Fréttablaðið - 10.10.2016, Síða 14
Undankeppni HM 2018: I-riðill
Ísland - Tyrkland 2-0
Finnland - Króatía 0-1
0-1 Mario Mandzukic (18.).
Úkraína - Kósovó 3-0
1-0 Amir Rrahmani, sjálfsm. (31.), 2-0 Andriy
Yarmolenko (81.), 3-0 Ruslan Rotan (87.).
Nýjast
Undankeppni HM 2018: C-riðill
Þýskaland - Tékkland 3-0
Aserbaídsjan - Noregur 1-0
N-Írland - San Marinó 4-0
Efri
Króatía 7
Ísland 7
Úkraína 5
Neðri
Tyrkland 2
Finnland 1
Kósovó 1
Í dag
18.45 Holland - Frakkland Sport
18.45 Svíþjóð - Búlgaría Sport 2
18.45 Færeyjar - Portúgal Sport 3
20.45 HM markasyrpa Sport
Undankeppni HM 2018: D-riðill
Serbía - Austurríki 3-2
Wales - Georgía 1-1
Moldóva - Írland 1-3
Undankeppni HM 2018: E-riðill
Pólland - Danmörk 3-2
Svartfj.land - Kasakstan 5-0
Armenía - Rúmenía 0-5
Undankeppni HM 2018: F-riðill
England - Malta 2-0
Skotland - Litháen 1-1
Slóvenía - Slóvakía 1-0
Undankeppni HM 2018: G-riðill
Albanía - Spánn 0-2
Makedónía - Ítalía 2-3
Ísrael - Liechtenstein 2-1
Olís-deild karla
Stjarnan - Afturelding 22-27
Markahæstir: Ari Magnús Þorgeirsson 7,
Garðar B. Sigurjónsson 5 - Birkir Benedikts-
son 7, Elvar Ásgeirsson 4, Kristinn Hrannar
Bjarkason 4.
Domino’s-deild kvenna
Stjarnan - Skallagrím. 86-75
Stigahæstar: Danielle Victoria Rodriguez
23/7 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir
19/9 fráköst - Tavelyn Tillman 28, Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir 26/10 fráköst.
Grindavík - Keflavík 65-89
Stigahæstar: Ashley Grimes 19/9 fráköst,
Petrúnella Skúladóttir 14 - Emelía Ósk
Gunnarsdóttir 23/8 fráköst, Dominique
Hudson 22, Birna V. Benónýsdóttir 14.
Haukar - Valur 67-60
Stigahæstar: Michelle Mitchell 30/16 frá-
köst, Sólrún Inga Gísladóttir 13 - Mia Loyd
27/18 fráköst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir
15/8 fráköst.
Snæfell - Njarðvík 84-59
Stigahæstar: Taylor Brown 27/8 stoðsend-
ingar, Berglind Gunnarsdóttir 14 - Carmen
Tyson-Thomas 34/15 fráköst.
ÍSL 2 – 0 TYR
1-0 Ömer Toprak, sjálfsmark (42.),
2-0 Alfreð Finnbogason (44.).
Skot (á mark): 16 (10) – 7 (2)
Horn: 8 – 3 Rangstöður: 3 – 0
Frammistaða Íslands (4-4-2)
Hannes Þór Halldórsson 6
Birkir Már Sævarsson 7
Kári Árnason 9
Ragnar Sigurðsson 8
Ari Freyr Skúlason 7
Jóhann Berg Guðmundsson 9
Birkir Bjarnason 8
Gylfi Þór Sigurðsson 9
Theodór Elmar Bjarnason 8
(86. Hörður B. Magnússon -)
Jón Daði Böðvarsson 7
(62. Björn B. Sigurðarson 6)
Alfreð Finnbogason 8
(68. Viðar Örn Kjartansson 6)
Maður leiksins
Kári Árnason var
frábær í vörn, stór-
hættulegur í loftinu
og hann virðist koma
sér í færi í hverjum leik.
Hann átti frábæra stoðsendingu
þegar Ísland komst í 2-0 og er
hann nú búinn að koma með
beinum hætti að þremur mörkum
í undankeppninni.
visir.is Umsögn um alla leik-
menn, umfjöllun og viðtöl má
finna á íþróttavef Vísis.
Alfreð eftir leik
„Það gleður mig
mikið sem
framherja
að skora í
hverjum leik
og líka þegar
við vinnum alla
leiki. Það er tvö-
faldur bónus. Allt sem við töluð-
um um gekk upp. Við náðum að
setja pressu á þá snemma. Vorum
í andlitinu á þeim allan tímann og
við vissum að það er eitthvað sem
þeir þola illa. Þeir voru byrjaðir að
kvarta undan veðrinu fyrir leik.
