Ský - 01.11.1992, Qupperneq 24

Ský - 01.11.1992, Qupperneq 24
ský 22 atli harðarson HUNDAR Grónar götur hlupum viö hundar þínir subur hlupum viö grónar götur hve oft hlupum viö ekki hundar þínir tvisvar hlupum viö grónar götur suöur til heimskingj alandsins meö lafandi tungur blautar af oröum gegn þeim afvegaleiddu hlupum viö út og suöur rökhundar þínir og geltum já oft hlupu hundar þínir grónar götur meir en tvisvar hljóp hundur þinn suöur og gelti aö heimsku þeirra sem ryöja nýjar brautir. Ósmekklega klæddirbera þeir stiröbusaleg nafnorð í holótta vegi en við geltum og blaut oröin renna á lafandi tungum viö hundar þínir sjáum þá velta bautasteinum og rúnasteinum og eltum þá suður um staöleysur og málleysur út fyrir landabréfin utan viö kortin liggja ómerktir vegir þeirra og nöfn þeirra finnast ekki í viðurkenndum oröabókum Sigfúsar Blöndal og Guðbrands Vigfússonar. Þeir bera í þá illa sigtaöa möl og klunnaleg nafnorö og á þessum vegum gætu skólakrakkar og almenningur villst en vib hlaupum suður viö hundar þínir alltaf í suður kringum loöiö skott og flettum orðabók viö hverja bugöu á löngu grónum götum.

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.