Fréttablaðið - 10.10.2016, Page 6
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 | hafid@hafid.is |
Fiskur vikunnar
Öll marineruð
bleikja
1.990 kr. kg.
10. - 14. októberH
AFIÐ
FISKVERS
LU
N
10
ára
Efnahagsmál Fjármagnstekjur
drógust saman um 36 prósent frá
árinu 2010 til 2015, en greiðendum
fjármagnstekjuskatts fækkaði um
80 prósent. Þetta kemur fram í Stað-
tölum skatta sem birtar voru á vef
ríkisskattstjóra í vikunni.
Til skattskyldra fjármagnstekna
einstaklinga teljast vaxtatekjur,
arður, söluhagnaður og leigutekjur
utan rekstrar. Á þessar tekjur er
lagður fjármagnstekjuskattur, sölu-
hagnaður getur þó verið skattfrjáls
eftir eignarhaldstíma eða tegund-
um eigna.
Fjármagnstekjur námu 90,5 millj-
örðum króna árið 2015, saman-
borið við 139,3 milljarða árið 2010.
Tekjurnar tóku dýfu milli áranna
2010 og 2011 þegar þær lækkuðu
um helming.
Á sama tíma fækkaði framtelj-
endum fjármagnstekna (og greið-
endum fjármagnstekjuskatts) úr
182.699 í 38.780 (tölur um fjölda
framteljenda með fjármagnstekjur
vísa til fjölda fjölskyldna en ekki
einstaklinga).
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri segir að það sem skýri helst
þessa þróun sé að frítekjumark
var tekið upp árið 2009 sem gerði
ráð fyrir að fyrstu 125 þúsundin af
vaxtatekjum væru skattlaus.
„Þetta er lagabreyting sem skýrir
þetta að mestu leyti, því langflestir
sem greiða fjármagnstekjuskatt
greiða lítið. Það varð strax mikil
breyting árið 2011. Fjármagns-
tekjuskatturinn var á móti hækk-
aður úr 10 prósentum í áföngum í
20 prósent, þannig að skattarnir eru
þyngri á þeim sem þurfa að greiða
hann,“ segir Skúli.
„Það er alltaf einhver dulin starf-
semi og auðvitað er svört starfsemi
eitthvað af þessu,“ heldur Skúli
áfram. „En þegar við skoðum leigu-
tekjur er líklegra að þær séu að skila
sér betur með nýjum reglum.“
Heildarleigutekjur jukust úr 6
milljörðum króna árið 2010 í 8,9
milljarða árið 2015, eða um 48 pró-
sent. Á sama tíma fjölgaði framtelj-
enda leigutekna um 9,3 prósent.
„Þetta hefur löngum verið vanda-
mál með leigutekjurnar en við telj-
um að það sé í skárra horfi nú eftir
þessar breytingar. Hærri leigutekjur
sýna að það eru fleiri að gefa þær
upp,“ segir Skúli.
Embætti ríkisskattstjóra telur,
að sögn Skúla, að það sé mjög
óverulegt sem skotið er undan af
fjármagns tekjum úr fjármálastofn-
unum og fyrirtækjum í formi arð-
greiðslna.
saeunn@frettabladid.is
Mun færri greiða fjármagnstekjuskatt
Greiðendum fjármagnstekjuskatts fækkaði úr 183 þúsundum í 39 þúsund milli 2010 og 2015. Lagabreytingar skýra þetta að mestu.
Enn er eitthvað um dulda og svarta starfsemi, að sögn ríkisskattstjóra. Leigutekjur eru líklega að skila sér betur í ríkiskassann en áður.
Stúdentar mótmæla í Brasilíu
Mikil stúdentamótmæli hafa verið í Sao Paulo í Brasilíu og yfirtóku mótmælendur meðal annars skóla í borginni. Mótmælt er miklum niðurskurði í
mennta- og heilbrigðiskerfi landsins en yfirvöld í Brasilíu ætla að ráðast í gagngerar breytingar sem munu gilda næstu 20 árin. NordicPhotos/Getty
Það er alltaf einhver
dulin starfsemi og
auðvitað er svört starfsemi
eitthvað af þessu. En þegar
við skoðum leigutekjur er
líklegra að þær séu að skila
sér betur með nýjum reglum.
Skúli Eggert Þórðar-
son, ríkisskattstjóri
Eþíópía Lýst hefur verið yfir neyð-
arástandi í Eþíópíu til næstu sex
mánaða. Ástæða þess er viðvarandi
mótmæli Oromo- og Amhara-þjóð-
flokkanna gegn ríkisstjórninni.
Sextíu prósent íbúa Eþíópíu til-
heyra Oromo- og Amhara-þjóð-
flokkunum, sem eru afar ósáttir við
að Tigray-þjóðflokkurinn, sem 6,1
prósent íbúa tilheyrir, fari með öll
völd í landinu.
Ofbeldi hefur aukist í Eþíópíu
síðan á sunnudag fyrir viku þegar
55 manns létu lífið í átökum milli
mótmælenda og lögreglunnar á
Oromo-hátíð. Tugir þúsunda eru í
haldi lögreglunnar.
Óvíst er hvað neyðarástandið
felur í sér, en ljóst er að mótmæl-
endur munu ekki hætta aðgerðum
sínum þrátt fyrir inngrip yfirvalda.
Núverandi ríkisstjórn hefur verið
við völd í 25 ár. – sg
Neyðarástand
í Eþíópíu
6,1%
Eþíópíumanna tilheyrir þjóð-
flokki sem fer með öll völd.
Mótmælt í eþíópíu. NordicPhotos/AFP
1 0 . o k t ó b E r 2 0 1 6 m á n U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
C
-7
1
5
8
1
A
D
C
-7
0
1
C
1
A
D
C
-6
E
E
0
1
A
D
C
-6
D
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K