Það er ekki oft í fótbolta að leik-
skipulagið heppnist 100% en það
var svoleiðis í dag.“
Heimir eftir leik
„Ég veit ekki
hvort Ísland
hefur nokkru
sinni skapað
sér jafn
mörg færi og
við gerðum í
þessum leik,“ sagði
brosmildur Heimir Hallgrímsson
landsliðsþjálfari í leikslok. „En
það sem stóð samt sem áður upp
úr er karakterinn í strákunum.
Þeir voru margir mjög þreyttir en
gáfu meira en allt í þennan leik,
ef ég get orðað það svo. Karakt-
erinn yfirvann þreytuna og við
spiluðum fullkominn leik gegn
Tyrkjunum í dag.“
Tyrkir tættir í sundur í Dalnum
Öflugt tyrkneskt lið reyndist engin fyrirstaða fyrir það íslenska í frábærum landsleik á Laugardalsvelli í gær-
kvöldi. Ísland hélt hreinu í fyrsta sinn í mótsleik í ár og spilaði frábærlega, frá aftasta manni til þess fremsta.
FótbOltI Ísland er enn taplaust og
ásamt Króatíu á toppi síns riðils í
undankeppni HM 2018. Þó svo að
enn sé langur vegur fram undan að
lokakeppninni bar leikur liðsins í
2-0 sigri á Tyrklandi í gær með sér
að strákarnir eru síst búnir að fá nóg
eftir ævintýri sumarsins í Frakk-
landi og ætla sér beinustu leið til
Rússlands.
Aðaláhyggjuefni margra fyrir
leikinn í gær var fjarvera fyrirliðans
Arons Einars Gunnarssonar, sem
var í banni, og tilheyrandi tilfærsl-
ur innan liðsins. En þær áhyggjur
reyndust ástæðulausar – Birkir
Bjarnason leysti miðjuhlutverkið
með miklum sóma og Theódór
Elmar Bjarnason kom inn á kantinn
af miklum krafti. Raunar áttu allir
leikmenn Íslands góðan dag.
Færin á færibandi
Íslenska liðið spilaði af miklum
krafti frá fyrstu mínútu til þeirrar
síðustu. Einbeitingarleysið sem
mátti sjá á liðinu í leiknum gegn
Finnlandi á fimmtudag var hvergi
að sjá í þetta skiptið. Tyrkir fengu
lítinn sem engan tíma á boltann,
náðu ekki að skapa sér færi á
löngum köflum á meðan íslenska
liðið var yfirvegunin uppmáluð og
náði margsinnis að byggja upp fal-
legar sóknir.
Færin komu hvert á eftir öðru
og með réttu hefði Ísland átt að
vera komið 2-0 yfir eftir stundar-
fjórðung. Kári Árnason og Alfreð
Finnbogason nýttu ekki góð færi en
það var það eina sem vantaði upp
á magnaða frammistöðu framan
af leik. Ísland var einfaldlega með
yfirhöndina, hvert sem var litið á
vellinum.
Elja og dugnaður upp á tíu
Þó svo að fyrra mark Íslands
hafi verið sjálfsmark var uppspil
íslenska liðsins, með þá Gylfa Þór
og Jóhann Berg í fararbroddi, stór-
glæsilegt og verðskuldaði mark.
Stuttu síðar kom Alfreð Íslandi í 2-0
forystu eftir ótrúlega stoðsendingu
Kára Árnasonar, sem skallaði bolt-
ann af eigin vallarhelmingi inn fyrir
varnarlínu Tyrkja.
Síðari hálfleikur var ekki jafn
opinn, þó svo að Alfreð hafi klúðrað
dauðafæri snemma í honum, en
Tyrkir komust aldrei nálægt því
að ógna forystu Íslands. Eljan og
dugnaðurinn hjá strákunum okkar
var upp á tíu og þeir sáu til þess að
Ísland hélt í fyrsta sinn marki sínu
hreinu í mótsleik síðan að Íslend-
ingar tryggðu sér sætið á EM með
markalausu jafntefli við Kasakstan.
Ísland óttast engan
Næsti leikur Íslands í riðlinum verð-
ur sennilega sá erfiðasti, gegn Króa-
tíu ytra. En strákarnir sendu sterk
skilaboð með frammistöðunni í gær
og með réttu ættu þeir ekki að ótt-
ast neitt lið. Slík eru gæðin í íslenska
liðinu. eirikur@365.is
Alfreð Finnbogason hleður í skot. Skömmu síðar lá boltinn í netinu. Hann er nú kominn með þrjú mörk í jafn mörgum leikjum í undankeppninni. FRéTTABLAðið/ERNiR
1 0 . O k t ó b E r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r14 s p O r t ∙ F r É t t A b l A ð I ð
sport
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
C
-5
8
A
8
1
A
D
C
-5
7
6
C
1
A
D
C
-5
6
3
0
1
A
D
C
-5
4
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K