Fréttablaðið - 10.10.2016, Side 15
fólk
kynningarblað 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r
Auður Inga gerir fallega, einfalda fugla úr keramik. Hún segist horfa mikið á form hluta og að formið á fuglunum hennar sé aðeins einföldun á raunverulegu fuglsformi. MYND/GVA
Veggverk eftir Auði. Það samanstendur af kubbum sem eru um 15 sinnum 15 sentimetrar að stærð.
Fuglarnir
sem Auður
gerir eru
fallegir.
Þegar Auður Inga Ingvarsdótt-
ir keramiker var unglingur fór
hún á leirnámskeið með vinkonu
sinni og eftir það varð ekki aftur
snúið. Hún ákvað þá að hún ætl-
aði að læra leirlist en sá draum-
ur rættist samt ekki strax. „Ég
var alltaf með þetta nám í hug-
anum. Ég var búin að vinna í leir
í mörg ár og fara á öll þau nám-
skeið sem ég gat fundið áður en ég
tók þá ákvörðun að uppfylla þenn-
an gamla draum og klára nám. Ég
Í heimi leirsins
Auður Inga Ingvarsdóttir keramiker segir ákveðna
hugleiðslu felast í því að vinna með leir. Hún gerir
meðal annars fallega fugla og veggverk úr leirnum.
var búin að vera nokkur ár í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur og fara í
gegnum myndlistardeildina í FB
og eftir það sótti ég um í Glasgow
School of Art. Það voru heil fjög-
ur ár sem var frábær tími og ég
naut í botn. Þar hafði ég kennara
frá öllum heimshornum og kynnt-
ist leirnum frá öðru sjónarhorni.“
Hún segir leirinn vera frábært
efni, bæði til að skapa úr og svo sé
vinna við leir ákveðin hugleiðsla.
„Maður fer bara í annan heim. Ég
finn í leirnum farveg fyrir allar
hugmyndirnar sem hrúgast upp
í hausnum á mér og ef ég hef
ekki komist á vinnustofuna
í nokkra daga er ég alveg
orðin viðþolslaus, þar til
ég hef stungið fingr-
unum í leirinn í smá
tíma,“ segir Auður
Inga og brosir.
Hú n ger i r
bæði nytjahluti
og skúlptúr-
verk úr leirn-
um og eigin-
lega allt sem
henni dettur í
hug að gera og er framkvæman-
legt úr efninu. „Ég hef gert í mörg
ár, eða frá hruni, bolla sem ég nefni
„Hamingjubolla“. Mig langaði til að
nota leirinn til að reyna að gleðja
fólk því margir áttu erfitt á þeim
tíma. Bollarnir eru allir hand-
renndir og ég set hjarta í botninn á
þeim, því hjörtu vekja góða tilfinn-
ingu hjá fólki. Ég nota ýmsa liti á
glerunginn þannig að hver bolli er
einstakur,“ lýsir hún.
Auður Inga gerir
líka fallega, einfalda
fugla úr keramik.
Hún segist horfa mikið
á form hluta og að form-
ið á fuglunum hennar sé aðeins
einföldun á raunverulegu fugls-
formi. „Ég byggi bara upp búk og
set gogg á. Mér finnst það duga. Ég
brenni þá síðan í gasofni úti og að-
ferðin sem ég nota nefnist „naked
raku“ þar sem glerungurinn flagn-
ar af hlutnum í brennslunni og
skilur leirinn eftir nakinn.“
Spurð að því hvort hún eigi eitt-
hvert uppáhaldsverk sem hún
hefur gert nefnir Auður Inga vegg-
verk sem hún byrjaði að gera árið
2014. „Þau samanstanda af fer-
köntuðum kubbum sem má raða
saman á vegg á ýmsan hátt. Ég
nota rakubrennsluna og suma
kubbana lita ég undir brennsluna.
Þannig hafa sumir grænan blæ,
aðrir hvítan eða bláan þannig
að áferðin kemur skemmti-
lega út,“ segir Auður Inga
sem er með vinnu-
stofu á Korpúlfsstöð-
um og er einn níu
rekstrar aðila
Kaolin Ker-
amik galler-
ís við Skóla-
vörðustíg.
Skútuvogur 1H | 104 Reykjavík | S: 5858900 | www.jarngler.is
Sjálfvirkur hurðaropnunarbúnaður
fyrir húsfélög og fyrirtæki, ásamt uppsetningu og
viðhaldi Hentar vel fyrir aðgengi hreyfihamlaðra.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
C
-4
E
C
8
1
A
D
C
-4
D
8
C
1
A
D
C
-4
C
5
0
1
A
D
C
-4
B
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K