Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 2
Einnig: Georgía & Azerbædsjan, Hvítarússland,
Úzbekistan og Túrkmenistan, siglingar Rússlandi
www.bjarmaland.is bjarmaland@bjarmaland.is 770 50 60
FRAMHALD JÓLA
í Moskvu
5.-9. janúar
150 200 kr.
ÆVINTÝRALJÓMI
TRANSILVANÍU
Í fótspor Drakúla greifa
20.- 27. maí
161 700 kr.
HIÐ ÓÞEKKTAINDÓKÍNA
8.- 23. apríl
598 000 kr.
INDLANDbónus - Moskva 13.feb.- 2.mars
563 000 kr.
FERÐIR 2017
nokkur
sæti
laus!
Veður
Hvöss norðvestanátt á austurhelmingi
landsins, stormur á Austfjörðum og
einnig á Suðausturlandi. Mun hægari
vindur vestantil. Él á norðaustanverðu
landinu og stöku skúrir eða él vestantil.
Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.
sjá síðu 18
Undirbúa flutning í keiluhöllina
„Þetta sýnir andann í félaginu að fólk sé mætt hingað á sunnudagsmorgni í sjálfboðavinnu. Þeir sem mættu fengu frían alvöru þrektíma,“ segir
Haraldur Dean Nelson oft kenndur við Mjölni. Vaskur hópur iðkenda Mjölnis var mættur í gömlu keiluhöllina í morgun til að rífa upp brautir og
gólf keilusalarins. Mjölnir festi nýlega kaup á húsnæðinu og hyggst opna þar æfingaaðstöðu um næstu áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Kosningar Flokkur fólksins er eini
flokkurinn sem ekki náði manni inn
á þing í nýafstöðnum kosningum sem
hefur náð lágmarki til að eiga rétt til
framlaga úr ríkissjóði. Flokkurinn
hlaut 3,5 prósent greiddra atkvæða,
en að lágmarki þarf 2,5 prósent
atkvæða til að eiga rétt á framlögum.
Það framlag skiptist hlutfallslega milli
flokka eftir atkvæðamagni í næst-
liðnum kosningum.
Upphæðin er ákveðin með fjár-
lögum hverju sinni. Í fyrra fengu
flokkar alls 286 milljónir samkvæmt
fjárlögum 2016. Ef upphæðin helst sú
sama í næstu fjárlögum má gera ráð
fyrir að Flokkur fólksins myndi fá allt
að 10 milljónir króna. – sg
Flokkur fólksins
kemst á fjárlög
Kosningar Meðalaldur nýkjörinna
þingmanna er 46,8 ár. Það er yngsta
Alþingi á lýðveldistíma. Leita þarf
aftur til kosninganna 1934 til að
finna yngra þing.
Þingflokkur Pírata er áberandi
yngstur en meðalaldur þingmanna
þeirra er 30,5 ár. Þingflokkar Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar eru
elstir en meðalaldur beggja flokka
er rúmlega 57,6 ár.
Yngstu þingmennirnir eru fæddir
árið 1990. Það eru Píratarnir Ásta
Guðrún Helgadóttir og Eva Pan-
dora Baldursdóttir og Sjálfstæðis-
konan Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir. Af þeim þremur er Áslaug
Arna yngst.
Aldursforseti þessa þings er
Vinstri græni nýliðinn Ari Trausti
Guðmundsson en hann verður 68
ára gamall í desember. Á hæla hans
fylgja Sjálfstæðismennirnir Vil-
hjálmur Bjarnason, 64,5 ára, og Páll
Magnússon, rúmlega 62 ára. – jóe
Yngsta þing frá
því fyrir stríð
Samfylkingin galt afhroð í alþingis-
kosningunum sem fram fóru á
laugardaginn. Flokkurinn meira
en helmingaði fylgi sitt og fékk ein-
ungis 5,7 prósent og þrjá þingmenn
kjörna. Flokkurinn missti alla þing-
menn sína á höfuðborgarsvæðinu
sem verður að teljast töluverð tíð-
indi þar sem flokkurinn hefur alla
jafna sótt fylgi sitt þangað. Oddný
Harðardóttir, formaður flokksins
náði kjöri, auk Loga Einarssonar
varaformanns og Guðjóns S Brjáns-
sonar oddvita Norðausturkjördæm-
is. Einungis Logi er kjördæmakjör-
inn en hin tvö jöfnunarþingmenn.
Árni Páll Árnason,
Oddný ætlar ekki að
segja af sér formennsku
Samfylkingin er minnsti flokkurinn á Alþingi eftir kosningarnar. Oddný
Harðardóttir segir enga kröfu hafa komið fram um afsögn sína. Borgarstjórnar-
flokkurinn kom saman eftir að flokkurinn missti alla þingmenn í Reykjavík.
