Ljóðormur - 01.10.1985, Page 30
PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON:
Fegurðin föl,
föl
í næsta lífi
Helföl.
Þríbrjósta kona á diski
— sunnudagskaffi á hjólum
„Þjónn, ég vil fá siðprúða þríbrjósta konu, en þó
hæfilega lausláta, til að gleyma ekki þeirri staðreynd,
að ég er karlmaður. Hún má gjarnan vera heimsk, án
þess þó að vera með Jafnréttisráð á heilanum.
Súpu?
Nei, þakka þér fyrir, slíkt samræmis ekki smekk
minum.“
Ég var rétt kominn upp að hnján, þegar hjá mér settist
kringluleitur maður og vildi vita, hví ég kysi mér
þríbrjósta kvöldverð.
„Lífið er margbreytilegt," svaraði ég,
„sumir fara meira að segja alla leið austur i
Hveragerði til að drekka sunnudagskaffið í faðmi
fjölskyldunnar".
OG ÉG SPYR VERÐUR ÞVÍ NEITAÐ?
28