýra málefni, er ann- ars hefðu verið útilokuð á öðrum vettvangi. Til þeirra hefir jafnvel ekki náð trúarbragðaofstæki né þjóðahatur. En þótt æfintýrin eigi sér aðdáendur alstaðar þar, sem menn mæla, skipa þau þó misjafnt tignarsæti meðal þjóð- anna. 1 Austuriöndum, svo sem Indlandi, sem af sumurn er álitið vagga æfintýranna, skipa þau hvað hæstan sess í hug- um fólksins, sem eftirfarandi saga bendir til: »Synir konungs nokkurs voru bæði daufir og latir, svo að þeir vildu hvorki né gátu lært neitt eða numið. Petta var

x

Gestur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gestur
https://timarit.is/publication/1192

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.