Víkurfréttir - 04.12.1980, Page 9
8 Fimmtudagur 4. desember 1980
Iþróttamenn UMFK 1980
JÓLABLAÐ
Víkurfrétta
kemur út 18. des.
Auglýsingar og efni
berist fyrir
15. desember.
Nýr starfs-
maður Sam-
vinnu-
trygginga
Samvinnutryggingar í Keflavik
hafa ráðið nýjan starfsmann frá
1. des. sl. Er það Karl Hermanns-
son, f.v. lögreglumaðurog knatt-
spyrnari. Víkurfréttir óska Karli
til hamingju með nýja starfið.
Körfubolti
Njarðvíkingar hafa staðið sig
með miklum ágaetum i Úrvals-
deildinni í körfubolta. Þeir hafa
unniö alla sína leiki til þessa og
hafa örugga forustu í deildinni.
1. deildarliö ÍBK í körfubolta
hefur lika látiö hendur standa
fram úr ermum. Þeir hafa unnið
alla sina leiki í 1. deildinni. Ef
bæði liðin halda áfram á þessari
sigurbraut, þá koma báðir helstu
meistaratitlarnir í körfubolta
hingað suður eftir í vetur.
Víkurfréttir senda Njarðviking-
um og (BK-mönnum baráttu-
kveðjur og skora á alla sem vettl-
ingi geta valdið, að mæta á leiki
liðanna i vetur og hvetja þau til
sigurs.
elli
Ungmennafélag Keflavíkur
kýs árlega „(þróttamann ársins".
Nýlega samþykkti stjórn félags-
ins að júdó-mennirnir Ómar Sig-
urðsson og Siguröur Hauksson
skyldu hljóta þennan sæmdar-
titil árið 1980.
Báðir hafa þeir Ómar og Sig-
uröur staðið sig frábærlega vel í
júdó á liðnum árum og margoft
verið valdir til keppni í júdó er-
lendis fyrir (slands hönd. Á árinu
1980 hafa þeir báðir veriö mjög
sigursælir í sinni íþróttagrein og
þótti þvi ekki fært að gera upp á
milli þeirra og voru þeir því báðir
valdir íþróttamenn UMFK 1980.
Þá hefur Ungmennafélag
Keflavikur valið „Knattspyrnu-
mann ársins 1980". Varð Gísli
Eyjólfsson fyrir valinu að þessu
sinni, en þetta er í annað sinn
sem félagið velur knattspyrnu-
mann ársins. (fyrra var Þorsteinn
Ólafsson markvörður valinn
knattspyrnumaður UMFK 1979.
Gisli Eyjólfsson hefur tvö sl. ár
leikið með UMFK (lék aöurmeö
Víði, Garði) og jafnframt veriö
einn af aðalburðarásum (BK-
(þróttamenn UMFK árið 1980. Sigurður Hauksson (t.v.) og Ómar
SiguröSSOn. Ljósmyndastofa Suöurnesja
Auglýsingasíminn
er1760
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Meistaraskóli
fyrir iðnaðarmenn í byggingagreinum verðurstarf-
ræktur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst
kennsla í janúarmánuði 1981, ef næg þátttaka
fæst. Námsefni verður hliðstætt því sem verið
hefur í Iðnskólanum í Reykjavík og samræmt í
meistaraskólunum á Akranesi, Akureyri, Keflavík,
Reykjavík og Sauðárkróki.
Þátttökugjald verður 100.000 kr. fyrirtveggjaanna
nám.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu skólans í
síðasta lagi föstudaginn 19. desember n.k.
Nánari upplýsingar veita Fléðinn Skarphéðinsson
og Surlaugur Ólafsson.
Skólameistari
Knattspyrnumaður ársins 1980
Gisli Eyjólfsson
L|ósmyndastofa Suöurnesja
VÍKUR-fréttir
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 4. desember 1980 9
liðsins. Sl. sumar átti Gisli mjög
góða leiki sem miðvörður IBK-
liðsins og brotnuðu margar
sóknarloturnar á honum. Þá var
Gisli fyrirliði (BK-liðsins sl.
sumar og stóð sig með mikilli
prýði í þeirri stöðu, bæði innan
vallar sem utan.
Myndirnar sem fylgja voru
teknar i hófi sem UMFK hélt sl.
fimmtudag i tilefni þessara heið-
ursveitinga.
