Ský - 01.11.1992, Blaðsíða 7
ský
maurice maeterlinck
SPÍTALI
Spítali! Spítali á síkisbakkanum!
Spítali í miðjum júlímánuði!
Það er verið að kveikja eld inni á stofunni!
Meöan flutningaskipin flauta á síkinu!
(Æ, ekki koma nálægt gluggunum!)
Nokkrir útflytjendur eru aö ganga í gegnum höll!
Ég sé snekkju sem er ofurseld óveðrinu!
Ég sé dýrahjaröir um borö í öllum skipunum!
(Það er betra að allir gluggar séu lokaðir,
viö höfum nánast algert skjól fyrir umheiminum.)
Við fáum hugboð um gróðurhús i snjónum,
ab við samgleðjumst konu sem kemst til kirkju í gegnum
storminn,
og rekum augun i plöntur sem dreift hefur verið yfir
ullarrúmteppi,
bál er tendrað á sólríkum degi,
og ég er á gangi í gegnum skóg sem er kvikur af særbu fólki.
Æ, hér kemur þá loksins tunglskinið!
Vatnsbrunnur rís í miðri stofunni!
Hópur ungra stúlkna opnar dyrnar hikandi!
Ég kem auga á lömb á gróöursælli eyju!