Ský - 01.11.1992, Blaðsíða 18

Ský - 01.11.1992, Blaðsíða 18
NAFNASLEIKJAN Nafnasleikjan veit hvað er gott, hann þefar þab uppi í þúsund mílna fjarlægð og sparar sér enga fyrirhöfn til að komast í tæri við nafnið sem hann ætlar að sleikja. Nú á dögum er það leikur einn, í bíl eba flugvél, fyrirhöfnin er hreint ekki svo mikil, en það verður ab segjast eins og er, að hann mundi leggja meira á sig ef þess gerðist þörf. Löngun hans vaknar þegar hann les dagblöbin, það sem er ekki í blööunum er honum óviðkomandi. Ef nafn kemur oft fyrir í blöbunum og ratar jafnvel í fyrirsagnirnar, verður löngun hans ómótstæðileg og hann drífur sig af stað. Eigi hann fyrir ferðinni, þá er þab fyrirtak; ef ekki, þá slær hann lán og borgar meb ljómanum af hinu háleita markmiði sínu. „Ég verð að sleikja N.N.," segir hann og það hljómar eins og ferðin til Norburpólsins hljómaði í eina tíð. Hann veit hvernig á að Iíta inn, hvort sem hann vísar til einhvers annars eba ekki, hann hljómar alltaf eins og hann sé alveg að deyja. Nöfn verða upp meb sér við að heyra að einhver geti dáið úr þorsta vegna þeirra, allur heimurinn eybimörk og þau eini brunnurinn. Og því er það, að þau fallast á að hitta nafnasleikinn, ekki án þess að kvarta fyrst í smáatriöum yfir tímaskorti. Það mætti jafnvel segja að þau bíði hans með nokkurri eftirvæntingu. Þau snúa bestu hliðum sínum að honum og þvo þær- en aðeins þær - vandlega og

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.