Víkurfréttir - 04.12.1980, Page 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 4. desember 1980 5
Jólatréssala Kiwanismanna
jSgap!?
Kiwanismennirnir okkar hér í
Keflavík fara af stað með sína ár-
legu jólatréssölu þann. 14. des.
n.k. Verður hún opin frá kl. 14-22
daglega.
Að venju verða á boðstólum
tré af öllum staerðum og gerðum.
Einnig grenigreinar, kransar á
leiði, boröskreytingar og fleira
tilheyrandi. Allur ágóði af jola-
tréssölunni rennurtil líknarmála.
Síðustu tvöárin hefurKiwanis-
klúbburinn stutt myndarlega við
bakið á Félagi Þroskahjálpar á
Suðurnesjum, við uppsetningu á
leikfangasafni og endurhæfing-
arstofu. Einnig hefur klúbburinn
stutt ýmis önnur mál, og er þess
skemmst að minnast K-dagsins
svokallaða, en þá safnaði Kiw-
anishreyfingin 55 milljónum meö
sölu á K-lyklinum. Rann allur
ágóðinn til styrktar geðsjúkum.
Við hvetjum alla Keflvíkinga til
þess að láta Kiwanismenn njóta
viðskipta þeirra fyrir jólin.
Skóvinnustofa Sigurbergs
f nýju húsnæði
mw*
Skóvinnustofa Sigurbergs
hefur nú flutt af Hafnargötu 35 að
Skólavegi 22 í Keflavík. Skó-
vinnustofan er eina skóverk-
stæðið á Suðurnesjum, en hún
hefurstarfaö hérsíðanárið 1936,
er Sigurberg Ásbjörnsson stofn-
setti hana, en þá voru hér 4 skó-
smiðir. Sigurberg lést árið 1973,
en síðan hefur tengdasonur
hans, Jón B. Stefánsson, rekið
verkstæöiö ásamt konu sinni
Guðrúnu.
Verkstæðið annast allar al-
mennar skóviðgerðir auk þess
sem það hefur á boðstólum ýms-
ar skóvörur, svo sem skóáburö,
reimar, illeppa o.fl. I nýja hús-
næðinu hefuraöstaða öll batnaö
til mikilla muna, og einnig eru
næg bilastæði fyrir hendi.
Verkaiýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Ákveöið hefur verið að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um
kjór til eftirfarandi trúnaðarstarfa hjá V.S.F.K.:
Stjórn, trúnaðarmannaráös ásamt varamönnum, stjórn sjó-
mannadeildar ásamt varastjórn, stjórn sjúkrasjóös ásamt vara-
mönnum.
Listum með tilskildum meðmælafjólda fullgildra félagsmanna
skal skila á skrifstofu félagsins. Hafnargótu 80. Keflavik, eigi
siðar en kl. 19. mánudagmn 15 des n k
ROCCOKO SÓFASETT og stólar
BORÐSTOFUBORÐ - SMÁBORÐ
KOMMÓÐUR - SKATTHOL
HJÓNARÚM
Gjörið svo vel að líta við.
Husgagnaverslunin INNBU
Hafnargötu 32-34 - Keflavík - Sími 3588
BARNASTOLAR
BARNA DAGBORÐ
BARNA GÖNGUGRINDUR
og LEIKFÖNG í úrvali.
LEIKHOLMI
Keflavik - Sími 3610
Frá Almennum Trygg-
ingum, Keflavík
Þeir sem eiga ógreiddar tryggingar til félagsins
geri vinsamlegast skil sem allra fyrst.
Athygli skal vakin á því, að félagið á endurrkröfu-
rétt á hendur tryggingartaka, verði tjón meðan ið-
gjaldið er ekki greitt.
Skrifstofan að Brekkustíg 37 við Reykjanesbraut
er opin frá kl. 1 til 6 mánudaga til laugardaga.
Síminn er 2925.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 1760
Kjörstjórn