Núkynslóð - 01.01.1968, Síða 53
Á leikari að reyna að
" sálgreina persónuna "
sem hann leikur ?
Hve langt á leikarinn að
lifa sig inn 1 hlutverkið ?
Á að skipta embætti
Þjóðleikhússtjóra f
tvennt og láta annan um
fjármál og hinn um list?
Hvað um leikskólamálin?
Er ol'framboð á leikurum
hór?
Hvað um leikflokk Litla
sviðsins. Er þar f upp-
siglingu ný Þjóðleikhús-
grúppa, nýr kjarni.óháð-
ur kastalabúunum við
Hverfisgötu ?
Leikari sálgreinir alltaf persónuna
hvort sem hann ætlar sér eða ekki
jafnvel þótt hann viti ekki hvað orð-
ið sálgreining þýðir.
Innlifun er orðið hæpið orð vegna
ofnotkunar. Vfsindin hafa gert
skilin milli orsaka og afleiðinga
óglögg og oft vandséð hvort er
hvort. Þvf meira vald sem hlut-
verk hefur á leikaranum þeim mun
meira vald verður leikarinn að
hafa á hlutverkinu. Framsetning
hans á þvf og innlifun f það verða
að haldast fhendur. Allt annað er
leikur að orðum.
Skipting á embætti Þjóðleikhús-
stjóra fer eftir þvf hvaða völ er
á mönnum f það. Að öllu jöfnu
mun þó heppilegra að f leikhúsum
sé bæði forstjóri og svo andlegur
leiðtogi sem markar stefnuna og
hefur f leikhúsinu æðsta vald.með
listaráð sér til aðhalds og fuliting-
is.
Leiklistarkennsla er fáimkennd og
næstum enginn sem veit hvernig
standa skal að verki við slíkt.Enda
fár sem hefur nokkum raunveru-
legan áhuga á fræðara eða leiðtoga-
starfi nema sem virðingarstöðu
eða þá af skyldurækni við leikhús
sitt. Flestir vilja vera leikarar en
kenna og stjórna aðeins vegna þess
að eftir slfku er eftirspurn en ekki
hinu.
Frá sjónarmiði leikstjóra er aldrei
offramboð á leikurum. Hinsvegar
væri betra að framleiðsla á leik-
urum yrði minni að fjölda og meiri
að gæðum svo tæki fyrir núverandi
skort á veluppöldum og snjöllum
leikurum - listhneigðum.
Nj'r kjarni verður aldrei til nema
utanum nýjar hugmyndir, og þá
þvf aðeins að þar sé samvalinn
hópur undir góðri forystu. Auk
þess verður sú nýjung að fullnægja
einhverri þörf einhvers hluta mann-
fólksins sem á leikhúsið og sækir
það. f okkar þjóðfélagi sé ég þörf
Eru ekki stórar gloppur,
sem fylla þarf f fslenzku
leikhúsi. Hvað um mfmu-
leikinn til dæmis ?
Er tfmabært að Þjóð-
leikhúsið stofni sérstakt
sumarleikhús á hjólum
til yfirreiðar um landið ?
Er æskilegt að leikstjór-
ar séu jafnframt leikar-
ar ?
Er það æskilegt sem
stundum gerist hér að
leikstjóri leiki jafnframt
f vérkinu sem hann stjórn-
ar ?
Er æfingatfmi of stuttur
á hverju verki hjá leik-
húsunum hér?
2
Hvað um leiklistargagn-
rýni hér og erlendis?
Hefurðu fengið sæmilega
starfsaðstöðu hér heima.
Ertu kannski ráðinn við
annaðhvort atvinnu leik-
húsanna?
raarz 1968
ke
fyrir tvennt f leikhúsi - djarft,
róttækt nútfmaleikhús og leikhús
sem leitaði uppi ( með hjálp þjóð-
vfsna þjóðlaga og sagna ) það sem
kalla mætti fslenzkan skóla. Þetta
tvennt gæti farið saman, en hvor-
ugt er áberandi hjá leikflokki Litla
sviðsins hvað sem úr honum kann
að verða.
Áður en við getum áttað okkur á
þvf hvaða gloppur eru á fslenzku
leikhúsi verðum við að hafa fslenzk-
an skóla. Við getum ekki flutt blind-
;mdi inn enskan eða franskan skóla
og listgreinar sem tilheyra þeim
skólum þvf formið sprettur uppf
þvfhvað skal tjá og það getur verið
allt amiað hér en f Englandi og
Frakklandi.
Landsbyggðin hefur þörf fyrir gott
umíerðaleikhús. Hvort það erÞjóð-
leikhússins að sjá um slíkt er ekki
vfst. Þetta heyrir undir Mennta-
málaráðuneytið og þá listamenn
sem vilja - og geta tekið slíkt að
sér, svo f lagi sé.
Tvfmælalaust ef þeir geta.
Einnig tvfmælalaust, ef þeir geta,
en slfkir menn eru einsdæmi f
heiminum.
Æfingatfmi á að vera eins stuttur
og framast er unnt. En til þess þarf
einbeitingu, sálarkraft og hraða f
hugsun sem fæstir leikara okkar
hafa vald á eða tfma til frá auka-
störfum sfnum.
Leikgagnrýni hérna skilar þvf
meginhlutverki að auglýsa leik-
húsið, láta bera á þvf sem ómiss-
andi þætti f þjóðlffinu. Hinsvegar
er ekkert við gagnrýnendur okkar
að sakast þótt þeir viti ekki allir
mikið um eðli leikhússins. Góðir
gagnrýnendur eru allsstaðar jafn
sjaldgæfir og góðir leikstjórar.
Miðað við þá starfsaðstöðu sem
t.d. Haraldur Björnsson hafði þeg-
ar hann kom heim, þá er míh góð.
Miðað við félaga mfna sem útskrif-
uðust með mér er hlægilegt að tala
um nokkra starfsaðstöðu. Leik-
stjóri verður aldrei ánægður með
starfsaðstöðu sfna fyrr en hann
hefur leikflokk undir höndum til
þess að rækta og móta.