Fréttablaðið - 11.10.2016, Page 8
VW Polo Beats, verð frá:
3.290.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Upplifun af akstrinum verður allt önnur þegar þú ert með réttu músíkina og þá skipta hljómgæðin
öllu máli. Þess vegna ákvað Volkswagen að fara í samstarf við Beats by Dr. Dre™ og gera Polo sem fer
lengra en nokkru sinni áður í góðum hljómburði. Hlustaðu nú vel og fáðu þér Polo!
www.volkswagen.is
Polo hljómar betur.
5 ára ábyrgð
fornleifar Lestur í bein forn-
mannsins sem fundust í landi Ytri-
Ása í Skaftártungu í byrjun mánað-
arins sýna að um frekar hávaxinn
karlmann var að ræða sem var
nokkuð þrekvaxinn og vel haldinn.
Hildur Gestsdóttir, fornmeina-
fræðingur hjá Fornleifastofnun
Íslands, hefur rannsakað beinin
sem gæsaskyttur fundu á bökkum
Eldvatns, aðeins nokkra tugi metra
frá þeim stað þar sem annar hópur
gæsaveiðimanna fann sverð frá
tíundu öld í september. Er sá fundur
talinn einn sá merkasti í íslenskri
fornleifafræði í langan tíma enda
slíkir fundir fátíðir. Nærtækt er
að álykta að beinin séu af eiganda
sverðsins, þó sérfræðingar treysti
sér ekki til að fullyrða að svo sé.
Beinin sem fundust eru vinstri
fótleggur og mjaðmabein forn-
mannsins, en þó ekki sé úr miklu að
moða er ótrúlegt hvað Hildur getur
þó séð mikið út frá jarðneskum
leifum þessa manns sem var lagður
til hinstu hvílu á tíundu öld, að því
gefnu að sverðið umtalaða sé hans.
„Af því að ég er með mjaðmar-
beinið þá get ég séð að þetta er karl-
maður. Líklegast hefur hann verið
á fertugsaldri, og frekar hávaxinn
miðað við sína samtíðarmenn eða
sirka 1,72 metrar á hæð. Þó eru
skekkjumörkin töluverð þar sem ég
er bara með eitt bein,“ segir Hildur.
Spurð um hvort eitthvað sé hægt
að merkja um heilsufar manns-
ins eða líkamlegt atgervi hans að
öðru leyti á meðan hann lifði, segir
Hildur að merki séu um að einhvern
tímann hafi hann glímt við sýkingu.
„Ég get ekki sagt meira um það en
get sagt að hann var stórgerður og
hraustlega byggður – það er þyngd í
beinunum og má ætla að hann hafi
verið ágætlega hraustur þegar hann
lést,“ segir Hildur.
Hildur segir blaðamann vera að
teygja sig mjög langt þegar er spurt
um hvort eigandi beinanna hafi
verið veginn, enda afar sjaldgæft að
nokkuð sé hægt að segja um dánar-
orsök út frá fundi eins og þessum.
„Af öllum þeim hundruðum beina
sem ég hef skoðað get ég talið það
á fingrum annarrar handar þar sem
ég treysti mér til að segja eitthvað
um dánarorsök – enda erum við
oftast að leita að einhverju um líf
fólks frekar en dánarorsök. Slíkt er
varla sjáanlegt nema merki séu um
einhvers konar áverka,“ segir Hildur
og bætir við að sjaldan sjáist merki á
beinum fullorðinna frá þessum tíma
að viðkomandi hafi liðið skort. Það
sjáist hins vegar frekar á beinum
barna; merki um beinkröm eða víta-
mínskort svo dæmi sé tekið.
Frekari rannsóknir á beinunum
eru ekki á dagskrá – þó Hildur úti-
loki alls ekki að frekari rannsóknir
verði gerðar síðar en mikill áhugi
er á rannsóknum á beinagrindum á
Íslandi – bæði hjá vísindamönnum
og nemum. Beinin verða eftirleiðis
varðveitt á Þjóðminjasafninu.
svavar@frettabladid.is
Beinin eru af hávöxnum karlmanni
Fornmeinafræðingur telur að beinin sem fundust á bökkum Eldvatns í byrjun mánaðar séu af karlmanni á fertugsaldri. Bein hans
benda til að hann hafi verið þrekinn og ágætlega hraustur þegar hann lést. Hann mun hafa verið hávaxinn miðað við samtíðarmenn.
Hildur Gestsdóttir hefur lesið í bein fornmannsins – sem hugsanlega var eigandi sverðs frá 10. öld sem einnig fannst fyrir
stuttu. Fréttablaðið/GVa
Af því að ég er með
mjaðmarbeinið þá get
ég séð að þetta er karlmaður.
Líklegast hefur hann verið á
fertugsaldri, og frekar hávaxinn
miðað við sína samtíðarmenn
eða sirka 1,72 metrar á hæð.
1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i Ð J U D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-8
3
A
4
1
A
D
F
-8
2
6
8
1
A
D
F
-8
1
2
C
1
A
D
F
-7
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K