Fréttablaðið - 11.10.2016, Side 46

Fréttablaðið - 11.10.2016, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Yoko Ono, 13 daga danshátíð öndum saman þriðji dagur um kvöldið Yoko Ono 13 daga danshátíð. Reykjavík 2016 © Yoko Ono Dance Company. Listasafn Reykjavíkur. Miðasala í síma 528 5050, á harpa.is og tix.is harpa.is/hbr Ein vinsælasta ballettsýning allra tíma Hnotu- brjóturinn St. Petersburg Festival Ballet ásamt Sinfóníu - hljómsveit Íslands Hátíðarballettinn frá Pétursborg snýr aftur og flytur eina fegurstu perlu dansbókmenntanna í viðhafnarbúningi ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg. Í ár mun flokkurinn einnig sýna í Hofi á Akureyri ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands þann 22. nóvember. Eldborg 24. nóvember kl. 19:30 25. nóvember kl. 19:30 26. nóvember kl. 13:00 & 17:00 Börn 12 ára og yngri fá 50% afslátt af miðaverði „Þegar við sögðum frá því að þau væru að koma til Íslands fóru dansararnir okkar að gráta. Það er bara þannig. Við erum þar,“ segir Stella Rósenkranz, deildarstjóri og danskennari hjá Dansstúdíó World Class, eða DWC. Ástæðan fyrir spenningnum er koma tveggja af stærstu dönsurunum á heimsvísu í dag til landsins, þeirra Hollywood og KK Harris, sem verða með dans- tíma á DWC Dance Camp sem fer fram í fyrsti skipti dagana 14. og 15. október í nýrri World Class stöð í Breiðholti. „Það má líkja þessu við það að Lionel Messi og Cristiano Ronaldo kæmu hingað og héldu fótboltanámskeið. Þetta eru stór- stjörnur. Við höfum aldrei fengið svona stór nöfn hingað áður.“ Stella segist afar spennt fyrir því að geta flutt slíkar „sleggjur“ í dans- bransanum til landsins, eins og hún orðar það. „Við gerum þetta til að færa íslenska dansara nær þessum vinsælu erlendu dönsurum og við viljum efla danssamfélagið á Íslandi með því að flytja inn svona stór nöfn,“ útskýrir hún og bætir við að bæði Hollywood og KK Harris séu risastórar stjörnur í hinum ört vaxandi dansheimi. Hollywood er einn af danshöfundum hinnar gríð- arvinsælu tónlistarkonu Beyoncé og hefur einnig samið dansa fyrir tónlistarkonur á borð við Rihönnu, Nicky Minaj og Jennifer Lopez,  á meðan KK Harris hefur meðal ann- ars unnið með Britney Spears og er núna aðaldansari tónlistarmanns- ins Usher. Stella segir þau Hollywood og KK Harris einnig eiga það sameiginlegt að njóta mikilla vinsælda á sam- félagsmiðlum og eiga þar fylgj- endur í milljónavís. „Þessir vinsæl- ustu dansarar í dag eru orðin stór vörumerki því dansheimurinn er orðinn svo stór. Fólk fylgist með þeim á YouTube, Instagram og öllum þessum samfélagsmiðlum og lærir þannig dansana. Í gamla daga tóku allir dansa upp á VHS og lærðu þannig, en í dag er aðgengið orðið svo miklu betra. Sumir verða hissa á þessari aðdáun og spyrja hvað sé svona merkilegt við einhverja dans- ara, en staðreyndin er sú að í augum margra eru þessir vinsælu dansarar miklar fyrir- myndir,“ segir Stella og bætir við að það sé engin tilviljun að dansinn njóti svo mikilla vinsælda sem raun ber vitni. „Orkan sem fylgir því að dansa er svo jákvæð.  Maður fær  útrás fyrir það sem  maður elskar með því að dansa og það er spennandi að læra af þeim bestu. Alveg eins og maður verður æsispenntur þegar íslenska lands- liðið í knattspyrnu skorar mark eða sér uppáhaldstónlistarmanninn sinn koma fram á tónleikum.“ Aðspurð segir Stella að enginn þurfi að kvíða því að geta ekki fylgt atvinnufólkinu eftir í danskennsl- unni. „Tímarnir eru opnir öllum og hannaðir þannig að allir dansarar eiga að ráða við sporin, svo ég hvet alla áhugasama til að skrá sig.“ kjartang@frettabladid.is Danshöfundur Beyoncé kennir Íslendingum Þegar fréttist af komu dansaranna Hollywood og KK Harris til lands- ins urðu sumir dansararnir í Dansstúdíói World Class svo spenntir að þeir fóru að gráta. Stella Rósenkranz hjá DWC segir dansheiminn sístækkandi. Jose Hollywood er annar tveggja af stærstu dönsurunum á heimsvísu. 1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r30 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð 1 1 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D F -6 F E 4 1 A D F -6 E A 8 1 A D F -6 D 6 C 1 A D F -6 C 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.