Fréttablaðið - 11.10.2016, Page 30
Á vef FÍB er að finna góðar og gildar
ráðleggingar um hvernig best er að
haga vetrarakstri.
l Þrífið bílinn og bónið, það dreg-
ur úr viðloðun snjós og frosts. Góð
bónhúð ver einnig gegn tæringu
frá götusaltspæklinum sem þétt-
býlisbúar aka oft í dögum saman.
l Smyrjið læsingar með lásaolíu,
það dregur verulega úr líkum þess
að læsingar frjósi fastar. Berið
varnarefni (silicon) á þéttilista
dyra til að fyrirbyggja að dyrnar
festist í frosti.
l Fyllið tankinn í hvert skipti sem
bensín er keypt. Hætt er við að
loftraki þéttist á veggjum bens-
íntanks sem fylltur er óreglulega
og safnist fyrir í tankbotni. Í frosti
verður klakamyndun og íshröngl-
ið getur stíflað bensínleiðslur með
tilheyrandi gangtruflunum. Til
varnar þessu er ráðlagt að blanda
ísvara í bensínið á haustin.
l Góðir hjólbarðar eru grundvallar
öryggisþáttur og geta skipt sköp-
um við erfiðar vetraraðstæður.
Áríðandi er að hafa réttan loft-
þrýsting í hjólbörðum til að þeir
endist vel og virki rétt. Mynstur-
dýpt ræður miklu um veggrip á
blautum eða snjóugum vegum og
ekki ráðlegt að hafa það minna en
3-4 mm. Þegar kólnar í veðri er
nauðsynlegt að skipta yfir í vetr-
ar- eða heilsársdekk. Slitsóli þess-
ara hjólbarða er úr gúmmíblöndu
sem ekki stífnar í kulda, sem eykur
veggrip og rásfestu ökutækja.
Gúmmíblandan í sumarhjólbörð-
um byrjar að harðna þegar hit-
inn er kominn niður fyrir +7°C. Við
-15°C verða sumarhjólbarðar álíka
harðir og hart plastefni.
l Athugið frostþol kælivökvans
á haustin. Frostþol ætti að vera
a.m.k -25°C. Einfaldast er að nota
frostlagarmæli sem hægt er að fá
að láni á flestum bensín- og smur-
stöðvum.
l Fyllið upp rúðuvökvakútinn með
frostþolnum vökva. Athugið virkni
þurrkanna og hvort blöðin séu í
lagi.
l Kannið ástand viftureimarinnar.
l Í sumum tilvikum er hleðslu-
spenna bíla of lág og það skapar
vanda þegar lofthitinn lækkar. Lág
hleðsluspenna dregur úr líftíma
rafgeymis. Hleðsluspennan þarf
að vera 1,4,2 til 14,5 volt en 14,4
volta spenna er talin æskilegust.
l Útfellingar á geymasamböndum
geta orsakað erfiðleika við gang-
setningu, sérstaklega í kulda-
tíð. Útfellinguna er auðvelt að
fjarlægja með volgu vatni, stál-
ull eða fínum sandpappír.Til að
hindra útfellingu er gott að strjúka
sýrulausri feiti, t.d. vaselíni yfir
geymasamböndin og skaut raf-
geymisins.
l Rafgeymar nýrri bíla þurfa lítið
sem ekkert viðhald þannig að ekki
þarf að fylgjast með magni raf-
geymavökvans. Á eldri geymum
þarf að athuga sýrumagn, það á
að nema við merkingar eða u.þ.b.
10 mm ofan við plöturnar.
l Yfirfarið kveikjukerfið. Lélegir
kveikjuþræðir auka mótstöðuna
fyrir rafneistann til kertanna og
það er mjög algengt vandamál við
gangsetningu.
l Munið að hafa rúðusköfu og lít-
inn snjókúst á aðgengilegum stað.
Önnur góð hjálpartæki eru keðjur,
vasaljós, startkaplar, dráttartóg
og handhæg snjóskófla.
Ekið að vetri
NagladekkiN leyfð 1. Nóvember
Nagladekk eru leyfileg í Reykjavík á tímabilinu 1. nóvember til 15. apríl ár hvert.
Margir telja litla þörf fyrir nagladekk á höfuðborgarsvæðinu. Vetrardekk eða heils-
ársdekk hafa gefist vel. Nagladekkin auka kostnað við viðhald og sömuleiðis eyðir
bíllinn meira bensíni með nagladekkjum. Þá hafa nagladekk mikil áhrif á svifryk í
andrúmslofti sem er slæmt fyrir heilsu manna.
Nú er þess krafist að lágmarksdýpt mynsturs í vetrardekkjum sé minnst þrír milli-
metrar. Hlutfall nagladekkja var 31 prósent á höfuðborgarsvæðinu við talningu síð-
asta vetur. Fyrir nokkrum árum var nagladekkjanotkun 67% svo hún hefur minnkað
umtalsvert.
Sekt fyrir að aka á nagladekkjum utan þess tíma þegar það er leyfilegt er 5.000
krónur á hvert dekk. Það þarf því að reiða fram 20 þúsund krónur ef fólk er tekið á
nöglum fyrir 1. nóvember.
Ekki gera málamiðlanir
þegar kemur að öryggi
Goodyear nagladekk
hemla best í snjó
samkvæmt FÍB*
Vetrardekkjakönnun 2015-2016
Nokkrir metrar í hemlunarvegalengd geta skipt öllu máli
Þú færð Goodyear vetrardekkin á öllum betri hjólbarðaverkstæðum
vEtrardEkk kynningarblað
11. október 201612
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
F
-9
2
7
4
1
A
D
F
-9
1
3
8
1
A
D
F
-8
F
F
C
1
A
D
F
-8
E
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K