Byggingavöruverslun V.P. flytur að Baldursgötu 14
Byggingavöruverslun V.P. í
Keflavík hefur nú flutt sig um set,
af Hafnargötu 48 að Baldurs-
götu 14, þarsem Bílavíkvaráður.
Að sögn Eggerts Jónssonar,
sem er einn af eigendum versl-
unarinar og sá eini af þeim sem í
henni starfar, var verslunin
stofnuö á miðju ári 1976 af 14
starfandi pípulagningamönnum
i Keflavík.
,,Við verslum eingöngu með
allt sem viðkemur pipulögnum i
hús," sagði Eggert, „alltfrá skolp
lögn og alveg uppitoppfrágang,
og einnig hreinlætis- og blönd-
unartæki. Gamla húsnæðið var
80 ferm., en þetta nýja er 263
ferm., ásamt þvi að nokkuð er
hærra undir loft sem nýtist á viss-
an hátt, þannig aö hérer um mikil
viðbrigði að ræða. Húsnæðið
gefur möguleika á að vera með
fjölbreyttari vöru og um leið
bætta þjónustu. Nú getum við
haft allan lager hér innandyra, en
áður þurftum við að hafa hluta
hans úti og urðum því að treysta
á heiðarleikafólks, enda reyndist
þaö allt í lagi."
Eggert kvað það hafa sýnt sig
að þörf var á slíkri verslun sem
þessari, og þá aöallega í því, að
það hefur orðið meiri fjölbreytni í
vöru á staðnum, enda kom þessi
verslun fram meö meiri sérfræði,
þar sem hluthafarnir voru raun-
verulegir fagmenn á þessum
sviöum.
Verslunin er björt og rúmgóð
Nú getur þú íátió sparísjóóínn
taka víó bótagreíósrunum
fra TrYg^ingastofiiunínní
a pær inn a
inn
mánaóar
GREIÐSLUR 10. HVERS MÁNAÐAR
Frá og meö næstu áramótum veröa allar
mánaöarlegar bætur Tryggingastofnunar ríkis-
ins greiddar inn á reikninga í innlánsstofnunum.
Verða greiöslurnar greiddar þann 10. hvers
mánaðar í staö útborgunar 15. hvers mánaðar.
EKKERT UMSTANG
Þeir sem óska eftir þvi, aö Tryggingastofnunin
greiöi bótagreiðslur þeirra framvegis inn á
sparisjóösbók eða ávísanareikning mánaðar-
lega, þurfa ekki aö biöa til áramóta til aö geta
notfært sér þetta þægilega útborgunarkerfi.
Sparisjóðurinn tekur fúslega aö sér allan
nauðsynlegan undirbúning og milligongu við
Tryggingastofnunina, þannig aö nýja greiðslu-
kerfiö geti notast án tafar
BÆTUR TRYGGINGASTOFN-
UNAR RÍKISINS ERU:
ELLILÍFEYRIR
ÖRORKULÍFEYRIR
BARNALÍFEYRIR
MÆÐRALAUN - FEÐRALAUN
ÖRORKUSTYRKUR
EKKNALÍFEYRIR
EKKNABÆTUR
Sparisjóðurinn í Keflavík
Suðurgötu 6
HRINGDU í SPARISJÓÐINN
Með einu símtali við sparisjóðinn færðu allar
nauðsynlegar upplýsingar um nýja greiðslu-
kerfið. Síðan sendirsparisjóðurinn þérsérstaka
beiðni, sem þú útfyllir. Að því loknu sér spari-
sjóðurinn um afganginn.
Þú færð greiðsluna 10. hvers mánaðar inn á
sparisjóðsbók eða ávisanareikning.
ÞJÓNUSTUSTOFNUN HEIMILISINS
Það skiptir ekki máli hvort þú hefur skipt við
sparisjóð áður. Sparisjóðirnir eru 42 talsins.
Þeir sjá um afgreiðslur hver fyrirannan og vinna
sameiginlega að hagsmunamálum viöskipta-
vina sinna með svonefndri landsþjónustu spari-
sjóða. Eitt megin hlutverk landsþjónustunnar
er að veita heimilum um allt land sem besta fyrir-
greiðslu. Umsjón bótagreiðslna frá Trygginga-
stofnun ríkisins er aðeins hluti hennar.
Upplýsingar gefa Daði Þorgrímsson
og Daníel Arason í síma 2801