Ljóðormur - 01.10.1985, Qupperneq 49

Ljóðormur - 01.10.1985, Qupperneq 49
UMSAGNIR Eða: Oh! Á. Litur. í botni. Hægra augað. Vakandi. Sjáandi. Vinstra augað dreymir. Og bæði sjáandi. Andlitið á vélarhlifinni. Blint. Lítill eldur. Eineygði gosinn. Gengur. í augun. Á göt- unni. Hring eftir. Gangstéttin. Litur augnanna. Hring. Titring- ur. Ljósin. Farinn. Förin eru. Stúlkunni á hvíta bílnum gæti ekki staðið meira á sama. Oh! Auðvitað gera textar sem þessir býsna harkalegar kröfur til les- enda sinna, en sé grannt að gáð verður draumkennt samhengi í allri Ijóðabókinni og stígur fram tætt heimsmynd nútímans, þar sem fæst er sem sýnist. Þar með verður bókin marktækt framlag til skilgreiningar á samtíðinni, hvort sem menn kjósa að minnast súrrealistanna eða einhverra annarra. Tveir meginþræðir finnst mér liggja gegnum Oh! Annar er spunninn af ótta við tilfinningar, hinn af ótta við tortiminguna. Hvort tveggja munu vera býsna almennar kenndir nú á tíðum. Tilfinningakreppan blasir við okkur hvert sem litið er: Lesi menn fréttir af ofbeldisverkum um allar jarðir, harðneskju mannanna, grimmd hjartnanna. Það eitt að reyna á alvarlegan hátt að af- hjúpa þessa kvöl er mikilvæg byrjun. Upprunalegu súrrealistarnir reyndu að orðgera og myndgera kvöl sinnnar tíðar. Hinir nýju súrrealistar okkar hafa þegar lagt sitt af mörkunum — og þar með hefur þeim tekist að hasla sér völl í islenskri Ijóðlist á merkilegan hátt. Ég held þeim væri alveg óhætt að koma úr felum sinum, óhætt að fela vandaðri pappír og ,,bók- legri" frágangi Ijóð sín. Það gildir án alls vafa um Sjón og fleiri fé- laga hans. Ljóð þeirra þola samjöfnuð við flest það sem gerðar eru úr Ijóðabækur og eiga fullt erindi við venjulega lesendur, ekki aðeins þann litla hóp sem leggur sig eftir að tina saman neðan- jarðarprent af öllu tagi. Heimir Pálsson. 47

x

Ljóðormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.