Össur Skarphéðinsson, Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir, Helgi Hjörvar
og Valgerður Bjarnadóttir náðu ekki
kjöri.
Stjórn Samfylkingarinnar fundaði
um stöðu flokksins í gær. Engar
formlegar ákvarðanir hafa verið
teknar og segir Oddný að hún muni
ekki stíga til hliðar sem formaður
um sinn. „Við skoðum það í sam-
hengi við annað, hvað við teljum
heppilegt að gera. Það hefur engin
krafa komið fram um það að ég fari
að stíga til hliðar daginn eftir kosn-
ingar. Ég held að menn séu sammála
um að við tökum ákvörðun um það
saman. Ég geri það sem er flokknum
fyrir bestu,“ segir Oddný.
Fréttablaðið hafði samband við
áhrifafólk innan Samfylkingarinn-
ar og er mismunandi í þeim tónn-
inn varðandi stöðu formannsins.
Nokkrir voru þeirrar skoðunar að
Oddný þyrfti að segja af sér í ljósi
stöðunnar og einn hafði á orði að
ef Samfylkingin ætti að taka stöðu
sína alvarlega þyrfti Oddný að segja
af sér. Aðrir töldu rétt að leyfa ryk-
inu að setjast áður en einhver rót-
tæk ákvörðun yrði tekin. „Í dag er
maður náttúrulega svo hundfúll,“
segir Sema Erla Serdar, fyrrverandi
formaður framkvæmdastjórnar
flokksins. „Tökum tvo daga í að anda
inn og út og síðan þarf hver og einn
að íhuga sína stöðu.“
Líkt og fram hefur komið
missti Samfylkingin alla sína þing-
menn í Reykjavík á sama tíma
og borgarstjóri kemur úr röðum
flokksins. Fréttablaðið hefur heim-
ildir fyrir því að borgarstjórnarfull-
trúar og nefndamenn flokksins hafi
fundað í gærkvöldi til að ræða stöðu
flokksins.
Magnús Már Guðmundsson,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
segir uppstokkun blasa við á vinstri
vængnum. Fylgi félagshyggjufólks
sé að dreifast mjög víða. „Það er ein-
hver blæbrigðamunur á milli fram-
boða og margir voru að tala fyrir því
sama í aðdraganda kosninga. Þetta
strandar ekki á málefnastöðunni,
frekar á einhverjum persónum,“
segir hann.
„Mér finnst skylda að félags-
hyggjufólk hugi að því með ein-
hverjum hætti hvernig væri best
að gera þetta. Nú er VG með góðan
sigur en samt verður flokkurinn
hugsanlega bara meðalstór stjórnar-
andstöðuflokkur af því vinstrið er
eins og það er,“ segir Magnús.
stefanrafn@frettabladid.is
thorgnyr@frettabladid.is
Kosningar
2016
2009 2013 2016
✿ Fylgisþróun frá 2009
n Reykjavík suður
n Reykjavík norður
57%
62%
23.235
10.001
3.766
5.007
1.944
11.667
11.568
4.994
1.822
Kosningar „Það er ekki hægt að
gera annað en að viðurkenna að
þetta er ekki góð niðurstaða. En
þetta kemur kannski ekki að öllu
leyti á óvart eftir það sem á undan
er gengið,“ segir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins, um
niðurstöðu kosninganna. Framsókn
hlaut 11,5 prósent atkvæða.
Að mati Sigmundar hefði
flokknum gengið betur undir hans
stjórn. „Ég var búinn að leggja
drög að því hvernig með öflugri
kosningabaráttu hefðum við getað
hækkað fylgið um kannski fjögur
prósentustig og svo kannski tvö í
viðbót í kosningunum sjálfum. Við
hefðum þá getað gert ráð fyrir 18 til
19 prósenta fylgi.“
„Að vera með flokkinn í inn-
byrðis átökum vikum og mánuðum
saman, frekar en að einbeita sér
að því að undirbúa kosningar og
fara samhent í þær með þennan
árangur sem við vorum búin að
ná, leiddi til þessarar niðurstöðu.
Þeir sem höfðu áhyggjur af Pírata-
stjórn fóru yfir á Sjálfstæðisflokk-
inn sem auðnaðist það að standa
saman." – sg
Hefði farið með
flokkinn í 19%
Oddný Harðardóttir segir flokksmenn
ætla að fara yfir stöðuna
FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Ég geri
það sem er
flokknum
fyrir bestu.
Oddný
Harðardóttir,
formaður
Samfylk-
ingarinnar
3 1 . o K t ó b e r 2 0 1 6 M á n u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
D
-5
F
7
0
1
B
1
D
-5
E
3
4
1
B
1
D
-5
C
F
8
1
B
1
D
-5
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K