Núkynslóð - 01.01.1968, Page 55
asgeir asgeirsson
fáeinar fyndnir
Islenzk
Einhverju sinni voru þeir staddir saman á mannamóti Þorgeir goddi,
sem kallaður var, á Trukkshóli og Baldi á Ytri-Hneisu. Þorgeir var
stór vexti en Baldi rytja en ofsamaður - Þorgeir aftur stillimenni.
Þetta bar til um réttir og var drætti lokið og menn að gleðja sig útund-
ir vegg. Þeir Þorgeir og Baldi ásamt fieirum tóku að ýfast og létu ým-
ist fjúka f kveðnu eða lausu. Kona Balda var ákaflega mikil vexti og
var talað f sveitinni að hún stýrði búi fremur en hann.
Þá er það að Þorgeir hreytir allt 1 einu að Balda: "Og ættir þú nú ekki
hátt að hafa, bölvuð ráfan þíh, - lætur konu ráðska með þig .' .' "
Baldi sótroðnar um augun og tútnar ör langt er hann hafði hlotið á vinstri
kinn f æsku af illum hrúti. Hann svarar að bragði: "O, nú lætur sá hæst
er sfzt hefur efnin til - held ég þú ættir að fá þér kút af laxerolíú og vita
hvort þá rynni ekki eitthvað greiðar um besefann á þér .' .' "
En þannig var, að Þorgeir hafði haustið undan fallið f keldu og orðið
ófrjór nokkru síðar - af mýrarrauðunni var haldið - og hvftnaði hann
sem lík og hljóp á Balda og urðu menn til að forða þar óhappaverki.
Skildi þar með þeim, en hlátur var gerður að um réttina.