Fréttablaðið - 10.10.2016, Síða 16
Sannkallað
ekta íSlenSkt
hauStmeðlæti
Íslenskt grænmeti er bragðgóð gæðavara sem endalaust er hægt að
leika sér með á grillinu og inni í eldhúsinu. Hafliði Halldórsson
matreiðslumaður gefur hér lesendum nokkrar einfaldar uppskriftir.
Hafliði Halldórsson matreiðslu-
maður stendur í ströngu þessa
dagana. Nýlega tók hann við
starfi hjá fyrirtækinu Matfangi
sem selur matvörur á veitinga-
markaði og í verslanir en auk
þess er hann framkvæmdastjóri
kokkalandsliðsins sem undir-
býr sig á fullu þessar vikurn-
ar fyrir Ólympíuleikana í mat-
reiðslu sem verða síðar í þess-
um mánuði.
Hann gaf sér þó tíma til að
gefa lesendum Fréttablaðsins
nokkrar uppskriftir, byggðar
að mestu á íslensku grænmeti.
„Íslenskt grænmeti er afburða
bragðgóð gæðavara og það er
endalaust hægt að leika sér með
það á grillinu. Þótt það sé komið
haust er upplagt að grilla sem
oftast og ekki láta vindinn eða
kuldann stoppa sig. Grænmeti
býður upp á fullt af möguleik-
um og það er um að gera að hafa
gaman af tilraunum með ólíkar
tegundir og eldunaraðferðir.“
Hafliði er duglegur að prófa
nýjar tegundir, bæði á grill-
inu og einnig inni í eldhúsi. „Í
augnablikinu er í mestu uppá-
haldi hjá mér nýtt hvítkál, tóm-
atar og sveppir. Ég mun pottþétt
nota hvítkálið mikið í haust og
í vetur þar sem ég mun búa til
t.d. sýrð salöt úr kálinu og gufu-
steikja það sem meðlæti. Sann-
kallað ekta íslenskt haustmeð-
læti.“
Heima fyrir kýs Hafliði ein-
faldan mat þar sem hráefn-
ið fær að njóta sín. „Þar er ís-
lenskt hráefni í öndvegi og þá
helst lambið, fiskurinn og græn-
metið.“
Hér gefur Hafliði lesendum
Fréttablaðsins afar einfaldar,
en um leið ljúffengar uppskrift-
ir, að meðlæti sem passar með
ýmsum mat.
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
starri freyr
jónsson
starri@365.is
Sunnudjass alla sunnudaga kl 20.00
Heimsklassa Djass með frábærum tónlistarmönnum í bruggsalnum okkar.
Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir
Hraðréttur dagsins í hádeginu alla
virka daga 1.690.- kr
Íslenskt
grænmeti
er í miklu
uppáhaldi
hjá Hafliða
Halldórs-
syni, fram-
kvæmda-
stjóra
Kokka-
landsliðs-
ins. myndir/
KristjÁn
maacK
grillaðir tómatar
2 stk. stórir tómatar
Ólífuolía
Sjávarsalt og pipar
úr kvörn
Pestó
Parmesan-ostur
Skerið tómatana í tvennt,
penslið með ólífuolíu og
stráið sjávarsalti og pipar
yfir. Grillið sárin í 1 mín-
útu. Snúið við og penslið
með pestói, rífið parmes-
an-ost yfir og grillið í ca. 2
mínútur eða þar til ostur-
inn er bráðnaður.
Skemmtilegar grillaðar róFur
Nokkrar rófur
Timjan
Smjör
Salt og pipar
Skerið rófur í jafna bita.
Setjið í eldfast mót ásamt
timjani og smjöri. Krydd-
ið með salti og pipar. Setj-
ið mótið á grillið í 20 mín-
útur á um 200°C hita.
Hrærið af og til í.
góðar grillaðar kartöFlur
200 g kartöflur
Ferskt rósmarín
Rautt chili
Lime-safi
3 msk. ólífuolía
Skerið kartöflurnar
í munnbita og setj-
ið í eldfast mót. Krydd-
ið þær með fersku rós-
marín, chili og lime-safa
ásamt 3 msk. af ólífuolíu.
Kryddið með sjávarsalti
og pipar. Eldið í 20 mín-
útur á grillinu á 200°C
hita. Hrærið af og til.
gómSætt grænkál
4 grænkálsstilkar
Rasp
Safi úr ½ sítrónu
2 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Blandið saman raspi og
safa úr 1/2 sítrónu við 2
msk. ólífuolíu. Kryddið
með salti og pipar. Hell-
ið yfir grænkálsstilkana.
Látið standa í 5 mínútur
og grillið svo á meðalhita.
Snúið reglulega. Grænkál-
ið er tilbúið þegar það er
byrjað að verða stökkt.
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G A r b l A ð ∙ H e i M i l i
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
C
-5
3
B
8
1
A
D
C
-5
2
7
C
1
A
D
C
-5
1
4
0
1
A
D
C
-5
0
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K